Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Evrópuaðildarsinninn og sjálfstæðismaðurinn Guðbjörn Guðbjörnsson, sem stundum bloggar um nauðsyn þess að stofna nýjan flokk um skoðanir sínar, bloggar 9. mars um aðlögun stjórnsýslunnar að ESB-aðlögunarferlinu. Hann telur einnig, að RÚV hafi lagað sig að vinstri stjórninni. Guðbjörn segir:
„Það fer ekki á milli mála, að það eru nýir herrar komnir á Ríkisútvarpið. Það er búið að hreinsa til hvað starfsmenn varðar. Elín Hirst og fleiri, sem maður hefur haft grun um að hafi verið sjálfstæðismenn, eru búnir að fá pokann sinn og aðrir hafa verið ráðnir í þeirra stað. Lára Ómarsdóttir, mótmælaleikstjóri, er t.d. komin í stað föður hennar og byrjuð að predika svipaðan boðskap í morgunútvarpi á stöð 2. Draumalandið var í sjónvarpinu á sunnudagskvöldið og fyrir algjöra tilviljun kom í ljós í aðalfréttatíma sjónvarpsins í kvöld, að Norðurál borgar eitthvað minna fyrir rafmagnið en álver að meðaltali greiða í heiminum.“
Þessi skoðun Guðbjörns hafði ekki verið lengi á Eyjunni, þegar Sigmar Guðmundsson, Kastljósstjóri RÚV, kvaddi sér hljóðs með athugasemd og sagði:
„Þetta er fáránlegur pistill í alla staði. Á rúv er eitt stórt samsæri gegn sjáflstæðisflokknum þínum!!! Rökin þau að draumalandið var á dagskrá á sunnudaginn og í dag frétt um álverð. Ehhh, hefði þetta verið í lagi ef Draumlandið hefði verið á dagkrá í Janúar og fréttin um álverðið í apríl? Meira bullið. Draumalandið var dagskrársett fyrir mörgum mánuðum. Þetta er verðlaunamynd, unnin uppúr verðlaunabók og sómir sér vel í hvaða sjónvarpsdagskrá sem er – hvenær sem er. Fréttin um álverðið var fantagóð. Skúbb. Boðlega í hvaða fréttatíma sem er – hvenær sem er. Guðbjörn, þú getur betur en þetta.“
Smáfuglarnir vekja athygli á því, að Sigmar minnist ekki á uppsögn Elínar og predikanir Láru. Smáfuglunum þótti ekki mikið til Draumalandsins koma, að mestu samtíningur úr fréttum settur í áróðursbúning. Norðurálsfréttin var hins vegar greinilega einhliða áróðursfrétt í anda Kristins Hrafnssonar, þar sem leitað var álits Sigurðar Jóhannessonar, sem barðist gegn Kárahnjúkavirkjun og taldi hana og álverið á Reyðarfirði af hinu illa. Ekki nokkur tilraun var gerð í fréttinni til að kynna allar hliðar málsins. Smáfuglarnir telja ekki mikinn vanda að skúbba, ef ætlunin er að kynna aðeins hluta máls en segja ekki söguna alla. Afstaða Sigmars segir allt sem segja þarf um þau vinnubrögð, sem Guðbjörn gagnrýndi réttilega.
Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Landssambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlandsmarkaði.
Kópavogsbúar anda léttar - bæjarstjórn frá í þrjár vikur
Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjarstjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjarstjórnin sé ekki að störfum.
Jón Steinsson, hagfræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávarútvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.
Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?
Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.
Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.
Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana
Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...
Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna
Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.