amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. september 2010 - 16:07
 
 
Fuglahvísl birtist 24. júlí 2010 klukkan 11:42

Össur telur Ögmund með ESB-aðildarsinnum

 
 
 
Um fuglahvísl

Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.



Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Smáfuglarnir kipptu sér ekki upp við, að Össur Skarphéðinsson héldi því fram í viðtali við mbl.is, eftir að vinstri-grænir höfðu ákveðið að veita honum umboð til að stíga næsta skrefið inn í ESB, að stuðningur við aðild væri að aukast á Alþingi.

VG
Ögmundur Jónasson.

Össur veit nefnilega sem er, að ESB-málið er komið af könnunarstiginu, en tal um það var beitan innan vinstri-grænna til að sætta þá við að hefja aðildarferlið. Þar sem Árni Þór Sigurðsson og Ögmundur Jónasson samþykktu för Össurar til Brussel í næstu viku og þátttöku hans í ríkjaráðstefnunni með utanríkisráðherra Belga, telur Össur, að þeir séu hlynntari aðild en áður. Össur þurfti raunar aldrei að efast um afstöðu Árna Þórs. Ögmundur hefur hins vegar alltaf látið eins og hann sé á móti aðild. Össur telur það nú breytt.

 
Meira fuglahvísl

Pressan gleymir Þorgerði fyrir hrun

Pressan gerði fyrir stuttu, undir fomerkjum „Kaffistofunnar“, tilraun til þess að styðja við endurkomu Þorgerðar Katrínar á þing fyrir Sjálfstæðis­flokkinn en skoðanakannanir hafa sýnt mikla andstöðu við endurkomuna og er um það rætt meðal sjálfstæðis­manna að Þorgerður verði að sækja nýtt umboð í prófkjöri og svo kosningum áður en hún tekur sæti á þingi.

Leigupennar þegja um starfslokasamning Jóhannesar

Tveir leigupennar hafa að undanförnu skrifað varnargreinar fyrir Baugsfeðga og þá sem voru þeim næstir árin fyrir hrun. Þeir hafa að öllu jöfnu skrifað um sömu hlutina með stuttu mililbili og eru því samstíga í því að skrifa fyrir kaupinu sínu. Upplýst hefur verið um háar greiðslur til þeirra.

Hver greiðir fyrir monthús Jóhannesar í Bónus?

Jóhannes í Bónus reisti sér monthús á Svalbarðsströnd við Eyjafjörð. Nú kemur í ljós, að hann átti ekki fyrir því og lét Gaum greiða það fyrir sig. Höllin er nú í kyrrstöðu vegna samnings Arion banka og Gaums.

Ætlar enginn að segja Svavari frá þjóðar­atkvæða­greiðslunni?

Svavar Gestsson er þess heiðurs aðnjótandi að hafa ásamt heimspekilærðum aðstoðar­manni sínum gert versta samning Íslandssögunnar sem í daglegu tali er nefndur Icesave samningurinn.

Már Guðmundsson verst kommúnistastimplinum

Viðskiptablaðið birti í síðustu viku mola um myndband af kommúnistahugsjón Más Guðmundssonar seðlabanka­stjóra en í Viðskiptablaðinu sagði: Myndband af Má Guðmundssyni seðlabanka­stjóra þar sem hann er kallaður kommúnistinn í Seðlabankanum gengur á milli manna á YouTube. Þar er farið yfir sögu Más allt frá því hann var róttæklingur á yngri árum.

Listi yfir fyrirtæki á valdi hins opinbera

Smáfuglarnir velta fyrir sér hvort norræn velferð felist í baktjaldamakki og leynibrögðum með eignir sem hið opinbera hefur leyst til sín af frjálsum markaði. Í það minnsta er sú aðferð notuð er hjá þeirri vinstri­stjórn sem nú situr og kennir sig við áður­nefnda velferð.

Óli Björn sterkur á Alþingi

Smáfuglarnir sjá að svo virðist sem Sjálfstæðis­flokkurinn sé ekki dauður úr öllum æðum. Óli Björn Kárason hóf í morgun umræðu á Alþingi um fjárfestingar Framtaks­sjóðs Íslands og þá staðreynd að reglur voru þverbrotnar þegar Landsbankinn, ríkisbanki, seldi eignar­halds­félagið Vestia til Framtaks­sjóðs Íslands.

Össur: Framsókn í „pólitísku göturæsi“

Þingmenn undruðust í umræðum um frumvarp um breytingar á stjórnar­ráðinu á Alþingi í gær, hve illa Össur Skarphéðinsson brást við ræðu Vigdísar Hauksdóttur, þingmanns Framsóknar­flokksins. Vigdís taldi Jóhönnu Sigurðardóttur og ríkis­stjórnina halda illa á málinu og á skjön við allt, sem eðlilegt væri miðað við uppleggið um meðferð á skýrslu rannsóknar­nefndar Alþingis.

 
 
©2010 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX