amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Þriðjudagurinn 7. febrúar 2012 - 09:04
 
 
Fuglahvísl birtist 27. júlí 2010 klukkan 11:32

ESB hitar upp

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Smáfuglarnir sjá að Stefan Füle, stækkunarstjóri ESB, ætlar að koma til Íslands í haust og vonast hann til að sendiskrifstofa ESB verði opnuð á sama tíma. Af því má sjá að nú ætlar ESB að setja allt í gang og sannfæra Íslendinga um að ganga í sambandið.

ecrgroup
Stefan Füle vill Ísland í ESB. Sambandið eyddi að sögn tæpum 80 milljörðum í áróður í Tékklandi. Snéu viðhorfi tékka á einu ári.

Þegar Tékkland gekk í ESB hafði fylgi við aðild verið lítið en á rúmu ári tókst ESB að snúa því við og sögðu ESB andstæðingar að sambandið hefði eytt rúmum 500 milljónum evra í áróður og auglýsingar. Sú tala nemur tæpum 80 milljörðum íslenskra króna.

ESB veit sem er að auðlindir Íslands eru mun meira en 80 milljarða virði. Það er því einfalt reikningsdæmi hjá skriffinnum í Brussel að ákveða hversu miklu skuli varið í áróður og auglýsingar. Smjörþefurinn af aðferðum ESB barst smáfuglunum þegar þeir sáu að sambandið bauð sérvöldum ESB blaðamönnum í lúxusferð til Brussel.

Hafi einhver óttast ásælni Magma Energy í hlut í lítilli heitaveitu á Suðurnesjum þá ættu hinir sömu að undirbúa sig undir tilraunir ESB til að ná yfirráðum yfir auðlindum Íslands. Sambandið gæti nýtt sér orð Össurar Skarphéðinssonar: You ain't seen nothing yet.

 
Meira fuglahvísl

Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?

Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.

Leikhús eða sjúkrahús

Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.

Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana

Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...

Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna

Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.

ESB fáni á landsliðsbúninga

Í janúar 2009 birtu smáfuglarnir myndband sem sett hafði verið á YouTube þar sem sá veruleiki hafði verið búinn til að Ísland inni til sigurs á handboltamóti en í erlendum fréttum kæmi ESB til með að eigna sér sigurinn og segja hann „sigur ESB á mótinu“. Smáfuglunum bárust nokkur bréf þar sem myn...

Ögmundur slær út bankamennina

Smáfuglarnir rákust á ummæli Ögmundar Jónassonar, sem stýrði Lífeyris­sjóði starfsmanna ríkisinsn (LSR) fram af bjargbrúninni í góðærinu.

Bók stjúpu Egils slátrað

Smáfuglunum þótti ámátlegt að hlusta á Egil Helgason í bókmenntaþætti sínum Kiljunni grátbiðja álitsgjafa sína, Pál Baldvin Baldvinsson og Kolbrúnu Bergþórsdóttur, að gefa bók stjúpmóður sinnar, Sigrúnar Davíðsdóttur, jákvæða umsögn. En þau Páll Baldvin og Kolbrún hökkuðu í sig bók Sigrúnar, sem þykir afspyrnu vond skáldsaga.

Enn eitt dæmið um hlutdrægni RÚV

Skafti Harðarson rakti nýlega í fróðlegum pistli hvernig pistlahöfundar RÚV nota tækifærið þegar þeir segja frá atburðum erlendis að koma að áróðri um innanlandsmál.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX