Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Smáfuglarnir lesa í Morgunblaðinu 9. mars:
„ÞOLINMÆÐIN er á þrotum, tíminn er að renna frá okkur og ef engin raunhæf úrræði koma fram á næstu vikum stefnum við hraðbyri að næsta hruni,“ segir í ályktun miðstjórnar Samiðnar sem samþykkt var í gær. Formaður Samiðnar segir mál komin í ákveðinn „spíral“ og mjög erfitt verði að snúa þjóðinni út úr öðru hruni.
Finnbjörn A. Hermannsson, formaður Samiðnar, segir að störf Alþingis verði að fara að snúast um eitthvað annað en þær málfundaæfingar sem þar séu haldnar. „Þingmenn verða að átta sig á og hafa að leiðarljósi, að þeir eru kosnir á þing til að þjóna almenningi, ekki til að slá pólitískar keilur.“
Spurður hvaða keilur hann eigi við vísar Finnbjörn m.a. til nýlegra úrskurða umhverfisráðherra. Hann tekur þó fram að Samiðn geri ekki greinarmun á ríkisstjórninni og stjórnarandstöðunni. Hann bendir á að atvinnuleysi í byggingariðnaði sé komið yfir 20% og engar framkvæmdir í uppsiglingu. Það sé óviðunandi.
Í ályktuninni segir jafnframt að ef »ekki næst samstaða á Alþingi á næstu dögum um markvissar aðgerðir til að bregðast við vaxandi erfiðleikum fjölskyldna og fyrirtækja þá verður að stokka upp á nýtt«. Aðgerðaleysi og sundrung á Alþingi staðfesti að stöðugleikasáttmálinn sé ekki tekinn alvarlega.
Finnbjörn segir að fólk verði að gera sér grein fyrir því hvaða óheillaþróun eigi sér stað.„
Smáfuglarnir taka undir með Finnbirni um lýsingu hans á stöðu atvinnu- og efnahagsmála. Þeir eru hins vegar þeirrar skoðunar, að hann verði næsta marklítill, þegar hann segir samtök sín ekki gera greinarmun á ríkisstjórn og stjórnarandstöðu. Með því gerist hann sekur um hið sama og veldur gagnrýni hans á Alþingi, að þar sé allt lagt að jöfnu og aukaatriði vegi meira en aðalatriði.
Smáfuglarnir undrast, að Samiðn eða aðrir inna verkalýðshreyfingarinnar hafi ekki þrek til þess að veita ríkisstjórninni öflugra og markvissara aðhald en þetta, þegar hreyfingin er komin á suðupunkt og getur hæglega sprungið með stjórnarflokkunum.
Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Landssambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlandsmarkaði.
Kópavogsbúar anda léttar - bæjarstjórn frá í þrjár vikur
Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjarstjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjarstjórnin sé ekki að störfum.
Jón Steinsson, hagfræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávarútvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.
Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?
Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.
Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.
Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana
Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...
Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna
Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.