Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi Jóhönnu Sigurðardóttur harðlega í þingræðu 8. mars fyrir að sitja heima í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave og sýna henni óvirðingu í öllu tilliti. Sagðist hún viss um, að baráttukonur fyrir réttindum kvenna frá upphafi síðustu aldar sneru sér við í gröf sinni vegna þessarar framkomu fyrsta kven-forsætisráðherrans gagnvart fyrstu þjóðaratkvæðagreiðslu lýðveldistímans. Væri ekki unnt að láta 8. mars, baráttudag fyrir réttindum kvenna, líða á Alþingi, án þess að vekja máls á þessu hneyksli.
Jóhanna Sigurðardóttir greip til þeirra raka sér til varnar, að fréttamaður BBC hefði sagt, að hann sæi ekki til hvers verið væri að kjósa, betri kostur væri á borðinu!
Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?
Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.
Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.
Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana
Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...
Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna
Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.
Í janúar 2009 birtu smáfuglarnir myndband sem sett hafði verið á YouTube þar sem sá veruleiki hafði verið búinn til að Ísland inni til sigurs á handboltamóti en í erlendum fréttum kæmi ESB til með að eigna sér sigurinn og segja hann „sigur ESB á mótinu“. Smáfuglunum bárust nokkur bréf þar sem myn...
Smáfuglunum þótti ámátlegt að hlusta á Egil Helgason í bókmenntaþætti sínum Kiljunni grátbiðja álitsgjafa sína, Pál Baldvin Baldvinsson og Kolbrúnu Bergþórsdóttur, að gefa bók stjúpmóður sinnar, Sigrúnar Davíðsdóttur, jákvæða umsögn. En þau Páll Baldvin og Kolbrún hökkuðu í sig bók Sigrúnar, sem þykir afspyrnu vond skáldsaga.
Enn eitt dæmið um hlutdrægni RÚV
Skafti Harðarson rakti nýlega í fróðlegum pistli hvernig pistlahöfundar RÚV nota tækifærið þegar þeir segja frá atburðum erlendis að koma að áróðri um innanlandsmál.