Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.


Það vakti mikla athygli þegar Runólfur Ágústsson, fyrrum rektor Háskólans við Bifröst, var skipaður umboðsmaður skuldara sem er nýtt embætti hjá hinu opinbera. Einnig sóttist kona eftir starfinu sem gengt hefur forstöðuhlutverki hjá ráðgjafastofu heimilanna um árabil.
Ráðherrar Samfylkingarinnar töldu réttast að ráða Runólf þó svo að hann ætti met í að skuldsetja háskóla sem erfitt verður að slá í bráð. Það sem ekki stóð í fréttatilkynningu ráðuneytisins var að Runólfur er flokksgæðingur Samfylkingarinnar og átti inni greiða. Morgunblaðið segir svo í Staksteinum:
Runólfur Ágústsson leiddi framboð Þjóðvaka Jóhönnu Sigurðardóttur á Vesturlandi áður en hann sneri sér að því að skuldsetja Bifröst með eftirminnilegum hætti. Runólfur var áður í Alþýðubandalaginu en hefur frá stofnun Samfylkingarinnar beitt sér mjög innan þess flokks.
Hann sýndi flokknum sjaldséða hollustu þegar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hafði ekki náð kjöri á þing en vildi komast þangað engu að síður. Búið var til starf deildarforseta á Bifröst og Bryndís Hlöðversdóttir þingmaður ráðin í það án auglýsingar, ólíkt því sem tíðkaðist við ráðningar skólans.
Bryndís vék því af þingi og Ingibjörg tók þar sæti. Þetta er án efa eitt allra sérkennilegasta pólitíska plott síðari tíma.
Smáfuglarnir sjá að það borgar sig að beygja reglurnar fyrir Samfylkinguna. Ekki dugir að leggja sig hart fram í starfi og sinna málaflokki sínum í fleiri ár eins og fyrrum forstöðukona ráðgjafastofu heimilanna hafði gert. Það eina sem dugir er að eiga inni hjá valdklíku Samfylkingarinnar eins og Runólfur Ágústsson.
Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Landssambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlandsmarkaði.
Kópavogsbúar anda léttar - bæjarstjórn frá í þrjár vikur
Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjarstjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjarstjórnin sé ekki að störfum.
Jón Steinsson, hagfræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávarútvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.
Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?
Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.
Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.
Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana
Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...
Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna
Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.