amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Þriðjudagurinn 7. febrúar 2012 - 09:22
 
 
Fuglahvísl birtist 10. mars 2010 klukkan 11:46

Draumalandið sameinar stjórnar­flokkana

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Kolbeinn Ó. Proppé, blaðamaður á Fréttablaðinu og innan búðarmaður meðal vinstri manna, leitast við að berja í bresti stjórnarsamstarfsins með grein í blaði sínu 10. mars. Hann segir þar, að tveggja manna fundur þeirra Steingríms J. og Ögmundar Jónassonar hafi bætt andrúmsloftið innan flokksins, en Samfylkingin sé á nálum yfir því, hvort stjórnarsamstarfið haldi. Kolbeinn er bara bjartsýnn fyrir hönd vinstri manna og segir ýmislegt hafa orðið til þess að treysta samheldni þeirra. Hann segir:

Ed
Katrín Jakobsdóttir, Steingrímur J. Sigfússon og Jóhanna Sigurðardóttir á blaðamannafundi 1. febrúar 2009.

„Þá segja menn, bæði í gamni og alvöru, að sýning Draumalands þeirra Þorfinns Guðnasonar og Andra Snæs Magnasonar, hafi glætt glóðir ríkisstjórnarsamstarfsins. Þingmenn hafi sammælst um að hleypa ekki þeim flokkum að sem stóðu að þeim framkvæmdum sem myndin lýsir.“

Smáfuglunum kemur ekki á óvart, að Draumalandið hafi vakið þessar kenndir í brjóstum þingmanna stjórnarflokkanna. Nafnið eitt, Draumalandið, lýsir því, hvernig þeir halda á málum: talað er um allt annað en hinn kalda veruleika. Stjórnin hefur forðast hann í meira en ár með hörmulegum afleiðingum fyrir hana og þjóðina.

Smáfuglarnir heyra því hvíslað eftir þessa skýringu Kolbeins Ó., að spunaliðar stjórnarsinna leggi hart að RÚV að endursýna Draumalandið og síðan verði því dreift á allar flokksdeildir Samfylkingar og vinstri-grænna, til að flokkskjarninn átti sig betur á því, hvers vegna honum beri að styðja Jóhönnu og Steingrím J. í gegnum þykkt og þunnt.

 
Meira fuglahvísl

Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?

Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.

Leikhús eða sjúkrahús

Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.

Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana

Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...

Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna

Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.

ESB fáni á landsliðsbúninga

Í janúar 2009 birtu smáfuglarnir myndband sem sett hafði verið á YouTube þar sem sá veruleiki hafði verið búinn til að Ísland inni til sigurs á handboltamóti en í erlendum fréttum kæmi ESB til með að eigna sér sigurinn og segja hann „sigur ESB á mótinu“. Smáfuglunum bárust nokkur bréf þar sem myn...

Ögmundur slær út bankamennina

Smáfuglarnir rákust á ummæli Ögmundar Jónassonar, sem stýrði Lífeyris­sjóði starfsmanna ríkisinsn (LSR) fram af bjargbrúninni í góðærinu.

Bók stjúpu Egils slátrað

Smáfuglunum þótti ámátlegt að hlusta á Egil Helgason í bókmenntaþætti sínum Kiljunni grátbiðja álitsgjafa sína, Pál Baldvin Baldvinsson og Kolbrúnu Bergþórsdóttur, að gefa bók stjúpmóður sinnar, Sigrúnar Davíðsdóttur, jákvæða umsögn. En þau Páll Baldvin og Kolbrún hökkuðu í sig bók Sigrúnar, sem þykir afspyrnu vond skáldsaga.

Enn eitt dæmið um hlutdrægni RÚV

Skafti Harðarson rakti nýlega í fróðlegum pistli hvernig pistlahöfundar RÚV nota tækifærið þegar þeir segja frá atburðum erlendis að koma að áróðri um innanlandsmál.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX