amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Laugardagurinn 31. júlí 2010 - 08:31
 
 
Fuglahvísl birtist 19. mars 2010 klukkan 19:44

Aftur reynir á Ólaf Stephensen

 
 
 
Um fuglahvísl

Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.



Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
RetailWeek
Jón Ásgeir Jóhannesson

Enn berast fréttir af nýjum gjörningum klíkunnar í kringum Baugsfeðga sem stjórna enn Baugsmiðlunum, sérstaklega Fréttablaðinu.

Nýjasta fréttin er að Glitnir (sem Baugsfeðgar stjórnuðu algerlega) hafi vorið 2008 — nokkrum mánuðum fyrir hrun — lánað Sparisjóðnum Byr þrjá milljarða, um leið og Sparisjóðurinn hafi lánað FL-Group (sem Baugsfeðgar höfðu tekið yfir, en áttu alltaf mikið í) sömu upphæð. Ekki þarf að hafa mörg orð um hvers vegna það var gert: Eigendurnir máttu ekki lána sjálfum sér of mikið samkvæmt reglum.

Áður hafa birst fréttir af því hvernig Glitnir mokaði síðustu vikur fyrir bankahrun fé í Pálma Haraldsson, tugum milljarða, en Pálmi var einn aðalviðskiptafélagi annars Baugsfeðgans, Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, og átti stóran hluta í Baugsmiðlunum.

Einnig hafa birst fréttir af því að Pálmi hafi látið einn milljarð inn á einkareikning Jóns Ásgeirs um sömu mundir. Fer tvennum sögum af tilganginum með því.

Þá hefur komið í ljós að Jón Ásgeir er nánast ekki í neinum persónulegum ábyrgðum í íslensku bönkunum á sama tíma og Björgólfur Guðmundsson þurfti að skrifa upp á öll sín lán og varð fyrir vikið gjaldþrota.

Enn hafa birst fréttir af því að eldri Baugsmaðurinn, Jóhannes Jónsson, hefur skotið undan glæsivillu í Flórída, á sama tíma og fyrirtæki Baugsfeðga eru stórskuldug við íslensku bankana. Þeir feðgar heimta samt með frekju og yfirgangi að fá að halda fyrirtækjum sínum og krefjast þess að þeir opinberu starfsmenn sem leyfa sér að gagnrýna þá verði reknir.

Ólafur Stephensen, ritstjóri Fréttablaðsins.

Smáfuglarnir telja að nú reyni á Ólaf Stephensen. Hann má ekki halda að hann geti setið eins og fínn maður í skjóli Baugsfeðga á ritstjórnarskrifstofu Fréttablaðsins og skrifað upp úr prófritgerðum sínum um Evrópusambandið. Hann verður að flytja í blaði sínu þær fréttir sem almenningur er að tala um — fréttirnar af sífellt skýrari fjárglæfrum og glannaskap Baugsfeðga og þotuliðsins kringum þá. Annars verða það fleiri en skæðar tungur kaffihúsanna sem fara að kalla hann: Jón Ásgeir Stephensen

 
Meira fuglahvísl

Jóhann Hauksson á launum hjá Baugi Group

Jóhann Hauksson hefur í gegnum árin verið harðasti stuðningsmaður Baugsklíkunnar og gengið lengra en flestir í að verja þá í daglegri umræðu fjölmiðla. Jóhann var með útvarpsþáttinn Morgunhaninn á Útvarpi Sögu þar sem hann hélt uppteknum hætti og varði Baugsmenn. Nú hefur komið í ljós að Baugur Group kostaði þáttinn og greiddi laun til Jóhanns.

Þorvaldur talar við Mel Brooks

Þorvaldur Gylfason upplýsti í dag í hinni vikulegu grein sinni í málgagni Baugsfeðga að hann hefði nýlega hitt Mel Brooks í búð og gefið sig á tal við hann. Smáfuglarnir hleruðu samtalið: Stranger: „Hello, Mr. Books! I am Þorvaldur Gylfason, an Icelandic economist. I saw your play last night and I thought it was very good.“ Mel (grinning): „An Icelandic economist?“

Ætlar ríkis­stjórn sem er á móti Magma inn í ESB?

Smáfuglarnir tóku eftir því að í ályktun Heimdallar frá því í dag er bent á að hefði Magma Energy verið fyrirtæki frá ESB ríki og ef Ísland væri í ESB væri ekkert sem ríkið hefði getað gert til að hindra viðskiptin. Innan ESB geta allir fjárfest þvert yfir landamæri.

Heimdallur: Væri málið í reynd eitthvað öðruvísi ef móður­félagið væri frá aðildarríki ESB heldur en Kanada?

Smáfuglunum barst ályktun stjórnar Heimdallar, félags ungra sjálfstæðis­manna í Reykjavík. Ályktunin skýtur föstum skotum að vinstri­stjórninni sem Heimdallur segir óstarfhæfa. Smáfuglarnir telja rétt að birta ályktunina í heild sinni. Heimdallur, félag ungra sjálfstæðis­manna í Reykjavík, gagnrýnir harðlega fórnarkostnaðinn við að halda óstarfhæfri ríkis­stjórn gangandi.

Tími Runólfs kom með Jóhönnu, jafnréttis­ráðherra

Smáfuglarnir biðja lesendur sína að velta fyrir sér, hvernig Jóhanna Sigurðar­dóttir hefði látið í stjórnar­andstöðu, ef yfirlýstur, stórskuldugur, karlkyns sjálfstæðis­maður hefði verið ráðinn umboðsmaður skuldara og gengið hefði verið fram hjá konu, sem veitt hefði skuldurum ráðgjöf á farsælan hátt, árum saman.

Egill gagnrýnir Sigurjón Þ. Árnason fyrir holdafar

Smáfuglarnir sjá að Egill Helgason telur að Björgólfur Thor noti Sigurjón Þ. Árnason sem blóraböggul en Björgólfur sagði margt Sigurjóni að kenna í viðtali við Viðskiptablaðið. Það sem vakti athygli smáfuglanna var áhugaverð greining Egils á Sigurjóni. Egill segir á vefsíðu sinni: Sigurjón Þ....

Sendiherra ESB leiðréttir Eirík Bergmann - EES ekki í hættu

Smáfuglarnir sögðu frá því fyrir stuttu að Eiríkur Bergmann, sér­fræðingur í ESB aðild, hefði sagt EES samstarfið í uppnámi ef ESB umsókn yrði dregin til baka. Eins og með annað sem ekki er rétt var þessi skoðun Eiríks leiðrétt.

Tengsl Elíasar Jóns og Þórðar Snæs

Margir hafa velt fyrir sér hvernig tengslum spunameistara vinstri­stjórnar­innar sé háttað.

 
 
©2010 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX