Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Smáfuglarnir rákust 8. mars á blogg eftir Dag B. Eggertsson, varaformann Samfylkingarinnar, undir fyrirsögninni: Ríkisstjórn á krossgötum.
Við lestur þessa texta frá 20/20 manninum sáu smáfuglarnir, að Dagur B. telur sinn tíma að koma, því að tími Jóhönnu sé liðinn. Dagur B. sýnir, að hann sé í startholunum. Unnt sé að hefjast handa við að ýta Jóhönnu til hliðar.
Dagur B. er ekki frumlegri en svo við að minna á sig en hann skýtur sér á baki við yfirlýsingar leiðtoga stjórnarandstöðuflokkanna að lokinni þjóðaratkvæðagreiðslunni. Þær sýni, að ríkisstjórnin sé á krossgötum, af því að þeir segi úrslitin vantraust á ríkisstjórnina.
Stjórnarandstaðan reyni að nýta sér atkvæðagreiðsluna í flokkspólitískum tilgangi.
Smáfuglarnir sjá ekkert athugavert, að flokkar í stjórnarandstöðu hugi að eigin stöðu að lokinni atkvæðagreiðslunni. Ríkisstjórnarflokkarnir eru lagstir í naflaskoðun eins og blogg Dags B. sýnir og orð Ögmundar Jónassonar í fréttum RÚV 8. mars.
Hið athyglisverða er, að þeir Dagur B. og Ögmundur kjósa báðir að gera stjórnarandstöðuflokkana að blóraböggli, þegar þeir eru í raun að vega að forystu eigin flokka. Þeir efast nefnilega um, að hún dugi til að leiða Icesave-málið til lykta. Síðan taka þeir til við að tíunda allt, sem gera hefði mátt betur og nauðsynlegt sé að gera til að ríkisstjórnin standi undir fyrirheitum í stjórnarsáttmála sínum og undir nafni.
Dagur B. vitnar í Jóhönnu og segir nauðsynlegt að „þétta raðirnar í röðum ríkisstjórnarinnar“. Smáfuglarnir viðurkenna fúslega, að þeim er ekki ljóst, hvað í því felst annars vegar að „þétta raðir“ stuðningsmanna ríkisstjórnarinnar og hins vegar krefjast þess af stjórnarandstöðu, að hún bjargi ríkisstjórninni. Er ekki hugtakið að „þétta raðir“ úr stríðs- eða átakamáli? Menn taki höndum saman gegn óvinum sínum?
Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Landssambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlandsmarkaði.
Kópavogsbúar anda léttar - bæjarstjórn frá í þrjár vikur
Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjarstjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjarstjórnin sé ekki að störfum.
Jón Steinsson, hagfræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávarútvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.
Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?
Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.
Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.
Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana
Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...
Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna
Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.