amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Laugardagurinn 4. febrúar 2012 - 15:52
 
 
Fuglahvísl birtist 15. mars 2010 klukkan 14:43

Jóhann Hauksson á lokasprettinum í lengsta umsóknarferli sögunnar

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Jóhann Hauksson blaðamaður

Nú sér fyrir endann á einhverju lengsta umsóknarferli Íslandssögunnar. Jóhann Hauksson, blaðamaður á DV hefur sótt um starf fjölmiðlafulltrúa Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra. Smáfuglarnir eru á því að Jóhann sé vel að starfinu kominn eftir að hafa undirbúið umsóknina í mörg misseri. Þannig hefur að líkindum enginn gengið fram af meiri hörku að verja Icesave-samningana allt frá því að Svavar Gestsson skrifaði undir. Og fáir hafa meiri aðdáun á Steingrími J. Sigfússyni en Jóhann Hauksson, sem telur að fjármálaráðherra sé með „yfirburða reynslu og fullur visku“. Fyrir stjórnmálamenn er ekki ónýtt að hafa í vinnu fjölmiðlafulltrúa sem er fullur aðdáunar á yfirmanni sínum og er tilbúinn til að falla á sverðið í sjónvarpi, útvarpi og á ritvellinum.

Smáfuglarnir eiga ekki von á öðru en að Steingrímur J. Sigfússon gangi fljótt og vel frá ráðningu Jóhanns Haukssonar. Af þessu tilefni tóku smáfuglarnir sig til og rifja upp nokkur ummæli Jóhanns Haukssonar á dv.is um Icesave og fleira síðustu mánuði.

Heimskulegasta þjóðaratkvæðagreiðsla nutímasögunnar - 2. mars

„Ögmundur tekur þátt í þessari vitleysu og hefur nú staðfest að í landinu ríkir minnihlutastjórn. Ögmundur hefur tekið sér stöðu við hliðina á skoðanabróður sínum í Hádegismóum, með Sigmundi Davíð vini sínum og forsetanum sem væntanlega er á taugum vegna yfirvofandi niðurlægingar þjóðaratkvæðagreiðslu um ekki neitt ...

Eiga kjósendur að ganga út úr heimi röklegrar hugsunar og skynsemi og inn í Undraland Hádegismóa og Ögmundar og verða að athlægi heimsins fyrir heimatilbúna vitleysu um ávinning af heimskulegustu þjóðaratkvæðagreiðslu í nútímasögunni?“

Steinrunnin tregða 24. febrúar 2010

„Hvaða steinrunna tregða veldur því að framsóknarmenn gæla þrátt fyrir þetta við það að unnt sé að skrifa undir skuldaviðurkenningu án þess að veita með henni einhverjar ábyrgðir? Bókstaflega allt sem bankarnir íslensku gerðu eða létu ógert var með vitund vilja og samþykki íslenskra stjórnvalda. Á þeim grundvelli hvílir ábyrgð siðmenntaðrar þjóðar.“

Verið að bjarga andlitinu 22. febrúar 2010

„Icesave er nú notað sem „Facesave“ til að bjarga andliti forsetans, Sigmundar Davíðs og Bjarna Ben.

Í nýju samninganefndinni tala fulltrúar Sigmundar eins og Icesave séu einkaskuldir manna út í bæ og þjóðinni óviðkomandi. „Þið Bretar og Hollendingar: Viljið þið ekki bara hirða þrotabú Landsbankans og tala svo við okkur eftir 6 ár ef eitthvað stendur út af?“

Sætta sig við orðinn hlut 4. febrúar 2010

„Fyrr en síðar verða kjósendur og skattgreiðendur að sætta sig við orðinn hlut. Því fyrr sem það verður því meiri tími gefst til þess að huga að mikilvægum skilyrðum framleiðslunnar og innviðum félagskerfisins sem einnig getur bognað undan þunga bankahrunsins.“

Er þjóðin orðið viti sínu fjær? 27. janúar 2010

„Það er einnig í hæsta máta undarlegt að hefja beint lýðræði skyndilega til vegs um lánskjör í útlöndum en sniðganga fulltrúalýðræðið í leiðinni. Auðvitað er reynandi að semja um breytilega vexti í stað fastra 5,5 prósenta vaxta. En það er fráleitt að leggja í þjóðaratkvæðagreiðslu um það eitt.

Þjóðaratkvæðagreiðsla um vexti?

Er þjóðin orðið viti sínu fjær?“

Steingrímur er afburða ræðumaður 30. desember 2009

„Steingrímur J. Sigfússon er afburða ræðumaður. Hann sýndi það og sannaði í lokaumræðu um Icesave. Hann talaði ekki aðeins Sjálfstæðisflokkinn í kaf fyrir fólkið sem snúist hefur gegn honum í eigin flokki heldur sýndi hann þessum svokölluðu samherjum sínum – og sjálfstæðismönnum – hvað í því felst að vera ábyrgur og fullþroskaður einstaklingur ...

Gott að Icesave málinu er lokið.

Næst tekur við uppgjörið í tengslum við niðurstöður rannsóknarnefndar Alþingis.“

Þreytandi að hlusta á andstæðinga Icesave 10. desember 2009

„Það er ákaflega þreytandi að hlusta á vígreifa baráttumenn eins og Einar Má rithöfund og Ögmund stjórnmálamann taka undir með áróðursmaskínu hrunverja úr Sjálfstæðisflokknum um að þjóðinni beri ekki að ábyrgjast Icesave skuldirnar.“

Íslenska vænisýkin 5. október

„Íslendingur, sem segist ekki vilja borga Icesave, gleymir því að til dæmis þýsk stjórnvöld hafa enga ástæðu til þess að hlusta á harðlífisrembing eyjaskeggja sem kostað hafa nokkra þýska banka þúsund milljarða króna. Þetta eru skuldirnar og kröfurnar sem allir gleyma í rifrildinu um Icesave. Þjóðverjar og Hollendingar gleyma ekki þessum áföllum. Sumir hafa misst heimili sín, tapið hefur valdið skilnuðum og veikindum segir í orðsendingu frá talsmönnum kröfuhafa í Hollandi ...

Íslenska vænisýkin er mesta böl þjóðarinnar.“

Þarflaust að ræða Icesave 27. september 2009

„Í raun og veru er þarflaust að ræða Icesave og jafnvel hefði verið þarflaust að setja fyrirvara sem þjóðarsátt átti að nást um. Allir vita hvernig sú sátt endaði á Alþingi.

Þetta er þarflaust vegna þess að í meginatriðum hefur þjóðin fallist á að borga með samningi. Það gildir sem Guðmundur Ólafsson hagfræðingur sagði um þetta á dögunum: „Komi upp sú staða að þjóðin geti ekki borgað, þá borgar hún ekki.“ Og þá verður sest niður og samið um framhaldið. Þannig er þetta.“

Ögmundur kostar 700 milljarða 26. september 2009

„Andstaða Ögmundar Jónassonar innan ríkisstjórnarinnar við Icesave samninginn mun kosta íslensku þjóðina aðra 700 milljarða króna umfram Icesave skuldina. Heill ársfjórðungur fór í að kaupa stuðning hans á þingi við samning ríkisstjórnarinnar um Icesave.“

Steingrímur er fullur visku 11. júní 2009

„En Steingrímur er óbugaður, stendur ósár en nokkuð móður eftir eina þá erfiðustu eldskírn sem nokkur stjórnmálamaður getur fengið: að verða fjármálaráðherra í kjölfar umfangsmesta efnahagshruns sem yfir þróaða velferðarþjóð hefur dunið ...

Steingrímur er með öðrum orðum stjórnmálaforingi með yfirburða reynslu og fullur visku. Hann þarf að miðla þeirri visku og reynslu til flokksmanna sinna á þingi, sem margir hverjir eru fljótir að læra.“

 
Meira fuglahvísl

Sigrún Davíðs­dóttir uppvís að ósannindum?

Brynjar Níelsson, formaður Lögmanna­félags Íslands, skrifaði fyrir skömmu pistil þar sem hann rakti hvernig Sigrún Davíðs­dóttir, pistlahöfundur Ríkisútvarpsins og einn tíðasti gesturinn í Silfri Egils, var klappstýra útrásarinnar fyrir hrun og einn helsti gagnrýnandi útrásarvíkinganna eftir hrun. Sigrún sveiflaði sér fljótt og fimlega af einum vagninum á annan.

Postularnir tólf hjá Agli

Viðskiptablaðið birti 29. janúar 2012 mjög fróðlegt yfirlit yfir viðmælendur í Silfri Egils frá hruninu haustið 2008. Þar sést hverjir eru tíðustu gestirnir (í sviga hversu oft þeir komu þar fram). Þetta eru tólf postular: 1. Ólafur Arnarson (13), óyfirlýstur blaðafulltrúi Pálma í Fons, sem b...

Sjálfsréttlæting útvarps­stjóra

Smáfuglarnir lásu aftur grein Páls Magnússonar sem birtist í Morgunblaðinu þar sem hann missir tökin og úthúðar rit­stjóra blaðsins með slíkum ofstopa að ef greinin hefði komið frá einhverjum óþekktari einstaklingi hefði henni verið hafnað eða hugsanlega birt í dálknum „Bréf til blaðsins“. Smáfuglarn...

Þögn Egils um Evu Joly

Smáfuglarnir eru hissa á því að helsti aðdáandi Evu Joly og sá sem tryggði (með dagskrárvaldi sínu) að hún kæmist á laun hins opinbera og fengi greiddar 325 þúsund krónur á dag í laun skuli nú þegja þunnu hljóði um nýjustu fréttir af Evu í heimspressunni. Sagt er frá því í fréttum að 51% Frakka telji að hún sé óheiðarleg og 78% að hún ráði ekki við starf sitt.

Frasabók Hrannars B.

Smáfuglarnir sjá að væntanlegt er tímamótaverk eftir Hrannar B. Arnarsson, fyrrum eiganda Arnarson og Hjörvar sf. og núverandi aðstoðar­mann Jóhönnu Sigurðardóttur. Á forsíðu bókarinnar má sjá nokkra af frösum sem vinstri­stjórnin notar og þá helst Jóhanna. Smáfuglarnir efast ekki um að bókin verð...

Nýr Bjarni Ben

Smáfuglarnir lásu góða grein Bjarna Benediktssonar í Morgunblaðinu í morgun en þar svarar hann málefnalega dylgjum Hallgríms Helgasonar, sem seldi ómálað málverk á tugi milljóna þegar útrásin var í algleymingi, og Björns Ólafs Hallgrímssonar lögmanns. Um efni greinarinnar þarf ekki að fjölyrða en eitt hnutu smáfuglarnir um.

Atvinnuþátttaka aldrei minni

Smáfuglarnir lesa í fréttum að atvinnuþátttaka sé sú minnsta frá því mælingar hófust árið 1991. Þetta eru merkilegar fréttir í ljósi þess að aldrei hefur þörf fólks fyrir fé verið meiri og einmitt nú þegar heimilin hafa þolað mikla rýrnun eigna og skarpa hækkun verðlags umfram launahækkanir. Ef allt...

Jóhanna hrædd við kosningar

Smáfuglarnir sjá á orðfæri Jóhönnu að fáir eru hræddari við kosningar en leiðtogi Samfylkingar­innar. Hún segir við fjölmiðla þessa dagana að „íhaldinu megi ekki takast að reka fleig í ríkis­stjórnina“ með landsdómsmálinu. Þannig skapar Jóhanna þá stöðu að vinstri­stjórnin verði að hanga saman á lyginni einni saman svo halda megi sjálfstæðis­mönnum frá ríkis­stjórn.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX