amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Þriðjudagurinn 7. febrúar 2012 - 09:24
 
 
Fuglahvísl birtist 9. mars 2010 klukkan 09:33

Þingmaður Samfylkingar ögrar vinstri-grænum

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Alþingi
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði sig á sínum tíma úr bankaráði Seðlabanka Íslands til að flýta fyrir uppbyggingu atvinnulífsins, greiddi atkvæði með tveimur lagafrumvörpum um Icesave til að flýta fyrir uppbyggingu atvinnulífsins og skrifar 9. mars 2010 grein í Herðubreið, netmálgagn Samfylkingarinnar, þar sem hún segist telja nauðsynlegt að ljúka Icesave-málinu „hratt og örugglega svo hægt sé að snúa sér af krafti að uppbyggingu atvinnulífs í landinu.“

Sigríður Ingibjörg telur líkur á þverpólitískri samstöðu um Icesave eru ekki miklar þó að samráð um meðferð málsins sé áfram mikilvægt. Síðan segir hún orðrétt:

„Það er einnig ljóst að erfitt er fyrir þingmenn ríkisstjórnarflokkanna að bera ábyrgð á efnahagsmálum þjóðarinnar ef lausn Icesave dregst lengi enn. Það þýðir dýpri kreppu, aukið atvinnuleysi og erfiðari ríkisfjármál. Mig fýsir ekki að bera ábyrgð á slíkri þróun.“

Smáfuglarnir sjá ekki betur en þolinmæði Sigríðar Ingibjargar gagnvart órólegu deildinni hjá vinstri-grænum sé á þrotum. Hún vilji ekki bera ábyrgð á, að Samfylkingin sé með þeim í stjórn, nema þeir gjörbreyti um afstöðu til Icesave og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Smáfuglarnir vekja athygli á því, að innan Samfylkingarinnar er Sigríður Ingibjörg handgengin Jóhönnu Sigurðardóttur. Telja sumir, að hún sé málpípa hennar, eins og Björn Valur, samþingmaður Steingríms J. í Norðaustur kjördæmi, er „his master's voice“.

 
Meira fuglahvísl

Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?

Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.

Leikhús eða sjúkrahús

Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.

Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana

Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...

Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna

Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.

ESB fáni á landsliðsbúninga

Í janúar 2009 birtu smáfuglarnir myndband sem sett hafði verið á YouTube þar sem sá veruleiki hafði verið búinn til að Ísland inni til sigurs á handboltamóti en í erlendum fréttum kæmi ESB til með að eigna sér sigurinn og segja hann „sigur ESB á mótinu“. Smáfuglunum bárust nokkur bréf þar sem myn...

Ögmundur slær út bankamennina

Smáfuglarnir rákust á ummæli Ögmundar Jónassonar, sem stýrði Lífeyris­sjóði starfsmanna ríkisinsn (LSR) fram af bjargbrúninni í góðærinu.

Bók stjúpu Egils slátrað

Smáfuglunum þótti ámátlegt að hlusta á Egil Helgason í bókmenntaþætti sínum Kiljunni grátbiðja álitsgjafa sína, Pál Baldvin Baldvinsson og Kolbrúnu Bergþórsdóttur, að gefa bók stjúpmóður sinnar, Sigrúnar Davíðsdóttur, jákvæða umsögn. En þau Páll Baldvin og Kolbrún hökkuðu í sig bók Sigrúnar, sem þykir afspyrnu vond skáldsaga.

Enn eitt dæmið um hlutdrægni RÚV

Skafti Harðarson rakti nýlega í fróðlegum pistli hvernig pistlahöfundar RÚV nota tækifærið þegar þeir segja frá atburðum erlendis að koma að áróðri um innanlandsmál.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX