Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Föstudaginn 5. mars, daginn fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna, ræddi Helgi Seljan við Steingrím J. Sigfússon í Kastljósi. Helgi spurði meðal annars að því, hvort höfnun Icesave-laganna myndi ekki veikja ríkisstjórnina. Steingrímur J. svaraði:
„Ja, ég tel að megi segja að það hafi veikt ríkisstjórnina að hafa ekki náð að klára þetta [Icesave]mál fyrir löngu og vera komin lengra áfram með endurreisn hagkerfisins. Og það má ekki dragast mikið úr þessu. Og það mun veikja okkur mjög ef við finnum ekki lausn á þessu innan fárra mánaða. En ég eða ríkisstjórnin skipta ekki máli hér. Það er Ísland og staða þess og að við komumst áfram með endurreisn og enduruppbyggingu hér í landinu, getum barist gegn atvinnuleysi, komið hjólum atvinnulífsins í gang o.s.frv. Það er það sem skiptir máli. Við eigum að vera nógu stór til þess að setja okkur sjálf til hliðar, stjórnmálamennirnir, og það er ég tilbúinn til að gera.“
Smáfuglarnir vekja athygli á því, að eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna skiptir ríkisstjórnin, Jóhanna og Steingrímur J. öllu máli, að mati ríkisstjórnarinnar. Nú er segja þau, að það verði bara að styrkja ríkisstjórnina, „þétta raðirnar“, þá muni allt fara á betri veg.
Einnig vekja smáfuglarnir áthygli á gagnrýni á ríkisstjórnina úr öllum áttum fyrir vaxandi atvinnuleysi og stöðnun á öllum sviðum.
Er einhver þeirrar skoðunar, að atvinnulíf eflist við, að Ögmundur Jónasson fari aftur í ríkisstjórn? Er hann áhugamaður um að koma hjólum atvinnulífsins í gang? Draga úr umsvifum ríkisins? Lækka skatta? Nei, og aftur nei. Eftir kosningar sést, að það er einmitt Steingrímur J. og ríkisstjórnin, sem skiptir máli að mati Steingríms J., þess vegna sest hann meira að segja á einkafund með Ögmundi.
Jóhann Hauksson á launum hjá Baugi Group
Jóhann Hauksson hefur í gegnum árin verið harðasti stuðningsmaður Baugsklíkunnar og gengið lengra en flestir í að verja þá í daglegri umræðu fjölmiðla. Jóhann var með útvarpsþáttinn Morgunhaninn á Útvarpi Sögu þar sem hann hélt uppteknum hætti og varði Baugsmenn. Nú hefur komið í ljós að Baugur Group kostaði þáttinn og greiddi laun til Jóhanns.
Þorvaldur talar við Mel Brooks
Þorvaldur Gylfason upplýsti í dag í hinni vikulegu grein sinni í málgagni Baugsfeðga að hann hefði nýlega hitt Mel Brooks í búð og gefið sig á tal við hann. Smáfuglarnir hleruðu samtalið: Stranger: „Hello, Mr. Books! I am Þorvaldur Gylfason, an Icelandic economist. I saw your play last night and I thought it was very good.“ Mel (grinning): „An Icelandic economist?“
Ætlar ríkisstjórn sem er á móti Magma inn í ESB?
Smáfuglarnir tóku eftir því að í ályktun Heimdallar frá því í dag er bent á að hefði Magma Energy verið fyrirtæki frá ESB ríki og ef Ísland væri í ESB væri ekkert sem ríkið hefði getað gert til að hindra viðskiptin. Innan ESB geta allir fjárfest þvert yfir landamæri.
Smáfuglunum barst ályktun stjórnar Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík. Ályktunin skýtur föstum skotum að vinstristjórninni sem Heimdallur segir óstarfhæfa. Smáfuglarnir telja rétt að birta ályktunina í heild sinni. Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, gagnrýnir harðlega fórnarkostnaðinn við að halda óstarfhæfri ríkisstjórn gangandi.
Tími Runólfs kom með Jóhönnu, jafnréttisráðherra
Smáfuglarnir biðja lesendur sína að velta fyrir sér, hvernig Jóhanna Sigurðardóttir hefði látið í stjórnarandstöðu, ef yfirlýstur, stórskuldugur, karlkyns sjálfstæðismaður hefði verið ráðinn umboðsmaður skuldara og gengið hefði verið fram hjá konu, sem veitt hefði skuldurum ráðgjöf á farsælan hátt, árum saman.
Egill gagnrýnir Sigurjón Þ. Árnason fyrir holdafar
Smáfuglarnir sjá að Egill Helgason telur að Björgólfur Thor noti Sigurjón Þ. Árnason sem blóraböggul en Björgólfur sagði margt Sigurjóni að kenna í viðtali við Viðskiptablaðið. Það sem vakti athygli smáfuglanna var áhugaverð greining Egils á Sigurjóni. Egill segir á vefsíðu sinni: Sigurjón Þ....
Sendiherra ESB leiðréttir Eirík Bergmann - EES ekki í hættu
Smáfuglarnir sögðu frá því fyrir stuttu að Eiríkur Bergmann, sérfræðingur í ESB aðild, hefði sagt EES samstarfið í uppnámi ef ESB umsókn yrði dregin til baka. Eins og með annað sem ekki er rétt var þessi skoðun Eiríks leiðrétt.
Tengsl Elíasar Jóns og Þórðar Snæs
Margir hafa velt fyrir sér hvernig tengslum spunameistara vinstristjórnarinnar sé háttað.