amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Fimmtudagurinn 9. febrúar 2012 - 01:19
 
 
Fuglahvísl birtist 12. mars 2010 klukkan 11:06

Étt-ann-sjálfur Steingrímur J. stillir mönnum upp við vegg

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Smáfuglarnir lesa á mbl.is 12. mars:

Alcan á Íslandi
Álverið í Straumsvík

„Ég er orðinn þreyttur á þessu kjaftæði að ríkisstjórnin sé ekkert að gera,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, á fundi Samtaka atvinnulífsins um atvinnumál og vísaði þar m.a. til þeirrar gagnrýni sem forsvarsmenn í atvinnulífinu hefðu sett fram á Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra og VG fyrir ákvarðanir og áherslur í tengslum við Suðvesturlínu og aðrar stórframkvæmdir.

Sagði Steingrímur að framgangur margra þeirra sem hefðu gagnrýnt Svandísi og VG vera þeim til skammar. Bað hann þá hina sömu að biðja Svandísi afsökunar....

Steingrímur og bað nokkra menn að standa upp í salnum sem hefðu gagnrýnt stjórnvöld. Benti hann þá á Helga Magnússon, formann Samtaka iðnaðarins, sem stóð upp: „Helgi er hár og myndarlegur maður en hann mætti stundum gæta orða sinna, eins og að saka einn stjórnarmann um að vera á móti hagvexti,“ sagði Steingrímur.“

Smáfuglarnir telja einsdæmi, að ráðherra knýi menn til að standa upp á fundi til að geta ráðist að þeim persónulega. Þessir taktar eru þó ekki nýir hjá Steingrími J.. Hann hefur ögrað þingmönnum í ræðupúltinu við Austurvöll, hafi þeir sagt eitthvað, sem honum mislíkar. Öskrar hann þá gjarnan „Étt'ann sjálfur“ að ræðumanni - eitt sinn gekk hann að Geir H. Haarde, þar sem hann sat í stól forsætisráðherra í þingsal og lagði á hann hendur.

Steingrímur J, hefur örugglega hótað að beita þessari aðferð á flokksráðsfundi VG á Akureyri á dögunum, þegar menn þorðu ekki að ræða Icesave-samninga þeirra Steingríms J. og Svavars.

Nú eiga þeir, sem eru ósammála aðgerðarleysi og niðurrifi Svandísar Svavarsdóttur að biðja hana afsökunar, til að hljóta náð fyrir augum Steingríms J. Hvenær skyldi hann fara þess á leit, að menn biðji Svavar, föður Svandísar, afsökunar vegna þess, sem sagt hefur verið um Icesave-samninga hans?

Smáfuglarnir eru þeirrar skoðunar, að snúa eigi þessu afsökunardæmi við: Svandís og Svavar biðji þjóðina afsökunar á axarsköftum sínum.

 
Meira fuglahvísl

Útflutt skyr ekki ríkisstyrkt

Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Lands­sambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlands­markaði.

Nýr sími fréttastofu RÚV

Smáfuglunum barst áríðandi tilkynning frá fréttastofu RÚV um nýtt símanúmer frétta­stjórnar. Í tilkynningu er breytingin sögð stytta boðleiðir og einfalda efnislega rit­stjórn. Nýtt símanúmer er 414-2200.

Kópavogsbúar anda léttar - bæjar­stjórn frá í þrjár vikur

Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjar­stjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjar­stjórnin sé ekki að störfum.

Nýr Jón Steinsson

Jón Steinsson, hag­fræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávar­útvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.

Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?

Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.

Leikhús eða sjúkrahús

Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.

Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana

Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...

Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna

Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX