Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.


Smáfuglunum brá nokkuð, þegar rætt var við Magnús Orra Schram þingmann Samfylkingar, í hádegisfréttatíma RÚV 11. mars, um skilyrði þess, að hann styddi ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Nefndi hann 5 skilyrði og sagði, að tafarlaust yrði að leysa Icesave-deiluna, það væri númer eitt. Hin skilyrðin eru líka gamalkunn:
,,Halda áfram efnahagsuppbyggingunni í samstarfi við AGS, styrkja úrræði fyrir skuldug heimili, koma atvinnulífinu af stað og að laga útgjöld ríkisins að tekjum þess hvað sem það kostar.„
Hvers vegna brá smáfuglunum? Í fyrsta lagi vegna þess að nú fyrst sé Magnús Orri að átta sig á því, að ekkert af loforðum ríkisstjórnarinnar við myndun hennar gengur eftir. Í öðru lagi vegna þess að Magnús Orri nefndi ekki aðild að ESB sem eitt af skilyrðunum. Í þriðja lagi vegna þess að smáfuglarnir vissu ekki að breyting yrði á ráðherraliði Samfylkingarinnar.
Smáfuglarnir eru þeirrar skoðunar, að leið Jóhönnu til að „þétta raðir“ ríkisstjórnarinnar sé að taka þá í stjórnina, sem skilyrða stuðning sinn við hana. Þetta á að minnsta kosti við um Ögmund - hvers vegna ekki líka um Magnús Orra?
Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?
Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.
Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.
Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana
Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...
Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna
Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.
Í janúar 2009 birtu smáfuglarnir myndband sem sett hafði verið á YouTube þar sem sá veruleiki hafði verið búinn til að Ísland inni til sigurs á handboltamóti en í erlendum fréttum kæmi ESB til með að eigna sér sigurinn og segja hann „sigur ESB á mótinu“. Smáfuglunum bárust nokkur bréf þar sem myn...
Smáfuglunum þótti ámátlegt að hlusta á Egil Helgason í bókmenntaþætti sínum Kiljunni grátbiðja álitsgjafa sína, Pál Baldvin Baldvinsson og Kolbrúnu Bergþórsdóttur, að gefa bók stjúpmóður sinnar, Sigrúnar Davíðsdóttur, jákvæða umsögn. En þau Páll Baldvin og Kolbrún hökkuðu í sig bók Sigrúnar, sem þykir afspyrnu vond skáldsaga.
Enn eitt dæmið um hlutdrægni RÚV
Skafti Harðarson rakti nýlega í fróðlegum pistli hvernig pistlahöfundar RÚV nota tækifærið þegar þeir segja frá atburðum erlendis að koma að áróðri um innanlandsmál.