amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Laugardagurinn 31. júlí 2010 - 08:19
 
 
Fuglahvísl birtist 12. mars 2010 klukkan 11:50

Hótun Jóhannesar í Bónus gegn Lilju marklaus

 
 
 
Um fuglahvísl

Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.



Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Smáfuglarnir lesa á Pressunni 12. mars:

„Lilja Mósesdóttir, formaður viðskiptanefndar, hefur svarað bréfi Jóhannesar í Bónus til þingmanna og segist ekki skilja að hann upplifi sig fórnarlamb “pólitískra ofsókna„ nema því aðeins að hann hafi stöðu grunaðs manns. Og grunaðir menn eigi ekki að eignast fyrirtæki að aflokinni fjárhagslegri endurskipulagningu.“

Jóhannes í Bónus reyndi að þagga niður í þeim alþingismönnum, sem hann taldi, að væru að gagnrýna, að til greina kæmi, að hann fengi að halda áfram að reka verslanir Arion-banka, sem áður voru í eigu hins gjaldþrota Baugs. Skrifaði hann Lilju Mósesdóttur, þingmanni VG, skammarbréf af því tilefni. Lilja hefur nú svarað Jóhannesi. Hún segir hann ekki geta tekið orð hennar til sín, nema Jóhannes hafi réttarstöðu grunaðs manns.

Smáfuglarnir velta fyrir sér, hvort svo sé komið fyrir Jóhannesi? Hinn sérstaki saksóknari hefur ekki viljað senda frá sér neinar upplýsingar um, hverja hann telur í hópi sakborninga í málum til rannsóknar hjá því embætti.

Jóhannes er vanur að bregðast við öllum, sem ekki beygja sig í duftið fyrir honum, með hótunum. Bréf hans til Lilju er til marks um það. Smáfuglarnir velta fyrir sér, hverju Jóhannes hefur hótað Arion banka.

 
Meira fuglahvísl

Jóhann Hauksson á launum hjá Baugi Group

Jóhann Hauksson hefur í gegnum árin verið harðasti stuðningsmaður Baugsklíkunnar og gengið lengra en flestir í að verja þá í daglegri umræðu fjölmiðla. Jóhann var með útvarpsþáttinn Morgunhaninn á Útvarpi Sögu þar sem hann hélt uppteknum hætti og varði Baugsmenn. Nú hefur komið í ljós að Baugur Group kostaði þáttinn og greiddi laun til Jóhanns.

Þorvaldur talar við Mel Brooks

Þorvaldur Gylfason upplýsti í dag í hinni vikulegu grein sinni í málgagni Baugsfeðga að hann hefði nýlega hitt Mel Brooks í búð og gefið sig á tal við hann. Smáfuglarnir hleruðu samtalið: Stranger: „Hello, Mr. Books! I am Þorvaldur Gylfason, an Icelandic economist. I saw your play last night and I thought it was very good.“ Mel (grinning): „An Icelandic economist?“

Ætlar ríkis­stjórn sem er á móti Magma inn í ESB?

Smáfuglarnir tóku eftir því að í ályktun Heimdallar frá því í dag er bent á að hefði Magma Energy verið fyrirtæki frá ESB ríki og ef Ísland væri í ESB væri ekkert sem ríkið hefði getað gert til að hindra viðskiptin. Innan ESB geta allir fjárfest þvert yfir landamæri.

Heimdallur: Væri málið í reynd eitthvað öðruvísi ef móður­félagið væri frá aðildarríki ESB heldur en Kanada?

Smáfuglunum barst ályktun stjórnar Heimdallar, félags ungra sjálfstæðis­manna í Reykjavík. Ályktunin skýtur föstum skotum að vinstri­stjórninni sem Heimdallur segir óstarfhæfa. Smáfuglarnir telja rétt að birta ályktunina í heild sinni. Heimdallur, félag ungra sjálfstæðis­manna í Reykjavík, gagnrýnir harðlega fórnarkostnaðinn við að halda óstarfhæfri ríkis­stjórn gangandi.

Tími Runólfs kom með Jóhönnu, jafnréttis­ráðherra

Smáfuglarnir biðja lesendur sína að velta fyrir sér, hvernig Jóhanna Sigurðar­dóttir hefði látið í stjórnar­andstöðu, ef yfirlýstur, stórskuldugur, karlkyns sjálfstæðis­maður hefði verið ráðinn umboðsmaður skuldara og gengið hefði verið fram hjá konu, sem veitt hefði skuldurum ráðgjöf á farsælan hátt, árum saman.

Egill gagnrýnir Sigurjón Þ. Árnason fyrir holdafar

Smáfuglarnir sjá að Egill Helgason telur að Björgólfur Thor noti Sigurjón Þ. Árnason sem blóraböggul en Björgólfur sagði margt Sigurjóni að kenna í viðtali við Viðskiptablaðið. Það sem vakti athygli smáfuglanna var áhugaverð greining Egils á Sigurjóni. Egill segir á vefsíðu sinni: Sigurjón Þ....

Sendiherra ESB leiðréttir Eirík Bergmann - EES ekki í hættu

Smáfuglarnir sögðu frá því fyrir stuttu að Eiríkur Bergmann, sér­fræðingur í ESB aðild, hefði sagt EES samstarfið í uppnámi ef ESB umsókn yrði dregin til baka. Eins og með annað sem ekki er rétt var þessi skoðun Eiríks leiðrétt.

Tengsl Elíasar Jóns og Þórðar Snæs

Margir hafa velt fyrir sér hvernig tengslum spunameistara vinstri­stjórnar­innar sé háttað.

 
 
©2010 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX