amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Laugardagurinn 4. febrúar 2012 - 15:47
 
 
Fuglahvísl birtist 11. mars 2010 klukkan 12:26

Reynir Traustason skuldar Hreini Loftssyni milljónir

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Bæjarins Besta á Ísafirði
Reynir Traustason, ritstjóri DV.

Smáfuglarnir lásu frétt Viðskiptablaðsins um félög Hreins Loftssonar af athygli í morgun. Þar kemur fram að gríðarlegt tap hafi verið á félögum í eigu hæstaréttarlögmannsins og fyrrverandi stjórnarformanns Baugs Group, sem nú er gjaldþrota. Hreinn er eigandi DV og nokkurra tímarita en samkvæmt frétt Viðskiptablaðsins uppsker sá góði maður ekki eins og til er ætlast í rekstri. Milljarður í tap segir Viðskiptablaðið.

Það sem vakti sérstaka athygli smáfuglanna er að félag Hreins Loftssonar hafi veitt lán til RT og ER. Viðskiptablaðið segir að þessar skammstafanir séu ekki útskýrðar í ársreikningum. Hér fer Viðskiptablaðið eins og köttur í kringum heitan graut. Svo vill til að smáfuglarnir hafa ársreikninga félaga Hreins Loftssonar undir höndum og hafa raunar vitnað í þá áður.

Augljóst er að RT er Reynir Traustason ritstjóri DV en samkvæmt reikningum skuldar hann Hreini fimm milljónir króna. Það getur verið skynsamlegt af útgefanda að gera ritstjóra fjárhagslega háðan en það er jafn óskynsamlegt af ritstjóra að eiga fjárhagslega eitthvað undir einhverjum. Vegna þessa telja smáfuglarnir nauðsynlegt að skoða skrif Reynis. Skuldastaða RT skýrir afhverju ritstjórinn er tilbúinn til að gangast í lagalega ábyrgð þegar útgefandinn vill koma höggi á einstaklinga með skrifum undir „hatti“ Sandkorns.

ER er auðvitað Elín Ragnarsdóttir sem var framkvæmdastjóri Birtings og að líkindum er skuld hennar tilkomin vegna hlutabréfakaupa sem ætlað var að gefa til kynna að eignarhald á útgáfufélagi Hreins Loftssonar væri breiðara en raunverulega. Elín hætti sem framkvæmdastjóri í september sl. þegar Sverrir Arngrímsson tók við starfinu en hann er gamall trúnaðarmaður Hreins. Um leið lét Ásmundur Helgason, eiginmaður Elínar, af störfum sem markaðs- og sölustjóri Birtings, útgáfufélags DV og nokkurra tímarita Hreins.

Skuld Elínar hefur örugglega verið gerð upp og hlutabréf hennar keypt. Eftir stendur skuld Reynis Traustasonar.

Smáfuglarnir telja rétt að Reynir Traustason geri opinberlega grein fyrir því hvort og þá hversu mikið hann skuldar Hreini Loftssyni. Ekki væri verra að hann tæki fram á hvaða kjörum lánið frá Hreini er (eða var), vextir, verðbætur og fleira. Ekki getur verið um vaxtalaust lán að ræða enda væri um skattskyld hlunnindi að ræða.

 
Meira fuglahvísl

Sigrún Davíðs­dóttir uppvís að ósannindum?

Brynjar Níelsson, formaður Lögmanna­félags Íslands, skrifaði fyrir skömmu pistil þar sem hann rakti hvernig Sigrún Davíðs­dóttir, pistlahöfundur Ríkisútvarpsins og einn tíðasti gesturinn í Silfri Egils, var klappstýra útrásarinnar fyrir hrun og einn helsti gagnrýnandi útrásarvíkinganna eftir hrun. Sigrún sveiflaði sér fljótt og fimlega af einum vagninum á annan.

Postularnir tólf hjá Agli

Viðskiptablaðið birti 29. janúar 2012 mjög fróðlegt yfirlit yfir viðmælendur í Silfri Egils frá hruninu haustið 2008. Þar sést hverjir eru tíðustu gestirnir (í sviga hversu oft þeir komu þar fram). Þetta eru tólf postular: 1. Ólafur Arnarson (13), óyfirlýstur blaðafulltrúi Pálma í Fons, sem b...

Sjálfsréttlæting útvarps­stjóra

Smáfuglarnir lásu aftur grein Páls Magnússonar sem birtist í Morgunblaðinu þar sem hann missir tökin og úthúðar rit­stjóra blaðsins með slíkum ofstopa að ef greinin hefði komið frá einhverjum óþekktari einstaklingi hefði henni verið hafnað eða hugsanlega birt í dálknum „Bréf til blaðsins“. Smáfuglarn...

Þögn Egils um Evu Joly

Smáfuglarnir eru hissa á því að helsti aðdáandi Evu Joly og sá sem tryggði (með dagskrárvaldi sínu) að hún kæmist á laun hins opinbera og fengi greiddar 325 þúsund krónur á dag í laun skuli nú þegja þunnu hljóði um nýjustu fréttir af Evu í heimspressunni. Sagt er frá því í fréttum að 51% Frakka telji að hún sé óheiðarleg og 78% að hún ráði ekki við starf sitt.

Frasabók Hrannars B.

Smáfuglarnir sjá að væntanlegt er tímamótaverk eftir Hrannar B. Arnarsson, fyrrum eiganda Arnarson og Hjörvar sf. og núverandi aðstoðar­mann Jóhönnu Sigurðardóttur. Á forsíðu bókarinnar má sjá nokkra af frösum sem vinstri­stjórnin notar og þá helst Jóhanna. Smáfuglarnir efast ekki um að bókin verð...

Nýr Bjarni Ben

Smáfuglarnir lásu góða grein Bjarna Benediktssonar í Morgunblaðinu í morgun en þar svarar hann málefnalega dylgjum Hallgríms Helgasonar, sem seldi ómálað málverk á tugi milljóna þegar útrásin var í algleymingi, og Björns Ólafs Hallgrímssonar lögmanns. Um efni greinarinnar þarf ekki að fjölyrða en eitt hnutu smáfuglarnir um.

Atvinnuþátttaka aldrei minni

Smáfuglarnir lesa í fréttum að atvinnuþátttaka sé sú minnsta frá því mælingar hófust árið 1991. Þetta eru merkilegar fréttir í ljósi þess að aldrei hefur þörf fólks fyrir fé verið meiri og einmitt nú þegar heimilin hafa þolað mikla rýrnun eigna og skarpa hækkun verðlags umfram launahækkanir. Ef allt...

Jóhanna hrædd við kosningar

Smáfuglarnir sjá á orðfæri Jóhönnu að fáir eru hræddari við kosningar en leiðtogi Samfylkingar­innar. Hún segir við fjölmiðla þessa dagana að „íhaldinu megi ekki takast að reka fleig í ríkis­stjórnina“ með landsdómsmálinu. Þannig skapar Jóhanna þá stöðu að vinstri­stjórnin verði að hanga saman á lyginni einni saman svo halda megi sjálfstæðis­mönnum frá ríkis­stjórn.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX