amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 19:33
 
 
Fuglahvísl birtist 17. mars 2010 klukkan 09:39

Hvað á að kalla þá?

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Ólafur Stephensen, ritstjóri Fréttablaðsins.

Baugspennarnir sem ganga þessa dagana erinda auðjöfranna og útrásarvíkinganna og skrifa nýjar Borgarnesræður gegn Davíð Oddssyni hafa í munni almennings hlotið ýmis heiti, eftir því sem smáfuglarnir hlera á kaffihúsum Reykjavíkur.

Ólafur Arnarson skrifar sem kunnugt samviskusamlega níð um Davíð í pistlum sínum á Pressunni á hverjum degi fyrir þá, sem greiða honum laun. Hann hefur hlotið nafnið Ólafur snillingur eftir að hann uppgötvaði að hverjum sem er stóðu til boða sams konar lán og forsvarsmenn eins bankans fengu úr sparisjóði einum úti á landi til að reisa sér sumarbústaði, tugmilljóna lán! Það þarf sannkallaðan snilling til að uppgötva þetta og óskandi að fleiri hefðu notið góðs af þeirri uppgötvun.

Ólafur Stephensen virðist hafa fengið sams konar heiti og forveri hans: Jón Ásgeir Stephensen, enda gætir hann þess vandlega að í Fréttablaðinu birtist lítið sem ekkert um alla þá furðulegu gerninga sem komist hefur upp um hjá Jóni Ásgeiri og þotuliði hans.

Bubbi Morthens er auðvitað kallaður Baugur Morthens eftir að hann (eða einhver í nafni hans) byrjaði að skrifa pistla á móti Davíð á Pressunni sem eru ekkert annað en bergmál af málflutningi annarra Baugspenna og Borgarnesræðumanna á liðnum árum.

Facebook
Einar Kárason

En spurningin er hvað á að kalla Einar Kárason sem hefur eins og Bubbi tekið að sér, væntanlega fyrir auðjöfrana og útrásarvíkingana, að kenna Davíð um hrunið en ekki þotu- og snekkjuliðinu með Jón Ásgeir í fararbroddi sem safnaði þúsund milljarða skuldum í bankakerfinu, rak skúffufyrirtæki, sem lánuðu hvert öðru á víxl og keyptu og seldu hlutabréf hvert í öðru, virtist eiga ávísanahefti á alla bankana og ekki þurfa að fara upp í Borgarnes til að hafa greiðan aðgang að stjórnmálamönnum, sérstaklega í Samfylkingunni (enda styrkti Baugur Samfylkinguna um tugmilljónir í aðdraganda bankahrunsins, eins og uppvíst varð).

Einn möguleiki væri að kalla hann Einar Garðar Hólm því að hann er eins og Garðar Hólm í Brekkukotsannáli í þjónustu peningavaldsins: Hann er til að hnýta slaufu á saltfiskinn, eins og Garðar Hólm. Og frá Einari heyra smáfuglarnir aðeins hinn óhreina tón, — eins og íbúar í Brekkukoti og annars staðar í hinum litla bæ í upphafi tuttugustu aldar heyrðu frá Garðari Hólm.

 
Meira fuglahvísl

Útflutt skyr ekki ríkisstyrkt

Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Lands­sambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlands­markaði.

Nýr sími fréttastofu RÚV

Smáfuglunum barst áríðandi tilkynning frá fréttastofu RÚV um nýtt símanúmer frétta­stjórnar. Í tilkynningu er breytingin sögð stytta boðleiðir og einfalda efnislega rit­stjórn. Nýtt símanúmer er 414-2200.

Kópavogsbúar anda léttar - bæjar­stjórn frá í þrjár vikur

Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjar­stjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjar­stjórnin sé ekki að störfum.

Nýr Jón Steinsson

Jón Steinsson, hag­fræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávar­útvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.

Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?

Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.

Leikhús eða sjúkrahús

Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.

Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana

Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...

Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna

Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX