Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Smáfuglarnir taka eftir því, að leitað hefur verið til Steingríms J. Sigfússonar, formanns vinstri-grænna, og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins, og þeir spurðir, hvort orð Össurar Skarphéðinssonar um að stuðningur við ESB-aðild væri að aukast á á þingi. Hvorugur taldi svo vera.

Smáfuglarnir velta fyrir sér, hvers vegna enginn hafi snúið sér með spurninguna til Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins. Hvíslað er, að Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, berjist nú gegn því, að ESB-aðildarumsókn verði dregin til baka. Hann hafi hvatt Daniel Hannan, ESB-þingmann, til að lýsa þeirri skoðun hér á landi.
Hvíslinu fylgir, að með þessu sé Guðlaugur Þór, sem á í miklum erfiðleikum innan Sjálfstæðisflokksins, að þjóna hagsmunum þeirra, sem styðja hann þó enn, þeirra Sveins Andra Sveinssonar og Ólafs Stephensens.Hið stóra styrkjamál Guðlaugs Þórs dragi þannig ýmsa dilka á eftir sér.
Pressan gleymir Þorgerði fyrir hrun
Pressan gerði fyrir stuttu, undir fomerkjum „Kaffistofunnar“, tilraun til þess að styðja við endurkomu Þorgerðar Katrínar á þing fyrir Sjálfstæðisflokkinn en skoðanakannanir hafa sýnt mikla andstöðu við endurkomuna og er um það rætt meðal sjálfstæðismanna að Þorgerður verði að sækja nýtt umboð í prófkjöri og svo kosningum áður en hún tekur sæti á þingi.
Leigupennar þegja um starfslokasamning Jóhannesar
Tveir leigupennar hafa að undanförnu skrifað varnargreinar fyrir Baugsfeðga og þá sem voru þeim næstir árin fyrir hrun. Þeir hafa að öllu jöfnu skrifað um sömu hlutina með stuttu mililbili og eru því samstíga í því að skrifa fyrir kaupinu sínu. Upplýst hefur verið um háar greiðslur til þeirra.
Hver greiðir fyrir monthús Jóhannesar í Bónus?
Jóhannes í Bónus reisti sér monthús á Svalbarðsströnd við Eyjafjörð. Nú kemur í ljós, að hann átti ekki fyrir því og lét Gaum greiða það fyrir sig. Höllin er nú í kyrrstöðu vegna samnings Arion banka og Gaums.
Ætlar enginn að segja Svavari frá þjóðaratkvæðagreiðslunni?
Svavar Gestsson er þess heiðurs aðnjótandi að hafa ásamt heimspekilærðum aðstoðarmanni sínum gert versta samning Íslandssögunnar sem í daglegu tali er nefndur Icesave samningurinn.
Már Guðmundsson verst kommúnistastimplinum
Viðskiptablaðið birti í síðustu viku mola um myndband af kommúnistahugsjón Más Guðmundssonar seðlabankastjóra en í Viðskiptablaðinu sagði: Myndband af Má Guðmundssyni seðlabankastjóra þar sem hann er kallaður kommúnistinn í Seðlabankanum gengur á milli manna á YouTube. Þar er farið yfir sögu Más allt frá því hann var róttæklingur á yngri árum.
Listi yfir fyrirtæki á valdi hins opinbera
Smáfuglarnir velta fyrir sér hvort norræn velferð felist í baktjaldamakki og leynibrögðum með eignir sem hið opinbera hefur leyst til sín af frjálsum markaði. Í það minnsta er sú aðferð notuð er hjá þeirri vinstristjórn sem nú situr og kennir sig við áðurnefnda velferð.
Smáfuglarnir sjá að svo virðist sem Sjálfstæðisflokkurinn sé ekki dauður úr öllum æðum. Óli Björn Kárason hóf í morgun umræðu á Alþingi um fjárfestingar Framtakssjóðs Íslands og þá staðreynd að reglur voru þverbrotnar þegar Landsbankinn, ríkisbanki, seldi eignarhaldsfélagið Vestia til Framtakssjóðs Íslands.
Össur: Framsókn í „pólitísku göturæsi“
Þingmenn undruðust í umræðum um frumvarp um breytingar á stjórnarráðinu á Alþingi í gær, hve illa Össur Skarphéðinsson brást við ræðu Vigdísar Hauksdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins. Vigdís taldi Jóhönnu Sigurðardóttur og ríkisstjórnina halda illa á málinu og á skjön við allt, sem eðlilegt væri miðað við uppleggið um meðferð á skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.