amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Þriðjudagurinn 7. febrúar 2012 - 09:13
 
 
Fuglahvísl birtist 9. mars 2010 klukkan 12:16

Smáfuglarnir svara Einari

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Facebook
Einar Kárason

Af hverju skyldi Einar Kárason vera eins reiður smáfuglunum og athugasemd hans hér ber vitni um? Líklega af því að sannleikanum verður hver sárreiðastur. Einar sagði að þjóðaratkvæðagreiðslan væri bull. Þjóðaratkvæðagreiðslan var nauðsynleg til að stöðva feiknaleg mistök (a. m. k. upp á 70–80 milljarða skv. eigin mati ráðherranna) sem vinir Einars og samherjar höfðu gert. Með þjóðaratkvæðagreiðslunni var óhagstæður nauðungarsamningur ógiltur. Það var ekki þjóðin sem bullaði með því að greiða atkvæði, 98:2, heldur Einar.

En Einar er líka viðkvæmur fyrir því að hann hefur síðustu árin eins og svo margir aðrir Samfylkingarmenn gerst handbendi auðmanna. Hann lét hafa sig í það að vinna fyrir Jón Ólafsson athafnamann að lofrullu um Jón sem að vísu floppaði ólíkt flestum öðrum ritum hins vinsæla rithöfundar. Líklega keyptu jafnfáir þá bók og sögðu já í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardaginn var. Sama fólkið? spyrja smáfuglarnir.

Tengt efni:

Einar svarar smáfuglunum

 
Meira fuglahvísl

Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?

Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.

Leikhús eða sjúkrahús

Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.

Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana

Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...

Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna

Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.

ESB fáni á landsliðsbúninga

Í janúar 2009 birtu smáfuglarnir myndband sem sett hafði verið á YouTube þar sem sá veruleiki hafði verið búinn til að Ísland inni til sigurs á handboltamóti en í erlendum fréttum kæmi ESB til með að eigna sér sigurinn og segja hann „sigur ESB á mótinu“. Smáfuglunum bárust nokkur bréf þar sem myn...

Ögmundur slær út bankamennina

Smáfuglarnir rákust á ummæli Ögmundar Jónassonar, sem stýrði Lífeyris­sjóði starfsmanna ríkisinsn (LSR) fram af bjargbrúninni í góðærinu.

Bók stjúpu Egils slátrað

Smáfuglunum þótti ámátlegt að hlusta á Egil Helgason í bókmenntaþætti sínum Kiljunni grátbiðja álitsgjafa sína, Pál Baldvin Baldvinsson og Kolbrúnu Bergþórsdóttur, að gefa bók stjúpmóður sinnar, Sigrúnar Davíðsdóttur, jákvæða umsögn. En þau Páll Baldvin og Kolbrún hökkuðu í sig bók Sigrúnar, sem þykir afspyrnu vond skáldsaga.

Enn eitt dæmið um hlutdrægni RÚV

Skafti Harðarson rakti nýlega í fróðlegum pistli hvernig pistlahöfundar RÚV nota tækifærið þegar þeir segja frá atburðum erlendis að koma að áróðri um innanlandsmál.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX