Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Smáfuglarnir sjá að nú eru uppi raddir innan VG um að setja sérlög sem taki hlut Magma í HS Orku eignarnámi. Ástæðan er sú að þjóðerni eigenda Magma hentar ekki VG. Atli Gíslason sagði í samtali við Morgunblaðið:
Ef það gengur ekki [innsk: að samningurinn sé ólögmætur] þá vil ég bara að þessi hlutur sé tekinn eignarnámi með sérlögum eða hvernig sem það mál virkar
Smáfuglarnir sjá á þessu að eignarrétturinn skiptir litlu máli hjá vinstri mönnum nú sem endranær. Hafi Magma ekki farið að lögum hlýtur að vera auðsótt fyrir Atla Gíslason að stefna fyrirtækinu fyrir dóm og fá úr því skorið.
Virðinst vinstrimanna fyrir lögum og reglum kristallast í orðum Atla Gíslasonar. Sé það svo að Magma hafi gert löglegan samning um löglega hluti þá skiptir það Atla engu máli. Hann segir orðrétt að ef það sé svo þá verði hluturinn bara tekinn eignarnámi.
Smáfuglarnir velta fyrir sér hvort Atli lesi nútímann þannig að rétt sé á því að bregða fæti fyrir erlenda fjárfesta með sérlögum sem gerðu, að því er virðist, löglegan samning á Íslandi? Heldur hann að stjórnvöld hegði sér svo í vestrænum heimi?
Pressan gleymir Þorgerði fyrir hrun
Pressan gerði fyrir stuttu, undir fomerkjum „Kaffistofunnar“, tilraun til þess að styðja við endurkomu Þorgerðar Katrínar á þing fyrir Sjálfstæðisflokkinn en skoðanakannanir hafa sýnt mikla andstöðu við endurkomuna og er um það rætt meðal sjálfstæðismanna að Þorgerður verði að sækja nýtt umboð í prófkjöri og svo kosningum áður en hún tekur sæti á þingi.
Leigupennar þegja um starfslokasamning Jóhannesar
Tveir leigupennar hafa að undanförnu skrifað varnargreinar fyrir Baugsfeðga og þá sem voru þeim næstir árin fyrir hrun. Þeir hafa að öllu jöfnu skrifað um sömu hlutina með stuttu mililbili og eru því samstíga í því að skrifa fyrir kaupinu sínu. Upplýst hefur verið um háar greiðslur til þeirra.
Hver greiðir fyrir monthús Jóhannesar í Bónus?
Jóhannes í Bónus reisti sér monthús á Svalbarðsströnd við Eyjafjörð. Nú kemur í ljós, að hann átti ekki fyrir því og lét Gaum greiða það fyrir sig. Höllin er nú í kyrrstöðu vegna samnings Arion banka og Gaums.
Ætlar enginn að segja Svavari frá þjóðaratkvæðagreiðslunni?
Svavar Gestsson er þess heiðurs aðnjótandi að hafa ásamt heimspekilærðum aðstoðarmanni sínum gert versta samning Íslandssögunnar sem í daglegu tali er nefndur Icesave samningurinn.
Már Guðmundsson verst kommúnistastimplinum
Viðskiptablaðið birti í síðustu viku mola um myndband af kommúnistahugsjón Más Guðmundssonar seðlabankastjóra en í Viðskiptablaðinu sagði: Myndband af Má Guðmundssyni seðlabankastjóra þar sem hann er kallaður kommúnistinn í Seðlabankanum gengur á milli manna á YouTube. Þar er farið yfir sögu Más allt frá því hann var róttæklingur á yngri árum.
Listi yfir fyrirtæki á valdi hins opinbera
Smáfuglarnir velta fyrir sér hvort norræn velferð felist í baktjaldamakki og leynibrögðum með eignir sem hið opinbera hefur leyst til sín af frjálsum markaði. Í það minnsta er sú aðferð notuð er hjá þeirri vinstristjórn sem nú situr og kennir sig við áðurnefnda velferð.
Smáfuglarnir sjá að svo virðist sem Sjálfstæðisflokkurinn sé ekki dauður úr öllum æðum. Óli Björn Kárason hóf í morgun umræðu á Alþingi um fjárfestingar Framtakssjóðs Íslands og þá staðreynd að reglur voru þverbrotnar þegar Landsbankinn, ríkisbanki, seldi eignarhaldsfélagið Vestia til Framtakssjóðs Íslands.
Össur: Framsókn í „pólitísku göturæsi“
Þingmenn undruðust í umræðum um frumvarp um breytingar á stjórnarráðinu á Alþingi í gær, hve illa Össur Skarphéðinsson brást við ræðu Vigdísar Hauksdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins. Vigdís taldi Jóhönnu Sigurðardóttur og ríkisstjórnina halda illa á málinu og á skjön við allt, sem eðlilegt væri miðað við uppleggið um meðferð á skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.