Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Smáfuglarnir lesa á ruv.is um blaðamannafund að loknum utanríkisráðherrafundi Norðurlanda í Kaupmannahöfn 11. mars:

„Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, hafnaði því að Norðurlöndin hefðu látið Breta og Hollendinga ráða för til þess að þvinga Íslendinga til vafasams samkomulags um Icesave. Margir milljarðar af skattfé hefðu verið lagðir í að hjálpa Íslendingum fyrir utan aðra alþjóðlega aðstoð sem Íslendingar hefðu fengið. Þó að Norðurlöndin hafi látið mikið af hendi rakna dugi það ekki. Önnur ríki verði einnig að hjálpa til og skilyrði fyrir því sé að önnur deilumál séu. Þar komi norræna samstarfið ekki að gagni.“
Smáfuglarnir sjá ekki betur af þessari endursögn á orðum Bildts en hann hafi ekki hugmynd um hvað Icesave-málið og gagnrýni Íslendinga á Norðurlöndin snýst. Hann talar þarna út í hött og er hann þó sá utanríkisráðherra, sem Össur Skarphéðinsson hefur hitt oftast undanfarna mánuði.
Össur verður að gera þjóðinni grein fyrir því, hvað hann hefur sagt við Bildt, úr því að sænski utanríkisráðherrann talar á þennan veg um Icesave-málið og hlut Norðurlandanna.
Smáfuglarnir telja raunar líklegast, að Össur hafi klappað og kjassað Bildt og þakkað honum fyrir þá vinsemd hans að taka tvisvar sinnum á móti umsóknarbréfi frá Íslandi um aðild að Evrópusambandinu. Sjá mynd, þegar Össur afhendir bréfið öðru sinni og Guðmundur Árni sendiherra stendur sigurbrosandi álengdar. Hvað skyldi sendiherrann hafa sagt sænskum stjórnvöldum? Bæði sænski utanríkisráðherrann og fjármálaráðherrann eru skuggalega illa upplýstir.
Nú kemur í ljós, að ekkert var að marka orð Bildts um ofurhraða á umsókn Íslands. Enn er allt í óvissu um, hvenær leiðtogaráð ESB-ríkjanna tekur umsókn Íslands og álit framkvæmdastjórnar ESB á henni til afgreiðslu. Í Brussel fjölgar þeim, sem segja enga ástæðu til að afgreiða málið, þar sem íslenska ríkisstjórnin hafi ekki vald á því heima fyrir. Auk þess hafi þjóðin hafnað gjörðum hennar rækilega í Icesave-atkvæðagreiðslunni.
Össur hafði ekki dug í sér á blaðamannafundi utanríkisráðherra til að leiðrétta Bildt og sjá til þess, að skýra málstað Íslands.
Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Landssambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlandsmarkaði.
Kópavogsbúar anda léttar - bæjarstjórn frá í þrjár vikur
Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjarstjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjarstjórnin sé ekki að störfum.
Jón Steinsson, hagfræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávarútvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.
Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?
Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.
Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.
Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana
Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...
Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna
Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.