Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Smáfuglarnir lásu tölvupóst Elíasar Jóns Guðmundsson þar sem hann leggur á ráðin um hvernig beina megi umfjöllun fjölmiðla í þá átt sem ríkisstjórninni henti frekar en að þeim sem ef til vill væri fréttnæmust. Smáfuglarnir hafa heimildir fyrir því að umræddur Doddi, sem er blaðamaðurinn í skeytinu, sé Þórður Snær Júlíusson á Viðskiptablaðinu enda birtir VB frétt um sama mál klukkutíma áður.
Skeyti Elíasar er orðrétt eftirfarandi:
Tussufínt.
Það er spurning hvernig við prjónum þetta.
Doddi vill ólmur fá að skúbba einhverju fyrir fundinn og sé ég ákveðið tækifæri í því að láta það eftir honum.
Þannig getum við sett fókusinn á eitthvað eitt atriði sem við viljum að fjölmiðlar séu fókuseraðir á þegar þeir mæta á fundinn. Hér er tillaga að texta sem við getum sent honum:
„Efnahags- og viðskiptaráðherra mun ekki staðfesta lögmæti kaupa Magma á HS orku að svo stöddu líkt og meirihluti nefndar um erlenda fjárfestingu hefur lagt til við hann. Hann mun senda málsaðilum formlegt bréf þar sem hann tilkynnir um að á vegum á vegum stjórnvalda sé að hefjast umfangsmikil vinna sem kunni að hafa áhrif á framtíðarstöðu opinberra jafnt sem einkaaðila á sviði orkumála og að ríkisstjórnin sé staðráðin í að vinda ofan af einkavæðingu innan orkugeirans og tryggja eftir megni að mikilvægustu orkufyrirtæki landsins séu á forræði opinberra aðila.
Hluti af þeirri vinnu sem stjórnvöld ætla að hrinda af stað er rannsókn á öllu einkavæðingarferli Hitaveitu Suðurnesja, síðar HS orku, þar sem lögmæti kaupa Magma sem erlends aðila verði meðal annars kannað. Einnig vinna við endurskoðun lagaumhverfis varðandi eignarhald á orkufyrirtækjum, þ.á.m. um takmarkanir á eignarhaldi einkaaðila.““
Af skeytinu má sjá að vinstristjórnin spilar vandlega með fjölmiðla og beinir kastljósi þeirra í þær áttir sem henta hverju sinni. Eflaust er það svona sem Jóhanna og Steingrímur skilja hugtökin „opið“, „gegnsætt“ og „allt uppi á borðum“.
Þá velta smáfuglarnir því fyrir sér hvað femínistar VG eða Jóhanna Sigurðardóttir segja yfir orðanotkuninni „tussufínt“ innan stjórnarráðsins?
Mörður lemur á Jóni Bjarna í Speglinum
Gunnar Gunnarsson, spunaliði Samfylkingarinnar í starfsliði Spegilsins á RÚV, kallaði Mörð Árnason, þingmann Samfylkingarinnar, til nokkur mínútna samtals 8. september um skýrslu sáttanefndar um fiskveiðistefnu, sem Guðbjartur Hannesson, þingmaður Samfylkingarinnar, stýrði. Smáfuglarnir veltu fyr...
Pressan gleymir Þorgerði fyrir hrun
Pressan gerði fyrir stuttu, undir fomerkjum „Kaffistofunnar“, tilraun til þess að styðja við endurkomu Þorgerðar Katrínar á þing fyrir Sjálfstæðisflokkinn en skoðanakannanir hafa sýnt mikla andstöðu við endurkomuna og er um það rætt meðal sjálfstæðismanna að Þorgerður verði að sækja nýtt umboð í prófkjöri og svo kosningum áður en hún tekur sæti á þingi.
Leigupennar þegja um starfslokasamning Jóhannesar
Tveir leigupennar hafa að undanförnu skrifað varnargreinar fyrir Baugsfeðga og þá sem voru þeim næstir árin fyrir hrun. Þeir hafa að öllu jöfnu skrifað um sömu hlutina með stuttu mililbili og eru því samstíga í því að skrifa fyrir kaupinu sínu. Upplýst hefur verið um háar greiðslur til þeirra.
Hver greiðir fyrir monthús Jóhannesar í Bónus?
Jóhannes í Bónus reisti sér monthús á Svalbarðsströnd við Eyjafjörð. Nú kemur í ljós, að hann átti ekki fyrir því og lét Gaum greiða það fyrir sig. Höllin er nú í kyrrstöðu vegna samnings Arion banka og Gaums.
Ætlar enginn að segja Svavari frá þjóðaratkvæðagreiðslunni?
Svavar Gestsson er þess heiðurs aðnjótandi að hafa ásamt heimspekilærðum aðstoðarmanni sínum gert versta samning Íslandssögunnar sem í daglegu tali er nefndur Icesave samningurinn.
Már Guðmundsson verst kommúnistastimplinum
Viðskiptablaðið birti í síðustu viku mola um myndband af kommúnistahugsjón Más Guðmundssonar seðlabankastjóra en í Viðskiptablaðinu sagði: Myndband af Má Guðmundssyni seðlabankastjóra þar sem hann er kallaður kommúnistinn í Seðlabankanum gengur á milli manna á YouTube. Þar er farið yfir sögu Más allt frá því hann var róttæklingur á yngri árum.
Listi yfir fyrirtæki á valdi hins opinbera
Smáfuglarnir velta fyrir sér hvort norræn velferð felist í baktjaldamakki og leynibrögðum með eignir sem hið opinbera hefur leyst til sín af frjálsum markaði. Í það minnsta er sú aðferð notuð er hjá þeirri vinstristjórn sem nú situr og kennir sig við áðurnefnda velferð.
Smáfuglarnir sjá að svo virðist sem Sjálfstæðisflokkurinn sé ekki dauður úr öllum æðum. Óli Björn Kárason hóf í morgun umræðu á Alþingi um fjárfestingar Framtakssjóðs Íslands og þá staðreynd að reglur voru þverbrotnar þegar Landsbankinn, ríkisbanki, seldi eignarhaldsfélagið Vestia til Framtakssjóðs Íslands.