Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Smáfuglarnir sjá á vefsíðu Skafta Harðarsonar og víðar að hugleysi Dags B. Eggertssonar, að gefa ekki upp atkvæði sitt í þjóðatarkvæðagreiðslu um Icesave, vekur athygli. Smáfuglarnir muna ekki eftir mörgum tilvikum að varaformenn stórra stjórnmálaflokka gefi ekki upp afstöðu sína í stærstu málum samtímans. Til hvers eru slíkir menn í stjórnmálum?
Skafti segir á vef sínum:
En sjálfur varaformaður Samfylkingarinnar, Dagur B. Eggertsson, neitar að upplýsa hvað hann hafi gert, hvort hann hafi farið á kjörstað og hvað hann hafi kosið, ef svo var.
Stjórnmálamenn eru ekki vanir að leyna því hvað þeir kjósa enda eru þeir venjulega fulltrúar skoðana. En hvers vegna vill Dagur leyna því? Hefur hann eitthvað að fela? Er eitthvað óþægilegt við að segja frá því hvaða skoðun maður hefur?
Eða er skýringin sú að Dagur er ekki stjórnmálamaður, heldur framapotari sem vill helst ekki styggja neinn í eigin flokki og ekki láta hafa neitt á sig í Silfri Egils?

Smáfuglarnir svara spurningum Skafta játandi. Ljóst er fyrir margt löngu að frami skiptir hinn hárprúða borgarfulltrúa mun meiru en hugsjónir eða festa. Þannig hefur Dagur látið lítið fyrir sér fara í þeim ólgusjó sem verið hefur í stjórnmálum undanfarið og virðist hafa tekið þá drengilegu ákvörðun um að leyfa Jóhönnu að deyja drottni sínum í stjórnmálum áður en hann mætir til leiks. Dagur hefur hvergi stutt formann sinn að málum.
Svo var er Dagur um sig að hann neitar að segja til um skoðun sína á Icesave!
Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?
Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.
Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.
Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana
Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...
Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna
Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.
Í janúar 2009 birtu smáfuglarnir myndband sem sett hafði verið á YouTube þar sem sá veruleiki hafði verið búinn til að Ísland inni til sigurs á handboltamóti en í erlendum fréttum kæmi ESB til með að eigna sér sigurinn og segja hann „sigur ESB á mótinu“. Smáfuglunum bárust nokkur bréf þar sem myn...
Smáfuglunum þótti ámátlegt að hlusta á Egil Helgason í bókmenntaþætti sínum Kiljunni grátbiðja álitsgjafa sína, Pál Baldvin Baldvinsson og Kolbrúnu Bergþórsdóttur, að gefa bók stjúpmóður sinnar, Sigrúnar Davíðsdóttur, jákvæða umsögn. En þau Páll Baldvin og Kolbrún hökkuðu í sig bók Sigrúnar, sem þykir afspyrnu vond skáldsaga.
Enn eitt dæmið um hlutdrægni RÚV
Skafti Harðarson rakti nýlega í fróðlegum pistli hvernig pistlahöfundar RÚV nota tækifærið þegar þeir segja frá atburðum erlendis að koma að áróðri um innanlandsmál.