Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Smáfuglarnir heyrðu Birgittu Jónsdóttur, þingmann Hreyfingarinnar, segja einhvers staðar, að hún hefði svo mikið að gera, að hún hefði ekki haft tíma til að skipta sér af skjalabirtingunni á WikiLeaks. Þar hafa nú verið birtar 90.000 blaðsíður af leyniskjölum um stríðið í Afganistan.

Smáfuglunum þótti merkilegt að heyra þetta frá Birgittu, og þó ekki - hún gerir sér líklega grein fyrir, að þessi birting geti dregið dilk á eftir sér og vill þess vegna ekki láta nafn sitt tengjast málinu. Hún hefur hins vegar barist fyrir því, að Ísland verði einskonar griðastaður fyrir WikiLeaks og lagt fram tillögu um það á Alþingi, sem tengir þing og þjóð þessari upplýsingaveitu, sem gengst upp í því að skaprauna yfirvöldum með illa fengnum upplýsingum.
Fyrr á árinu tengdist Ríkisútvarpið WikiLeaks vegna ferðar Kristins Hrafnssonar, fréttamanns, til Bagdad. Af því tilefni ritaði Eiður Guðnason á vefsíðu sína Molar um málfar og miðla:
„Við höfum fengið þrjú mismunandi svör við spurningunni um hver greiddi kostnaðinn við ferð Kristins Hrafnssonar fréttamanns til Bagdad í Írak, fyrr á þessu ári.
1. Birgitta Jónsdóttir,alþingismaður, segir að Wikileaks hafi greitt kostnaðinn við ferðina. Ríkisútvarpið hafi ekki þurft að borga neitt. Þetta sagði hún á Bylgjunni 11. apríl.
2. Kristinn Hrafnsson, fréttamaður, sagði í athugasemd við Mola um málfar og miðla 309, að Wikileaks hefði greitt 2/3 kostnaðarins og Ríkisútvarpið 1/3.
3. Í svari við fyrirspurn frá pressan.is sagði Páll Magnússon, útvarpsstjóri: “Kostnaður RÚV vegna ferðarinnar, sem skiptist milli Fréttastofu og Kastljóss, er áætlaður 400-500 þús.kr.
Aðkoma RÚV var ekki önnur en að fréttamaður hjá okkur tók þátt í að vinna efnið til birtingar.“"
Furðulegt er, að í hlut eigi miðill, sem þjónar því hlutverki að upplýsa um laumuspil annarra, og ekki sé unnt að fá upplýst á óyggjandi hátt, hver séu tengsl hans og RÚV.
Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?
Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.
Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.
Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana
Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...
Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna
Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.
Í janúar 2009 birtu smáfuglarnir myndband sem sett hafði verið á YouTube þar sem sá veruleiki hafði verið búinn til að Ísland inni til sigurs á handboltamóti en í erlendum fréttum kæmi ESB til með að eigna sér sigurinn og segja hann „sigur ESB á mótinu“. Smáfuglunum bárust nokkur bréf þar sem myn...
Smáfuglunum þótti ámátlegt að hlusta á Egil Helgason í bókmenntaþætti sínum Kiljunni grátbiðja álitsgjafa sína, Pál Baldvin Baldvinsson og Kolbrúnu Bergþórsdóttur, að gefa bók stjúpmóður sinnar, Sigrúnar Davíðsdóttur, jákvæða umsögn. En þau Páll Baldvin og Kolbrún hökkuðu í sig bók Sigrúnar, sem þykir afspyrnu vond skáldsaga.
Enn eitt dæmið um hlutdrægni RÚV
Skafti Harðarson rakti nýlega í fróðlegum pistli hvernig pistlahöfundar RÚV nota tækifærið þegar þeir segja frá atburðum erlendis að koma að áróðri um innanlandsmál.