amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Laugardagurinn 31. júlí 2010 - 08:17
 
 
Fuglahvísl birtist 8. mars 2010 klukkan 18:36

Jón Ásgeir og for­stjóri Haga hlægjandi saman á Saga Class

 
 
 
Um fuglahvísl

Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.



Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Smáfuglarnir eyða miklum tíma á flugi og sjá þar margt forvitnilegt. Í gær sáu þeir til dæmis hvar Jón Ásgeir og Finnur Árnason, forstjóri Haga, voru skellihlægjandi á Heathrow flugvelli í London og fóru svo samferða á Saga Class yfir til Íslands.

RÚV
Jón Ásgeir Jóhannesson hlær og ferðast um á Saga Class. Þeir sem borga skuldir hans voru á almennu farrými.

Hvað þeim fór á milli er erfitt að segja en eflaust hafa þeir hlegið að því hversu einfaldur Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Arion banka, væri eftir að hann sagði í Kastljósi að verið væri að veita Jóhannesi Jónssyni forkaupsrétt að Högum en ekki Jóni Ásgeiri. Ef það var umræðuefnið hefðu smáfuglarnir hlegið líka því öllum er ljóst, hvort sem þeir voru um borð eða ekki, að Jón Ásgeir ræður för þó svo að gamli maðurinn sé skrifaður fyrir forkaupsréttinum.

Meðal farþega var haft á orði að það væri eftir öðru að skuldakóngur Íslands og meðreiðarsveinar hans ferðist á dýrasta farrými á meðan hinir, sem borga skuldir þeirra, ferðist á almennu farrými.

 
Meira fuglahvísl

Jóhann Hauksson á launum hjá Baugi Group

Jóhann Hauksson hefur í gegnum árin verið harðasti stuðningsmaður Baugsklíkunnar og gengið lengra en flestir í að verja þá í daglegri umræðu fjölmiðla. Jóhann var með útvarpsþáttinn Morgunhaninn á Útvarpi Sögu þar sem hann hélt uppteknum hætti og varði Baugsmenn. Nú hefur komið í ljós að Baugur Group kostaði þáttinn og greiddi laun til Jóhanns.

Þorvaldur talar við Mel Brooks

Þorvaldur Gylfason upplýsti í dag í hinni vikulegu grein sinni í málgagni Baugsfeðga að hann hefði nýlega hitt Mel Brooks í búð og gefið sig á tal við hann. Smáfuglarnir hleruðu samtalið: Stranger: „Hello, Mr. Books! I am Þorvaldur Gylfason, an Icelandic economist. I saw your play last night and I thought it was very good.“ Mel (grinning): „An Icelandic economist?“

Ætlar ríkis­stjórn sem er á móti Magma inn í ESB?

Smáfuglarnir tóku eftir því að í ályktun Heimdallar frá því í dag er bent á að hefði Magma Energy verið fyrirtæki frá ESB ríki og ef Ísland væri í ESB væri ekkert sem ríkið hefði getað gert til að hindra viðskiptin. Innan ESB geta allir fjárfest þvert yfir landamæri.

Heimdallur: Væri málið í reynd eitthvað öðruvísi ef móður­félagið væri frá aðildarríki ESB heldur en Kanada?

Smáfuglunum barst ályktun stjórnar Heimdallar, félags ungra sjálfstæðis­manna í Reykjavík. Ályktunin skýtur föstum skotum að vinstri­stjórninni sem Heimdallur segir óstarfhæfa. Smáfuglarnir telja rétt að birta ályktunina í heild sinni. Heimdallur, félag ungra sjálfstæðis­manna í Reykjavík, gagnrýnir harðlega fórnarkostnaðinn við að halda óstarfhæfri ríkis­stjórn gangandi.

Tími Runólfs kom með Jóhönnu, jafnréttis­ráðherra

Smáfuglarnir biðja lesendur sína að velta fyrir sér, hvernig Jóhanna Sigurðar­dóttir hefði látið í stjórnar­andstöðu, ef yfirlýstur, stórskuldugur, karlkyns sjálfstæðis­maður hefði verið ráðinn umboðsmaður skuldara og gengið hefði verið fram hjá konu, sem veitt hefði skuldurum ráðgjöf á farsælan hátt, árum saman.

Egill gagnrýnir Sigurjón Þ. Árnason fyrir holdafar

Smáfuglarnir sjá að Egill Helgason telur að Björgólfur Thor noti Sigurjón Þ. Árnason sem blóraböggul en Björgólfur sagði margt Sigurjóni að kenna í viðtali við Viðskiptablaðið. Það sem vakti athygli smáfuglanna var áhugaverð greining Egils á Sigurjóni. Egill segir á vefsíðu sinni: Sigurjón Þ....

Sendiherra ESB leiðréttir Eirík Bergmann - EES ekki í hættu

Smáfuglarnir sögðu frá því fyrir stuttu að Eiríkur Bergmann, sér­fræðingur í ESB aðild, hefði sagt EES samstarfið í uppnámi ef ESB umsókn yrði dregin til baka. Eins og með annað sem ekki er rétt var þessi skoðun Eiríks leiðrétt.

Tengsl Elíasar Jóns og Þórðar Snæs

Margir hafa velt fyrir sér hvernig tengslum spunameistara vinstri­stjórnar­innar sé háttað.

 
 
©2010 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX