amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Laugardagurinn 31. júlí 2010 - 08:18
 
 
Fuglahvísl birtist 11. mars 2010 klukkan 14:11

Össur hvass í SvD en lítið mark á honum tekið

 
 
 
Um fuglahvísl

Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.



Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Foreign and Commonwealth Office
Össur Skarphéðinsson á fundi með David Miliband, utanríkisráðherra Breta.

Svenska Dagbladet (SvD) segir frá því 11. mars, að Össur Skarphéðinsson sé reiður Anders Borg, fjármálaráðherra Svía, fyrir að segja Íslendinga ekki geta losað sig undan alþjóðaskuldbindingum með þjóðaratkvæðagreiðslu og láta eins og sænska ríkisstjórnin hafi gert það, sem hún gæti, til að aðstoða Íslendinga.

Sænski blaðamaðurinn segir, að sé Össur reiður Borg sé hann enn reiðari starfsbróður sínum í Hollandi, Maxime Verhagen, utanríkisráðherra. Sá hafi gerst sekur um þá ósvinnu að blanda saman Icesave-málinu og aðildarumsókn Íslendinga að Evrópusambandinu. Slíkt skemmdarverk stuðli ekki að nýju samkomulagi. Hótun hollenska ráðherrans þjóni ekki hagsmunum hollenskra skattgreiðenda, því að ESB-aðild auki efnahagslegar líkur á því, að Íslendingar geti staðið í skilum.

Af skrifum sænska blaðamannsins verður ráðið, að honum finnst ekki mikið til þessara raka Össurar koma, því að íslenska ríkisstjórnin sé sundruð í afstöðu sinni til ESB-aðildar auk þess standi ESB-vinir, eins og Össur, frammi fyrir þeirri staðreynd, að kannanir sýni 60 til 70% Íslendinga andvíga aðild.

 
Meira fuglahvísl

Jóhann Hauksson á launum hjá Baugi Group

Jóhann Hauksson hefur í gegnum árin verið harðasti stuðningsmaður Baugsklíkunnar og gengið lengra en flestir í að verja þá í daglegri umræðu fjölmiðla. Jóhann var með útvarpsþáttinn Morgunhaninn á Útvarpi Sögu þar sem hann hélt uppteknum hætti og varði Baugsmenn. Nú hefur komið í ljós að Baugur Group kostaði þáttinn og greiddi laun til Jóhanns.

Þorvaldur talar við Mel Brooks

Þorvaldur Gylfason upplýsti í dag í hinni vikulegu grein sinni í málgagni Baugsfeðga að hann hefði nýlega hitt Mel Brooks í búð og gefið sig á tal við hann. Smáfuglarnir hleruðu samtalið: Stranger: „Hello, Mr. Books! I am Þorvaldur Gylfason, an Icelandic economist. I saw your play last night and I thought it was very good.“ Mel (grinning): „An Icelandic economist?“

Ætlar ríkis­stjórn sem er á móti Magma inn í ESB?

Smáfuglarnir tóku eftir því að í ályktun Heimdallar frá því í dag er bent á að hefði Magma Energy verið fyrirtæki frá ESB ríki og ef Ísland væri í ESB væri ekkert sem ríkið hefði getað gert til að hindra viðskiptin. Innan ESB geta allir fjárfest þvert yfir landamæri.

Heimdallur: Væri málið í reynd eitthvað öðruvísi ef móður­félagið væri frá aðildarríki ESB heldur en Kanada?

Smáfuglunum barst ályktun stjórnar Heimdallar, félags ungra sjálfstæðis­manna í Reykjavík. Ályktunin skýtur föstum skotum að vinstri­stjórninni sem Heimdallur segir óstarfhæfa. Smáfuglarnir telja rétt að birta ályktunina í heild sinni. Heimdallur, félag ungra sjálfstæðis­manna í Reykjavík, gagnrýnir harðlega fórnarkostnaðinn við að halda óstarfhæfri ríkis­stjórn gangandi.

Tími Runólfs kom með Jóhönnu, jafnréttis­ráðherra

Smáfuglarnir biðja lesendur sína að velta fyrir sér, hvernig Jóhanna Sigurðar­dóttir hefði látið í stjórnar­andstöðu, ef yfirlýstur, stórskuldugur, karlkyns sjálfstæðis­maður hefði verið ráðinn umboðsmaður skuldara og gengið hefði verið fram hjá konu, sem veitt hefði skuldurum ráðgjöf á farsælan hátt, árum saman.

Egill gagnrýnir Sigurjón Þ. Árnason fyrir holdafar

Smáfuglarnir sjá að Egill Helgason telur að Björgólfur Thor noti Sigurjón Þ. Árnason sem blóraböggul en Björgólfur sagði margt Sigurjóni að kenna í viðtali við Viðskiptablaðið. Það sem vakti athygli smáfuglanna var áhugaverð greining Egils á Sigurjóni. Egill segir á vefsíðu sinni: Sigurjón Þ....

Sendiherra ESB leiðréttir Eirík Bergmann - EES ekki í hættu

Smáfuglarnir sögðu frá því fyrir stuttu að Eiríkur Bergmann, sér­fræðingur í ESB aðild, hefði sagt EES samstarfið í uppnámi ef ESB umsókn yrði dregin til baka. Eins og með annað sem ekki er rétt var þessi skoðun Eiríks leiðrétt.

Tengsl Elíasar Jóns og Þórðar Snæs

Margir hafa velt fyrir sér hvernig tengslum spunameistara vinstri­stjórnar­innar sé háttað.

 
 
©2010 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX