amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 19:39
 
 
Fuglahvísl birtist 8. mars 2010 klukkan 14:20

The Independent: Látið af grófum ruddaskap

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
The Independent

Breska blaðið The Independent, sem er vinstra megin við miðju stjórnmálanna, birtir 8. mars leiðara til stuðnings málstað Íslendinga í Icesave-málinu. Sagt er frá efni málsins og hinni eindregnu andstöðu Íslendinga í þjóðaratkvæðagreiðslunni 6. mars.

Blaðið telur óþarft að sýna Íslendingum of mikla samúð. Þeir geti sjálfum sér um kennt, Þeir hafi grætt mikið vegna uppgangs bankanna. Þeir hafi, í tíð fyrrverandi ríkisstjórnar, einnig gert mistök með því að gefa bönkunum of lausan taum til að sölsa undir sig gífurlegar eignir erlendis með óábyrgum lántökum. Það sé særandi, að nú stjórni hin hægrisinnaða stjórnarandstaða, sem hafi borið ábyrgð á uppganginum og hruninu í ríkisstjórn, lýðskrumsupphlaupi gegn kröfum um endurgreiðslu.

The Independent telur þó einhvers konar hluttekningu koma til álita. Íslenskir bankamenn en ekki almenningur beri ábyrgð á hruni fjármálakerfisins. Blaðið spyr, hvernig Bretum yrði við, ef skattgreiðendum þar yrði gert skylt að endurgreiða á refsivöxtum erlendum innistæðueigendum, til dæmis í Asíu, fé, sem þeir hefðu tapað við hrun alþjóðlegra stórbanka í Bretlandi.

Í leiðaranum segir, að Íslendingar verði að endurgreiða 3,4 milljarði punda, það er tap Icesave-reikningseigenda. Á hinn bóginn beri Bretum að sýna sveigjanleika og hógværð, þegar rætt sé um lánskjör og gjalddaga. Eitt af því, sem þurfi að athuga, sé, hvort eignir banka, sem fór á hausinn, dugi fyrir skuldunum.

Blaðið segir, að hvað sem líði þjóðaratkvæðagreiðslunni, virðist lánardrottnar Íslendinga enn með refsivöndinn á lofti. Hollenska ríkisstjórnin hóti andstöðu við ESB-aðildarumsókn Íslands. Breska ríkisstjórnin beiti sér gegn fyrirgreiðslu af hálfu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Í lok leiðarans hvetur The Independent til þess að hollensk og bresk stjórnvöld láti af „such crass bullying“ – svo grófum ruddaskap. Stjórnmálamenn verði að finna sanngjarna lausn sem taki tillit til erfiðra efnahagsaðstæðna Íslendinga og greiðslugetu þeirra. Stjórnmálamenn verði einnig tafarlaust að beina athygli sinni að því, hvað fór úrskeiðis og hvers vegna. Frumástæðan sé, að bankar, sem starfa í mörgum löndum, lúti ekki nægu eftirliti og tryggingarkerfið að baki þeim sé ekki nægilega öruggt.

 
Meira fuglahvísl

Útflutt skyr ekki ríkisstyrkt

Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Lands­sambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlands­markaði.

Nýr sími fréttastofu RÚV

Smáfuglunum barst áríðandi tilkynning frá fréttastofu RÚV um nýtt símanúmer frétta­stjórnar. Í tilkynningu er breytingin sögð stytta boðleiðir og einfalda efnislega rit­stjórn. Nýtt símanúmer er 414-2200.

Kópavogsbúar anda léttar - bæjar­stjórn frá í þrjár vikur

Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjar­stjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjar­stjórnin sé ekki að störfum.

Nýr Jón Steinsson

Jón Steinsson, hag­fræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávar­útvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.

Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?

Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.

Leikhús eða sjúkrahús

Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.

Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana

Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...

Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna

Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX