amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 19:38
 
 
Fuglahvísl birtist 12. mars 2010 klukkan 11:38

Steingrímur J. þreyttur á eigin kjaftæði?

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Smáfuglarnir taka eftir því, að Steingrímur J. er sífellt að barma sér. Hann spurði erlenda blaðamenn, hvort þeir vissu um einhvern, sem vildi taka við starfinu af sér. Þetta sagði hann til að benda þeim á, hve ofurmannleg raun væri að gegna fjármálaráðherraembættinu. Þeir, sem vilja tala sig í mjúkinn hjá Steingrími J. gera það best með því að tala um, hvað hann leggi ofboðslega hart að sér. Kolbrún Halldórsdóttir, forseti Bandalags íslenskra listamanna, tók eina slíka syrpu í úvarpsviðtali á dögunum og sagði Steingrím J. að puða í 18 tíma á sólarhring.

Ed
Steingrímur J. Sigfússon á blaðamannafundi 1. febrúar 2009.

Smáfuglarnir velta því fyrir sér, hvort ekki væri betra að Steingrímur J. færi sér hægar og vandaði sig meira. Hann hefði til dæmis ekki farið af stað með Icesave í þinginu, án þess að tryggja sér fyrst stuðning samflokksmanna við málið.

12. mars segist Steingrímur J. á fundi um atvinnumál vera orðinn þreyttur á því kjaftæði, að ríkisstjórnin sé ekkert að gera, Smáfuglarnir telja, að enginn hafi kjaftað meira um það en Steingrímur J., að ríkisstjórnin gæti ekkert gert, af því að Icesave væri ekki að baki. Hve oft hefur Steingrímur J. sagt síðan 5. júní 2009, að nú verði að ljúka Icesave fyrir næstu helgi eða um helgina? Ríkisstjórnin geti ekkert gert nema Icesave-kjaftæðinu ljúki. Því er ekki lokið enn og ríkisstjórnin sér enga leið til að ljúka því.

Smáfuglarnir vona, að Steingrímur J. sé að vísa til eigin kjaftæðis, þegar hann segist vera orðinn þreyttur. Smáfuglunum finnst sjálfsagt, að Steingrímur J. hætti að kjafta, hætti að barma sér í sífellu og hætti sem ráðherra.

 
Meira fuglahvísl

Útflutt skyr ekki ríkisstyrkt

Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Lands­sambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlands­markaði.

Nýr sími fréttastofu RÚV

Smáfuglunum barst áríðandi tilkynning frá fréttastofu RÚV um nýtt símanúmer frétta­stjórnar. Í tilkynningu er breytingin sögð stytta boðleiðir og einfalda efnislega rit­stjórn. Nýtt símanúmer er 414-2200.

Kópavogsbúar anda léttar - bæjar­stjórn frá í þrjár vikur

Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjar­stjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjar­stjórnin sé ekki að störfum.

Nýr Jón Steinsson

Jón Steinsson, hag­fræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávar­útvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.

Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?

Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.

Leikhús eða sjúkrahús

Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.

Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana

Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...

Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna

Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX