Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Einar Kárason skrifaði daginn fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna pistil á Pressuna þar sem hann sagði hana „bull“. Endurtók hann þar ýmsar fullyrðingar Jóhönnu Sigurðardóttur, Steingríms J. Sigfússonar og Baugspennanna á Fréttablaðinu og DV. Almenningur ómerkti orð Einars eftirminnilega í atkvæðagreiðslunni. Kjörsókn var dágóð, um 65%, og af þeim sem tóku afstöðu sögðu 98% nei og 2% já. Raunar var hlutfall þeirra sem sögðu já lægra en þeirra sem greiddu Ástþóri Magnússyni atkvæði í forsetakjöri á sínum tíma.
Það var Einar Kárason sem reyndist bulla, ekki þjóðin. Smáfuglarnir minna á að þetta er ekki í eina skiptið sem Einar hefur bullað. Hann var í vinnu við það hjá Jóni Ólafssyni athafnamanni að skrá eftir honum ævisögu sem hann kallaði af dæmafárri ósmekkvísi Jónsbók. Þar var Einar sjálfur heimildin fyrir því að Davíð Oddsson hefði ekki gert annað í ræðu sinni í fimmtugsafmæli Þórarins Eldjárns en ráðast á Jón. Svo illa vildi til fyrir Einar að til var upptaka af afmælinu. Davíð minntist ekki einu orði á Jón Ólafsson, heldur vitnaði stuttlega (í þrjátíu sekúndur) í vísuorð Þórarins um Jón Ólafsson Indíafara.
Var þá kveðin vísa sem full ástæða er til að rifja hér upp:
Höfundur á eftir hetjunni að skrá
og herma það sannleikans vinum.
En í Jónsbók má ekki á milli sjá
hvor meira lýgur að hinum.
Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Landssambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlandsmarkaði.
Kópavogsbúar anda léttar - bæjarstjórn frá í þrjár vikur
Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjarstjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjarstjórnin sé ekki að störfum.
Jón Steinsson, hagfræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávarútvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.
Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?
Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.
Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.
Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana
Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...
Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna
Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.