amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 19:28
 
 
Fuglahvísl birtist 23. júlí 2010 klukkan 20:17

Ekki nema von að Hreinn færi í þrot

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Eyþór Arnalds
Hreinn Loftsson, fyrrverandi aðaleigandi DV og stjórnarmaður í Baugi: Hann skuldar a. m. k. 23 milljarða skv. skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.

Smáfuglarnir eru þakklátir DV fyrir hinn mikla áhuga sem menn þar á bæ sýna amx.is vefnum. Eru þeir óþreytandi við að birta upplýsingar og tilvísanir í vefinn og taka þannig þátt í að fjölga lesendum amx.is.

Á dögunum veltu DV-menn fyrir sér hvað kostaði að reka vef sem þennan og nefndu furðulegar upphæðir, eins og ýmsir bloggarar sem kunnugir eru rekstrarkostnaði af vefjum hafa raunar bent á.

Einnig voru DV-menn með ýmsar getsakir um vefinn og styrktaraðila hans sem hafa allar verið reknar öfugar ofan í þá.

En ef DV-menn telja að hlutirnir séu tíu eða tuttugu sinnum dýrari en þeir þurfa að vera, þá er kannski komin skýringin á því hvers vegna eigandi DV til skamms tíma, Hreinn Loftsson, komst í þrot með blaðið og varð að selja það. Það er ekki gott að hafa starfsmenn sem gera hlutina tíu til tuttugu sinnum dýrar en þarf að gera.

Og ef fleiri starfsmenn Hreins hafa verið eins og þessir, þá fara aðrir að skilja hvernig hann gat safnað 23 milljarða skuldum, eins og upplýst er í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis á bankahruninu.

23 milljarða! Það þarf einhverja hjálp við það, segja smáfuglarnir.

 
Meira fuglahvísl

Útflutt skyr ekki ríkisstyrkt

Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Lands­sambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlands­markaði.

Nýr sími fréttastofu RÚV

Smáfuglunum barst áríðandi tilkynning frá fréttastofu RÚV um nýtt símanúmer frétta­stjórnar. Í tilkynningu er breytingin sögð stytta boðleiðir og einfalda efnislega rit­stjórn. Nýtt símanúmer er 414-2200.

Kópavogsbúar anda léttar - bæjar­stjórn frá í þrjár vikur

Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjar­stjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjar­stjórnin sé ekki að störfum.

Nýr Jón Steinsson

Jón Steinsson, hag­fræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávar­útvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.

Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?

Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.

Leikhús eða sjúkrahús

Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.

Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana

Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...

Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna

Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX