amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Þriðjudagurinn 7. febrúar 2012 - 09:09
 
 
Fuglahvísl birtist 27. júlí 2010 klukkan 14:56

Er stækkunar­stjóri að vísa til íslenskra ESB sér­fræðinga?

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Smáfuglarnir sjá í fréttum að haft er eftir Stefan Füler að umræða um ESB mál á Íslandi sé óupplýst og jafnvel villandi. Þannig hefur Morgunblaðið eftir stækkunarstjóranum:

Stefan Füle, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, segir það vera áhyggjuefni hversu umræðan á Íslandi um sambandið sé óupplýsandi og jafnvel villandi.

Augljóst má vera af þessu að Stefan gagnrýnir íslenska ESB sérfræðinga sem hafa árum saman haldið því fram að sérstakar undanþágur muni fást fyrir Ísland. Þeir hafa talað með slíkum hætti að vel mætti trúa því að ESB væri að ganga í Ísland en ekki öfugt.

Stefan setur ofan í við Össur Skarphéðinsson á fundinum í morgun og undirstrikar að engar undanþágur verði veittar. Morgunblaðið segir svo frá:

Sigurður Bogi
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, var leiðréttur í Brussel. Stækkunarstjóri undirstrikar að engar undanþágur verði veittar.

Spænskur blaðamaður spurði Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hvaða atriði hann væri ekki tilbúinn til að gefa eftir í viðræðum við ESB um sjávarútvegsmál. Össur sagðist leggja áherslu á að sjávarútvegur hefði gríðarlega þýðingu fyrir efnahag Íslands og eins að fiskveiðilögsaga Íslands snerti ekki fiskveiðilögsögu neinna landa í ESB. Fiskveiðistefna ESB gerði ekki ráð fyrir slíkri stöðu og því þyrfti að taka tillit til þess.

Eftir að Össur hafði svarað spurningunni bætti Füle við að í sambandi við þessi mál yrði að hafa í huga að ESB veitti ekki varanlegar undanþágur frá lögum sambandsins.

Þarna leiðréttir stækkunarstjórinn Össur Skarphéðinsson og undirstrikar hina löngum þekktu afstöðu ESB sem íslenskum aðildarsinnum hefur tekist að fela fyrir Íslendingum. Það er því slegið á puttana á íslenska utanríkisráðherranum í Brussel.

 
Meira fuglahvísl

Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?

Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.

Leikhús eða sjúkrahús

Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.

Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana

Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...

Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna

Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.

ESB fáni á landsliðsbúninga

Í janúar 2009 birtu smáfuglarnir myndband sem sett hafði verið á YouTube þar sem sá veruleiki hafði verið búinn til að Ísland inni til sigurs á handboltamóti en í erlendum fréttum kæmi ESB til með að eigna sér sigurinn og segja hann „sigur ESB á mótinu“. Smáfuglunum bárust nokkur bréf þar sem myn...

Ögmundur slær út bankamennina

Smáfuglarnir rákust á ummæli Ögmundar Jónassonar, sem stýrði Lífeyris­sjóði starfsmanna ríkisinsn (LSR) fram af bjargbrúninni í góðærinu.

Bók stjúpu Egils slátrað

Smáfuglunum þótti ámátlegt að hlusta á Egil Helgason í bókmenntaþætti sínum Kiljunni grátbiðja álitsgjafa sína, Pál Baldvin Baldvinsson og Kolbrúnu Bergþórsdóttur, að gefa bók stjúpmóður sinnar, Sigrúnar Davíðsdóttur, jákvæða umsögn. En þau Páll Baldvin og Kolbrún hökkuðu í sig bók Sigrúnar, sem þykir afspyrnu vond skáldsaga.

Enn eitt dæmið um hlutdrægni RÚV

Skafti Harðarson rakti nýlega í fróðlegum pistli hvernig pistlahöfundar RÚV nota tækifærið þegar þeir segja frá atburðum erlendis að koma að áróðri um innanlandsmál.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX