Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Smáfuglarnir hafa leyft lesendum sínum að kynnast lofi Jóhanns Haukssonar um Steingrím J. Sigfússon. Jóhann tekur samantekt smáfuglanna ljúfmannlega á bloggi sínu 15. mars. Þakklæti sitt lætur hann meðal annars í ljós með þessum orðum:
„Annars hélt ég að AMX myndi fagna hástöfum ef ég hætti að skrifa.
Ég endurtek. Mér þykir mjög vænt um þennan mikla áhuga sem mér er sýndur á AMX og hefur þetta orðið mér hvatning til þess að halda áfram skrifum í þessa veru. Hver veit nema hvatningin dugi til þess að ég haldi áfram í blaðmennskunni.“
Broddurinn leynir sér ekki í þessum orðum Jóhanns. Hann er að hóta smáfuglunum því að halda áfram í blaðamennsku, fái hann ekki starfið hjá Steingrími J. Smáfuglarnir fagna aðeins samkeppni við Jóhann.
Á sparnaðartíma hlýtur Steingrímur J. að spyrja sig, þegar hann les þessi orð Jóhanns: Hvers vegna á ég að ráða Jóhann sem blaðafulltrúa á ríkislaunum, úr því að hann ætlar hvort sem að halda áfram að lofa mig og prísa á kostnað annarra?
Sigrún Davíðsdóttir uppvís að ósannindum?
Brynjar Níelsson, formaður Lögmannafélags Íslands, skrifaði fyrir skömmu pistil þar sem hann rakti hvernig Sigrún Davíðsdóttir, pistlahöfundur Ríkisútvarpsins og einn tíðasti gesturinn í Silfri Egils, var klappstýra útrásarinnar fyrir hrun og einn helsti gagnrýnandi útrásarvíkinganna eftir hrun. Sigrún sveiflaði sér fljótt og fimlega af einum vagninum á annan.
Sjálfsréttlæting útvarpsstjóra
Smáfuglarnir lásu aftur grein Páls Magnússonar sem birtist í Morgunblaðinu þar sem hann missir tökin og úthúðar ritstjóra blaðsins með slíkum ofstopa að ef greinin hefði komið frá einhverjum óþekktari einstaklingi hefði henni verið hafnað eða hugsanlega birt í dálknum „Bréf til blaðsins“. Smáfuglarn...
Smáfuglarnir eru hissa á því að helsti aðdáandi Evu Joly og sá sem tryggði (með dagskrárvaldi sínu) að hún kæmist á laun hins opinbera og fengi greiddar 325 þúsund krónur á dag í laun skuli nú þegja þunnu hljóði um nýjustu fréttir af Evu í heimspressunni. Sagt er frá því í fréttum að 51% Frakka telji að hún sé óheiðarleg og 78% að hún ráði ekki við starf sitt.
Smáfuglarnir sjá að væntanlegt er tímamótaverk eftir Hrannar B. Arnarsson, fyrrum eiganda Arnarson og Hjörvar sf. og núverandi aðstoðarmann Jóhönnu Sigurðardóttur. Á forsíðu bókarinnar má sjá nokkra af frösum sem vinstristjórnin notar og þá helst Jóhanna. Smáfuglarnir efast ekki um að bókin verð...
Smáfuglarnir lásu góða grein Bjarna Benediktssonar í Morgunblaðinu í morgun en þar svarar hann málefnalega dylgjum Hallgríms Helgasonar, sem seldi ómálað málverk á tugi milljóna þegar útrásin var í algleymingi, og Björns Ólafs Hallgrímssonar lögmanns. Um efni greinarinnar þarf ekki að fjölyrða en eitt hnutu smáfuglarnir um.
Smáfuglarnir lesa í fréttum að atvinnuþátttaka sé sú minnsta frá því mælingar hófust árið 1991. Þetta eru merkilegar fréttir í ljósi þess að aldrei hefur þörf fólks fyrir fé verið meiri og einmitt nú þegar heimilin hafa þolað mikla rýrnun eigna og skarpa hækkun verðlags umfram launahækkanir. Ef allt...
Smáfuglarnir sjá á orðfæri Jóhönnu að fáir eru hræddari við kosningar en leiðtogi Samfylkingarinnar. Hún segir við fjölmiðla þessa dagana að „íhaldinu megi ekki takast að reka fleig í ríkisstjórnina“ með landsdómsmálinu. Þannig skapar Jóhanna þá stöðu að vinstristjórnin verði að hanga saman á lyginni einni saman svo halda megi sjálfstæðismönnum frá ríkisstjórn.