amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Þriðjudagurinn 7. febrúar 2012 - 09:10
 
 
Fuglahvísl birtist 9. mars 2010 klukkan 11:44

Fór for­stjóri Haga með Jóni Ásgeiri til London að finna fjárfesta?

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Margir hafa komið að máli við smáfuglana og gert því skóna að Finnur Árnason, forstjóri Haga, hafi verið á ferð með Jóni Ásgeiri í London til þess að aðstoða Jón við að sannfæra væntanlega lánveitendur þeirra feðga um að Hagar væru gott fyrirtæki og nauðsynlegt væri að lána feðgunum fyrir kaupunum.

RetailWeek
Jón Ásgeir á ferð og flugi með forstjóra Haga. Líklega að sannfæra erlenda lánveitendur um ágæti þess að lána stærstu gjaldþrotamönnum Íslandsögunnar.

Ef rétt reynist orkar það í besta falli tvímælis að forstjóri Haga, sem er í raun ríkisfyrirtæki vegna eignarhalds Arion Banka á 1998 ehf., skuli vera með væntanlegum kaupenda að fyrirtækinu erlendis og taki þátt í því að sannfæra fjárfesta. Smáfuglarnir vita ekki til þess að öðrum fjárfestum standi til boða að fá forstjóra Haga með sér á fundi erlendis eftir að allir innlendir bankar hafa lokað á þá vegna vanskila og gjaldþrota.

Sérstaklega er málið þó vandræðalegt fyrir Finn Sveinbjörnsson, bankastjóra Arion Banka, sem sagði í einfeldni sinni við Kastljós að ekki væri verið að veita Jóni Ásgeiri forkaupsrétt að 10% hlut í Högum heldur Jóhannesi Jónssyni. Finnur virðist gera litlar athugasemdir við ferðalög forstjóra Haga sem er í raun er starfsmaður hans ef horft er á eignarhald Arion banka á Högum.

Smáfuglarnir eru nú farnir að skilja hvers vegna Finnur Sveinbjörnsson er oft kallaður Baugsmottan.

 
Meira fuglahvísl

Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?

Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.

Leikhús eða sjúkrahús

Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.

Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana

Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...

Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna

Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.

ESB fáni á landsliðsbúninga

Í janúar 2009 birtu smáfuglarnir myndband sem sett hafði verið á YouTube þar sem sá veruleiki hafði verið búinn til að Ísland inni til sigurs á handboltamóti en í erlendum fréttum kæmi ESB til með að eigna sér sigurinn og segja hann „sigur ESB á mótinu“. Smáfuglunum bárust nokkur bréf þar sem myn...

Ögmundur slær út bankamennina

Smáfuglarnir rákust á ummæli Ögmundar Jónassonar, sem stýrði Lífeyris­sjóði starfsmanna ríkisinsn (LSR) fram af bjargbrúninni í góðærinu.

Bók stjúpu Egils slátrað

Smáfuglunum þótti ámátlegt að hlusta á Egil Helgason í bókmenntaþætti sínum Kiljunni grátbiðja álitsgjafa sína, Pál Baldvin Baldvinsson og Kolbrúnu Bergþórsdóttur, að gefa bók stjúpmóður sinnar, Sigrúnar Davíðsdóttur, jákvæða umsögn. En þau Páll Baldvin og Kolbrún hökkuðu í sig bók Sigrúnar, sem þykir afspyrnu vond skáldsaga.

Enn eitt dæmið um hlutdrægni RÚV

Skafti Harðarson rakti nýlega í fróðlegum pistli hvernig pistlahöfundar RÚV nota tækifærið þegar þeir segja frá atburðum erlendis að koma að áróðri um innanlandsmál.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX