amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Laugardagurinn 31. júlí 2010 - 08:06
 
 
Fuglahvísl birtist 10. mars 2010 klukkan 10:05

Blaðamannaverðlaun hneyksli

 
 
 
Um fuglahvísl

Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.



Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Baldur Arnarson, blaðamaður á Morgunblaðinu, ritaði grein í Fréttablaðið hinn 6. mars og gagnrýndi harkalega, hvernig staðið var að tilnefningum til blaðamannaverðlauna vegna ársins 2009. Taldi hann reginhneyksli, að greinarflokkur Morgunblaðsins um Evrópusambandið vegna umræðna um aðild Íslands skyldi ekki hafa hlotið tilnefningu í flokknum Besta umfjöllun ársins.

Baldur sagði meðal annars:

Ed
Morgunblaðshúsið í Hádegismóum

„Ákvörðun dómnefndar Blaðamannafélags Íslands skilur fyrst og fremst eftir undrun í huga undirritaðs. Svar við fyrirspurn til Birgis Guðmundssonar, formanns dómnefndar, um ástæður valsins bættu lítið úr skák. Birgir gat ekki útskýrt valið með faglegum rökum eins og honum ætti að vera í lófa lagið. Tekið skal fram að um trúnaðarsamskipti var að ræða og verður því ekki frekar vísað til þeirra hér eða síðar.

Framkoma dómnefndar er gróf móðgun sem ekki verður komist hjá því að mótmæla. Kemur undirritaður því á framfæri að hann segi sig úr Blaðamannafélagi Íslands. Dómnefndin starfar ekki faglega og ber því að víkja. Ákvörðunin er hneyksli og Blaðamannafélagi Íslands til háborinnar skammar.“

Eins og við var að búast hefur hvorki heyrst hósti né stuna frá forráðamönnum Blaðamannafélags Íslands (BÍ) eftir þessa snörpu ádrepu. Hneykslið í tengslum við verðlaunaveitinguna var síðan kórónað með því að verðlauna Jóhann Hauksson, einn helsta leigupenna Baugs undanfarin ár.

Þegar Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur var sagt upp störfum sem sjónvarpsfréttamaður mbl.is, fór hún með málið á vettvang norrænna blaðamanna og básúnaði þar spillingu á íslenskum fjölmiðlavettvangi. Þegar Elínu Hirst var sagt upp, eftir að hún hafði verið sminkuð til að lesa fréttir, lét BÍ þar við sitja.

Þóra Kristín starfar nú sem áróðursstjóri vinstri-grænna við netmálgagn þeirra Smuguna.

 
Meira fuglahvísl

Jóhann Hauksson á launum hjá Baugi Group

Jóhann Hauksson hefur í gegnum árin verið harðasti stuðningsmaður Baugsklíkunnar og gengið lengra en flestir í að verja þá í daglegri umræðu fjölmiðla. Jóhann var með útvarpsþáttinn Morgunhaninn á Útvarpi Sögu þar sem hann hélt uppteknum hætti og varði Baugsmenn. Nú hefur komið í ljós að Baugur Group kostaði þáttinn og greiddi laun til Jóhanns.

Þorvaldur talar við Mel Brooks

Þorvaldur Gylfason upplýsti í dag í hinni vikulegu grein sinni í málgagni Baugsfeðga að hann hefði nýlega hitt Mel Brooks í búð og gefið sig á tal við hann. Smáfuglarnir hleruðu samtalið: Stranger: „Hello, Mr. Books! I am Þorvaldur Gylfason, an Icelandic economist. I saw your play last night and I thought it was very good.“ Mel (grinning): „An Icelandic economist?“

Ætlar ríkis­stjórn sem er á móti Magma inn í ESB?

Smáfuglarnir tóku eftir því að í ályktun Heimdallar frá því í dag er bent á að hefði Magma Energy verið fyrirtæki frá ESB ríki og ef Ísland væri í ESB væri ekkert sem ríkið hefði getað gert til að hindra viðskiptin. Innan ESB geta allir fjárfest þvert yfir landamæri.

Heimdallur: Væri málið í reynd eitthvað öðruvísi ef móður­félagið væri frá aðildarríki ESB heldur en Kanada?

Smáfuglunum barst ályktun stjórnar Heimdallar, félags ungra sjálfstæðis­manna í Reykjavík. Ályktunin skýtur föstum skotum að vinstri­stjórninni sem Heimdallur segir óstarfhæfa. Smáfuglarnir telja rétt að birta ályktunina í heild sinni. Heimdallur, félag ungra sjálfstæðis­manna í Reykjavík, gagnrýnir harðlega fórnarkostnaðinn við að halda óstarfhæfri ríkis­stjórn gangandi.

Tími Runólfs kom með Jóhönnu, jafnréttis­ráðherra

Smáfuglarnir biðja lesendur sína að velta fyrir sér, hvernig Jóhanna Sigurðar­dóttir hefði látið í stjórnar­andstöðu, ef yfirlýstur, stórskuldugur, karlkyns sjálfstæðis­maður hefði verið ráðinn umboðsmaður skuldara og gengið hefði verið fram hjá konu, sem veitt hefði skuldurum ráðgjöf á farsælan hátt, árum saman.

Egill gagnrýnir Sigurjón Þ. Árnason fyrir holdafar

Smáfuglarnir sjá að Egill Helgason telur að Björgólfur Thor noti Sigurjón Þ. Árnason sem blóraböggul en Björgólfur sagði margt Sigurjóni að kenna í viðtali við Viðskiptablaðið. Það sem vakti athygli smáfuglanna var áhugaverð greining Egils á Sigurjóni. Egill segir á vefsíðu sinni: Sigurjón Þ....

Sendiherra ESB leiðréttir Eirík Bergmann - EES ekki í hættu

Smáfuglarnir sögðu frá því fyrir stuttu að Eiríkur Bergmann, sér­fræðingur í ESB aðild, hefði sagt EES samstarfið í uppnámi ef ESB umsókn yrði dregin til baka. Eins og með annað sem ekki er rétt var þessi skoðun Eiríks leiðrétt.

Tengsl Elíasar Jóns og Þórðar Snæs

Margir hafa velt fyrir sér hvernig tengslum spunameistara vinstri­stjórnar­innar sé háttað.

 
 
©2010 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX