Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Íslenskir ESB sinnar hafa verið óþreytandi í því að segja að Ísland fái undanþágur frá meginstefnu sambandsins í sjávarútvegsmálum. Fyrir þessu hafa engin rök fundist önnur en að nokkrar uppblásnir smábátar á Möltu hafi fengið að veiða hornsíli í eldhússigti í nokkrar mínútur eftir að eyjan varð hluti að sambandinu.
Nú bætist það við að stækkunarstjóri Evrópusambandsins, Stefán Fúli (Stefan Füle), segir að aðild Íslands hafi lítil sem engin áhrif á stefnu sambandsins þrátt fyrir að aðildarsinnar hamist dag og nótt við að sannfæra fólk um að Ísland muni gjörbreyta auðlindastefnu sambandsins. Stækkunarstjórinn hefur tekið af því allan vafa en á vef Mbl segir:
Hann [Stefan Füle] sagði og að lega Íslands myndi styrkja sambandið á mikilvægu hafsvæði. Stækkunarstjórinn benti einnig á að Ísland væri aðili að innri markaði ESB og aðild hefði ekki í för með sér mikil áhrif á stefnu sambandsins.
Smáfuglarnir leyfa sér að feitletra síðustu orð Stefáns svo að þeir sem stöðugt tala um undanþágur frá auðlindastefnu sambandsins sjái þau betur. Það er kannski kominn tími til að íslenskir ESB sinnar vakni af draumsvefni og horfi á veruleikann eins og hann mætir þeim í ummælum stækkunarstjórans.
Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?
Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.
Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.
Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana
Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...
Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna
Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.
Í janúar 2009 birtu smáfuglarnir myndband sem sett hafði verið á YouTube þar sem sá veruleiki hafði verið búinn til að Ísland inni til sigurs á handboltamóti en í erlendum fréttum kæmi ESB til með að eigna sér sigurinn og segja hann „sigur ESB á mótinu“. Smáfuglunum bárust nokkur bréf þar sem myn...
Smáfuglunum þótti ámátlegt að hlusta á Egil Helgason í bókmenntaþætti sínum Kiljunni grátbiðja álitsgjafa sína, Pál Baldvin Baldvinsson og Kolbrúnu Bergþórsdóttur, að gefa bók stjúpmóður sinnar, Sigrúnar Davíðsdóttur, jákvæða umsögn. En þau Páll Baldvin og Kolbrún hökkuðu í sig bók Sigrúnar, sem þykir afspyrnu vond skáldsaga.
Enn eitt dæmið um hlutdrægni RÚV
Skafti Harðarson rakti nýlega í fróðlegum pistli hvernig pistlahöfundar RÚV nota tækifærið þegar þeir segja frá atburðum erlendis að koma að áróðri um innanlandsmál.