amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:57
 
 
Fuglahvísl birtist 24. júní 2010 klukkan 07:26

ESB kaupir hóp íslenskra blaðamanna

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Þorfinnur Ómarsson, ritstjóri Eyjunnar, var í hópi þeirra sem þáðu boð ESB í lúxusferð til Brussel.

Smáfuglarnir hafa undir höndum skjöl um ferð nokkurra Íslendinga til Brussel í boði ESB frá þriðjudegi til föstudags í lok maí. Nær allir í ferðinni hafa eytt miklum kröftum í að mæra Evrópusambandið og telja Íslendinga á að ganga þar inn. Ljóst er því að ákveðnir íslenskir blaðamenn voru ekki lengi að falla fyrir silfurpeningum ESB.

Ferð hópsins var kostuð af ESB og var öll hin glæsilegasta. Millilent var í London og voru gestir sérstaklega hvattir til þess að kíkja inn í borgina. Þegar til Brussel var komið var gist á fjögurra stjörnu hóteli á besta stað. Snætt var á dýrum veitingahúsum í hádeginu og á kvöldin. Litlu var til sparað og beið hópsins „welcome pack“ á hótelherbergjum þeirra þegar þau komu til Brussel.

Þeir sem fóru voru:

Höskuldur Kari Schram, Stöð 2
Frosti Logason, X-ið
Gudmundur Franklin Jonsson, Útvarp Saga (fór ekki)
Guðsteinn Bjarnason, Fréttablaðið
Egill Ólafsson, Morgunblaðið
Helgi Hrafn Guðmundsson, DV
Þorfinnur Ómarsson, Eyjan.is
Sölvi Tryggvason, Skjárinn (fór ekki)
Lára Hanna Einarsdottir, bloggari
Alda Sigmundsdóttir, Iceland Weather Report
Ólafur Arnarson, Pressan.is
Björgvin Guðmundsson, Viðskiptablaðið
Þóra Kristín, Smugan

Smáfuglarnir sjá á listanum að ESB valdi ekki blaðamenn af handahófi heldur virðast þeir vandlega valdir út frá skoðunum sínum. Enginn bloggari eða álitsgjafi er í hópnum sem er andsnúinn ESB aðild. Enginn blaðamaður er í hópnum frá Evrópuvaktinni sem einn fjölmiðla segir daglegar hlutlausar fréttir af málefnum ESB.

Smáfuglarnir velta fyrir sér hvort þeir fjölmiðlamenn sem fóru í ferðina telji að mark sé á sér takandi? Eiga blaðamenn að þiggja ferðir frá ESB og fara svo heim og þykjast vera hlutlausir? Hver er munurinn á blaðamönnum og álitsgjöfum sem taka við gjöfum ESB eða stjórnmálamönnum sem tóku við gjöfum útrásarvíkinga? Enginn þeirra sem fóru í ferðina hefur greint frá henni opinberlega. Hvers vegna ætli það sé?

Ferðin bar sama yfirbragð og ferðir sem útrásarfyrirtækin buðu fjölmiðlamönnum í þegar útrásin stóð sem hæst. Fundir voru haldnir í London og dekrað var við blaðamenn sem þangað var boðið. FL Group lét eitt sinn Ipod í herbergi blaðamanna sem þeir fengu að gjöf. Þeir fóru svo heim og skrifuðu vel um fyrirtækin. Allir vita hvernig það endaði. Nú er það ESB sem býður.

Áður voru það rithöfundar til Moskvu en nú er það blaðamenn til Brussel.

Uppfært 24.06.10: Guðmundur Franklín Jónsson fór ekki með í ferðina

Uppfært 25.06.10: Sölvi Tryggason fór ekki með í ferðina

 
Meira fuglahvísl

Útflutt skyr ekki ríkisstyrkt

Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Lands­sambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlands­markaði.

Nýr sími fréttastofu RÚV

Smáfuglunum barst áríðandi tilkynning frá fréttastofu RÚV um nýtt símanúmer frétta­stjórnar. Í tilkynningu er breytingin sögð stytta boðleiðir og einfalda efnislega rit­stjórn. Nýtt símanúmer er 414-2200.

Kópavogsbúar anda léttar - bæjar­stjórn frá í þrjár vikur

Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjar­stjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjar­stjórnin sé ekki að störfum.

Nýr Jón Steinsson

Jón Steinsson, hag­fræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávar­útvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.

Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?

Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.

Leikhús eða sjúkrahús

Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.

Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana

Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...

Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna

Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX