amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Laugardagurinn 4. febrúar 2012 - 16:07
 
 
Fuglahvísl birtist 4. apríl 2010 klukkan 19:13

Lögleysa Álfheiðar gagnrýnd

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Dögg Pálsdóttir, hæstaréttarlögmaður, ritar um stjórnsýslu Álfheiðar Ingadóttur, heilbrigðisráðherra, á vefsíðu sína 4. apríl. Dögg segir:

DP
Dögg Pálsdóttir

„Ákvörðun, t.d. ákvörðun um áminningu, má ekki taka fyrr en búið er að veita þeim andmælarétt, sem hugsanleg ákvörðun snýr að. Réttur til andmæla er því ekki einvörðungu góð stjórnsýsla heldur er hann lögboðinn skv. stjórnsýslulögum.

Fyrir mörgum árum, meðan ég var lögfræðingur í ráðuneyti, lærði ég að í andmælaréttarbréfi verður orðalag að verða hlutlaust og með engum hætti má gefa til kynna í slíku bréfi að ákvörðun um áminningu liggi þegar fyrir. Það vekur því athygli að í andmælaréttarbréfi ráðherra eru engir fyrirvarar. Þvert á móti. Boðskapur ráðherra er skýr. Hann er búinn að taka ákvörðun. Fyrirsögn bréfsins er: Tilkynning um fyrirhugaða áminningu. Strax í byrjun bréfsins segir að ráðgert sé að áminna. Andmælaréttarbréf ráðherrans virðist því þjóna þeim tilgangi einum að geta sagt, eftirá, að andmælaréttar hafi verið gætt. Slíkur andmælaréttur er lögleysa og um leið afleit stjórnsýsla.

Það vekur furðu að lögleysa af þessu tagi skuli viðhöfð af hálfu ráðherra ekki síst þegar tilefni aðgerða ráðherrans er sagt vera meint brot á góðum starfsháttum í opinberu starfi.“

Smáfuglarnir eru þeirrar skoðunar, að Dögg lýsi hér á réttan hátt, hvernig ráðherra beri að standa að undirbúningi, ætli hann að áminna opinberan embættismann. Hugleiðing Daggar styður upphaflegt álit smáfuglanna, að Álfheiður sé með framgöngu sinni að innleiða frekju í íslenska stjórnsýslu - hún hefur ekki stoð í lögum.

 
Meira fuglahvísl

Sigrún Davíðs­dóttir uppvís að ósannindum?

Brynjar Níelsson, formaður Lögmanna­félags Íslands, skrifaði fyrir skömmu pistil þar sem hann rakti hvernig Sigrún Davíðs­dóttir, pistlahöfundur Ríkisútvarpsins og einn tíðasti gesturinn í Silfri Egils, var klappstýra útrásarinnar fyrir hrun og einn helsti gagnrýnandi útrásarvíkinganna eftir hrun. Sigrún sveiflaði sér fljótt og fimlega af einum vagninum á annan.

Postularnir tólf hjá Agli

Viðskiptablaðið birti 29. janúar 2012 mjög fróðlegt yfirlit yfir viðmælendur í Silfri Egils frá hruninu haustið 2008. Þar sést hverjir eru tíðustu gestirnir (í sviga hversu oft þeir komu þar fram). Þetta eru tólf postular: 1. Ólafur Arnarson (13), óyfirlýstur blaðafulltrúi Pálma í Fons, sem b...

Sjálfsréttlæting útvarps­stjóra

Smáfuglarnir lásu aftur grein Páls Magnússonar sem birtist í Morgunblaðinu þar sem hann missir tökin og úthúðar rit­stjóra blaðsins með slíkum ofstopa að ef greinin hefði komið frá einhverjum óþekktari einstaklingi hefði henni verið hafnað eða hugsanlega birt í dálknum „Bréf til blaðsins“. Smáfuglarn...

Þögn Egils um Evu Joly

Smáfuglarnir eru hissa á því að helsti aðdáandi Evu Joly og sá sem tryggði (með dagskrárvaldi sínu) að hún kæmist á laun hins opinbera og fengi greiddar 325 þúsund krónur á dag í laun skuli nú þegja þunnu hljóði um nýjustu fréttir af Evu í heimspressunni. Sagt er frá því í fréttum að 51% Frakka telji að hún sé óheiðarleg og 78% að hún ráði ekki við starf sitt.

Frasabók Hrannars B.

Smáfuglarnir sjá að væntanlegt er tímamótaverk eftir Hrannar B. Arnarsson, fyrrum eiganda Arnarson og Hjörvar sf. og núverandi aðstoðar­mann Jóhönnu Sigurðardóttur. Á forsíðu bókarinnar má sjá nokkra af frösum sem vinstri­stjórnin notar og þá helst Jóhanna. Smáfuglarnir efast ekki um að bókin verð...

Nýr Bjarni Ben

Smáfuglarnir lásu góða grein Bjarna Benediktssonar í Morgunblaðinu í morgun en þar svarar hann málefnalega dylgjum Hallgríms Helgasonar, sem seldi ómálað málverk á tugi milljóna þegar útrásin var í algleymingi, og Björns Ólafs Hallgrímssonar lögmanns. Um efni greinarinnar þarf ekki að fjölyrða en eitt hnutu smáfuglarnir um.

Atvinnuþátttaka aldrei minni

Smáfuglarnir lesa í fréttum að atvinnuþátttaka sé sú minnsta frá því mælingar hófust árið 1991. Þetta eru merkilegar fréttir í ljósi þess að aldrei hefur þörf fólks fyrir fé verið meiri og einmitt nú þegar heimilin hafa þolað mikla rýrnun eigna og skarpa hækkun verðlags umfram launahækkanir. Ef allt...

Jóhanna hrædd við kosningar

Smáfuglarnir sjá á orðfæri Jóhönnu að fáir eru hræddari við kosningar en leiðtogi Samfylkingar­innar. Hún segir við fjölmiðla þessa dagana að „íhaldinu megi ekki takast að reka fleig í ríkis­stjórnina“ með landsdómsmálinu. Þannig skapar Jóhanna þá stöðu að vinstri­stjórnin verði að hanga saman á lyginni einni saman svo halda megi sjálfstæðis­mönnum frá ríkis­stjórn.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX