Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Egill Helgason segir að Ísrael sé rasistaríki og nefnir dæmisögu því til sannindamerkis. Hvort dæmisagan sé sönn vita smáfuglarnir ekki en gefa sér það þú í þágu umræðunnar. Á vefsíðu sinni segir Egill:
Ísrael er ríki sem byggir á stækum rasisma. Hér er enn eitt dæmið um það. Palestínuarabi hittir gyðingastúlku í Jerúsalem. Hann lýgur um uppruna sinn og segist vera gyðingur. Maðurinn og konan sofa saman. Það er engu ofbeldi beitt eða neinn þvingun. Konan kemst að því að maðurinn er ekki gyðingur heldur arabi. Hún kærir hann til lögreglunnar. Maðurinn er dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir nauðgun.
Á Íslandi eru til menn og konur sem geta með engu móti fundið sér maka. Hver þeirra hefur á því sínar skýringar. Sumir þeirra leita til annarra sem bjóðast til að sofa hjá því gegn greiðslu. Það er engu ofbeldi beitt eða neinni þvingun. Menn og konur sofa saman. Engu að síður er fólkið sem óskaði eftir kynlífinu kært til lögreglu og það svo dæmt í fangelsi fyrir kynferðisbrot.
Hvað segir Egill Helgason um það? Hvernig ríki er Ísland?
Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?
Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.
Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.
Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana
Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...
Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna
Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.
Í janúar 2009 birtu smáfuglarnir myndband sem sett hafði verið á YouTube þar sem sá veruleiki hafði verið búinn til að Ísland inni til sigurs á handboltamóti en í erlendum fréttum kæmi ESB til með að eigna sér sigurinn og segja hann „sigur ESB á mótinu“. Smáfuglunum bárust nokkur bréf þar sem myn...
Smáfuglunum þótti ámátlegt að hlusta á Egil Helgason í bókmenntaþætti sínum Kiljunni grátbiðja álitsgjafa sína, Pál Baldvin Baldvinsson og Kolbrúnu Bergþórsdóttur, að gefa bók stjúpmóður sinnar, Sigrúnar Davíðsdóttur, jákvæða umsögn. En þau Páll Baldvin og Kolbrún hökkuðu í sig bók Sigrúnar, sem þykir afspyrnu vond skáldsaga.
Enn eitt dæmið um hlutdrægni RÚV
Skafti Harðarson rakti nýlega í fróðlegum pistli hvernig pistlahöfundar RÚV nota tækifærið þegar þeir segja frá atburðum erlendis að koma að áróðri um innanlandsmál.