amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Laugardagurinn 31. júlí 2010 - 08:21
 
 
Fuglahvísl birtist 11. mars 2010 klukkan 11:21

Kallar Álfheiður á lög­regluna gegn Ögmundi?

 
 
 
Um fuglahvísl

Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.



Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Vinstrihreyfingin grænt framboð
Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra.

Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, var í morgunútvarpi RÚV 10. mars og sagðist ekki vita, að til stæði að breyta ætti ríkisstjórninni. Hins vegar ætti að breyta öllu stjórnarráðinu á næstunni og þá yrði óhjákvæmilega einhver breyting á ríkisstjórninni.

Smáfuglarnir gefa ekki mikið fyrir þessi orð Álfheiðar. Breytingar á stjórnarráðinu, sem ríkisstjórnin boðar, eru þess eðlis, að hún hefur enga burði til að hrinda þeim í framkvæmd.

Pólitískt líf ríkisstjórnarinnar krefst þess hins vegar, að gerðar verði tafarlausar rástafanir til að bjarga því. Þetta er Álfheiði auðvitað framandi. Hún kemst helst í fréttir vegna frumvarpa um afnám laga, sem hefur ekki verið beitt árum saman og eru í raun sjálfdauð.

Á sínum tíma stuðlaði Álfheiður á árás á lögreglustöðina og Alþingishúsið í þrá sinni eftir að komast í meirihluta á þingi. Smáfuglarnir velta fyrir sér, hvaða liðsafnað hún kalli á vettvang til að halda Ögmundi Jónassyni frá heilbrigðisráðuneytinu - kannski lögregluna?

 
Meira fuglahvísl

Jóhann Hauksson á launum hjá Baugi Group

Jóhann Hauksson hefur í gegnum árin verið harðasti stuðningsmaður Baugsklíkunnar og gengið lengra en flestir í að verja þá í daglegri umræðu fjölmiðla. Jóhann var með útvarpsþáttinn Morgunhaninn á Útvarpi Sögu þar sem hann hélt uppteknum hætti og varði Baugsmenn. Nú hefur komið í ljós að Baugur Group kostaði þáttinn og greiddi laun til Jóhanns.

Þorvaldur talar við Mel Brooks

Þorvaldur Gylfason upplýsti í dag í hinni vikulegu grein sinni í málgagni Baugsfeðga að hann hefði nýlega hitt Mel Brooks í búð og gefið sig á tal við hann. Smáfuglarnir hleruðu samtalið: Stranger: „Hello, Mr. Books! I am Þorvaldur Gylfason, an Icelandic economist. I saw your play last night and I thought it was very good.“ Mel (grinning): „An Icelandic economist?“

Ætlar ríkis­stjórn sem er á móti Magma inn í ESB?

Smáfuglarnir tóku eftir því að í ályktun Heimdallar frá því í dag er bent á að hefði Magma Energy verið fyrirtæki frá ESB ríki og ef Ísland væri í ESB væri ekkert sem ríkið hefði getað gert til að hindra viðskiptin. Innan ESB geta allir fjárfest þvert yfir landamæri.

Heimdallur: Væri málið í reynd eitthvað öðruvísi ef móður­félagið væri frá aðildarríki ESB heldur en Kanada?

Smáfuglunum barst ályktun stjórnar Heimdallar, félags ungra sjálfstæðis­manna í Reykjavík. Ályktunin skýtur föstum skotum að vinstri­stjórninni sem Heimdallur segir óstarfhæfa. Smáfuglarnir telja rétt að birta ályktunina í heild sinni. Heimdallur, félag ungra sjálfstæðis­manna í Reykjavík, gagnrýnir harðlega fórnarkostnaðinn við að halda óstarfhæfri ríkis­stjórn gangandi.

Tími Runólfs kom með Jóhönnu, jafnréttis­ráðherra

Smáfuglarnir biðja lesendur sína að velta fyrir sér, hvernig Jóhanna Sigurðar­dóttir hefði látið í stjórnar­andstöðu, ef yfirlýstur, stórskuldugur, karlkyns sjálfstæðis­maður hefði verið ráðinn umboðsmaður skuldara og gengið hefði verið fram hjá konu, sem veitt hefði skuldurum ráðgjöf á farsælan hátt, árum saman.

Egill gagnrýnir Sigurjón Þ. Árnason fyrir holdafar

Smáfuglarnir sjá að Egill Helgason telur að Björgólfur Thor noti Sigurjón Þ. Árnason sem blóraböggul en Björgólfur sagði margt Sigurjóni að kenna í viðtali við Viðskiptablaðið. Það sem vakti athygli smáfuglanna var áhugaverð greining Egils á Sigurjóni. Egill segir á vefsíðu sinni: Sigurjón Þ....

Sendiherra ESB leiðréttir Eirík Bergmann - EES ekki í hættu

Smáfuglarnir sögðu frá því fyrir stuttu að Eiríkur Bergmann, sér­fræðingur í ESB aðild, hefði sagt EES samstarfið í uppnámi ef ESB umsókn yrði dregin til baka. Eins og með annað sem ekki er rétt var þessi skoðun Eiríks leiðrétt.

Tengsl Elíasar Jóns og Þórðar Snæs

Margir hafa velt fyrir sér hvernig tengslum spunameistara vinstri­stjórnar­innar sé háttað.

 
 
©2010 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX