amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 19:33
 
 
Fuglahvísl birtist 10. mars 2010 klukkan 09:49

Ögmundur í stjórn vegna pólitískra skjálfta?

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Smáfuglarnir lesa í málgagni ríkisstjórnarinnar visir.is 10. mars:

Ögmundur Jónasson.

„Ríkisstjórnin stendur veikari eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna á laugardag og þarf að eflast eigi hún að geta tekist á við mörg brýn og aðkallandi verkefni. Augljósasta og jafnframt besta leiðin til að styrkja stjórnina er að Ögmundur Jónasson verði ráðherra á ný. Líklegast verður það samhliða öðrum breytingum.“

Samkvæmt þessu lifa stjórnarliðar í þeirri von, að Ögmundur Jónasson starfi samkvæmt mottóinu: If you cannot beat them, join them!

Smáfuglarnir velta fyrir sér, hvernig það geti styrkt ríkisstjórnina, að órólega deild VG eigi fulltrúa á öllum fundum hennar.

Pólitískir skjálftamælar sýna vissulega gos í vændum meðal stjórnarliða. Að unnt sé að leiða kvikuna í iður jarðar með því að hún renni í gegnum ríkisstjórnina, er nýstárleg kenning.

 
Meira fuglahvísl

Útflutt skyr ekki ríkisstyrkt

Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Lands­sambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlands­markaði.

Nýr sími fréttastofu RÚV

Smáfuglunum barst áríðandi tilkynning frá fréttastofu RÚV um nýtt símanúmer frétta­stjórnar. Í tilkynningu er breytingin sögð stytta boðleiðir og einfalda efnislega rit­stjórn. Nýtt símanúmer er 414-2200.

Kópavogsbúar anda léttar - bæjar­stjórn frá í þrjár vikur

Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjar­stjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjar­stjórnin sé ekki að störfum.

Nýr Jón Steinsson

Jón Steinsson, hag­fræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávar­útvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.

Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?

Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.

Leikhús eða sjúkrahús

Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.

Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana

Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...

Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna

Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX