amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Laugardagurinn 4. febrúar 2012 - 16:06
 
 
Fuglahvísl birtist 6. mars 2010 klukkan 01:22

Urgur í stjórnar­flokkunum

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
VG
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingflokksformaður VG.

Smáfuglarnir heyra að mikill urgur sé bæði í Samfylkingunni og Vinstri-grænum vegna yfirlýsinga Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar um að þau ætli ekki að greiða atkvæði gegn yfirgangi Breta og Hollendinga í þjóðaratkvæðagreiðslunni.

Mörgum finnst þetta ekki aðeins lítilsvirðing við lýðræðið, heldur líka óskynsamlegt stöðumat vegna áframhaldandi samningaviðræðna við Breta og Hollendinga.

Guðbjartur Hannesson, Samfylkingarmaður og formaður fjárlaganefndar, hyggst greiða atkvæði gegn nauðungarsamningnum.

Hið sama ætlar Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, formaður þingflokks Vinstri-grænna, að gera. Hún skýrir afstöðu sína skilmerkilega á Smugunni í dag:

„Ef fólk vill deila um það hvort þessi þjóðaratkvæðagreiðslu hefði átt að fara fram eða ekki, hvort hún sé undarleg eða eðlileg, þá er nærtækt að skrifa áhugaverðar akademískar greinar um málið. Staðreyndin er hins vegar sú að þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram. Það er vanvirðing við fólk sem vill fá að kjósa um málið að gera lítið úr atkvæðagreiðslunni; og það er vanvirðing yfirleitt að gera lítið úr lýðræðislegum rétti almennings til aðkomu, rétti sem fólk um allan heim hefur látið lífið fyrir. Og fyrst atkvæðagreiðslan fer fram þá eigum við ekki að gera hana merkingarlausa með því að sitja heima heldur mæta. Mæta og styrkja samningsstöðuna í yfirstandandi samningaviðræðum með því að segja nei.“

En smáfuglarnir heyra að þetta séu aðeins gárur á yfirborðinu miðað við það sem kraumar undir niðri í báðum stjórnarflokkunum. Sífellt fleiri átta sig á að þau Jóhanna og Steingrímur hafa gert stórfelld pólitísk mistök síðustu mánuði.

 
Meira fuglahvísl

Sigrún Davíðs­dóttir uppvís að ósannindum?

Brynjar Níelsson, formaður Lögmanna­félags Íslands, skrifaði fyrir skömmu pistil þar sem hann rakti hvernig Sigrún Davíðs­dóttir, pistlahöfundur Ríkisútvarpsins og einn tíðasti gesturinn í Silfri Egils, var klappstýra útrásarinnar fyrir hrun og einn helsti gagnrýnandi útrásarvíkinganna eftir hrun. Sigrún sveiflaði sér fljótt og fimlega af einum vagninum á annan.

Postularnir tólf hjá Agli

Viðskiptablaðið birti 29. janúar 2012 mjög fróðlegt yfirlit yfir viðmælendur í Silfri Egils frá hruninu haustið 2008. Þar sést hverjir eru tíðustu gestirnir (í sviga hversu oft þeir komu þar fram). Þetta eru tólf postular: 1. Ólafur Arnarson (13), óyfirlýstur blaðafulltrúi Pálma í Fons, sem b...

Sjálfsréttlæting útvarps­stjóra

Smáfuglarnir lásu aftur grein Páls Magnússonar sem birtist í Morgunblaðinu þar sem hann missir tökin og úthúðar rit­stjóra blaðsins með slíkum ofstopa að ef greinin hefði komið frá einhverjum óþekktari einstaklingi hefði henni verið hafnað eða hugsanlega birt í dálknum „Bréf til blaðsins“. Smáfuglarn...

Þögn Egils um Evu Joly

Smáfuglarnir eru hissa á því að helsti aðdáandi Evu Joly og sá sem tryggði (með dagskrárvaldi sínu) að hún kæmist á laun hins opinbera og fengi greiddar 325 þúsund krónur á dag í laun skuli nú þegja þunnu hljóði um nýjustu fréttir af Evu í heimspressunni. Sagt er frá því í fréttum að 51% Frakka telji að hún sé óheiðarleg og 78% að hún ráði ekki við starf sitt.

Frasabók Hrannars B.

Smáfuglarnir sjá að væntanlegt er tímamótaverk eftir Hrannar B. Arnarsson, fyrrum eiganda Arnarson og Hjörvar sf. og núverandi aðstoðar­mann Jóhönnu Sigurðardóttur. Á forsíðu bókarinnar má sjá nokkra af frösum sem vinstri­stjórnin notar og þá helst Jóhanna. Smáfuglarnir efast ekki um að bókin verð...

Nýr Bjarni Ben

Smáfuglarnir lásu góða grein Bjarna Benediktssonar í Morgunblaðinu í morgun en þar svarar hann málefnalega dylgjum Hallgríms Helgasonar, sem seldi ómálað málverk á tugi milljóna þegar útrásin var í algleymingi, og Björns Ólafs Hallgrímssonar lögmanns. Um efni greinarinnar þarf ekki að fjölyrða en eitt hnutu smáfuglarnir um.

Atvinnuþátttaka aldrei minni

Smáfuglarnir lesa í fréttum að atvinnuþátttaka sé sú minnsta frá því mælingar hófust árið 1991. Þetta eru merkilegar fréttir í ljósi þess að aldrei hefur þörf fólks fyrir fé verið meiri og einmitt nú þegar heimilin hafa þolað mikla rýrnun eigna og skarpa hækkun verðlags umfram launahækkanir. Ef allt...

Jóhanna hrædd við kosningar

Smáfuglarnir sjá á orðfæri Jóhönnu að fáir eru hræddari við kosningar en leiðtogi Samfylkingar­innar. Hún segir við fjölmiðla þessa dagana að „íhaldinu megi ekki takast að reka fleig í ríkis­stjórnina“ með landsdómsmálinu. Þannig skapar Jóhanna þá stöðu að vinstri­stjórnin verði að hanga saman á lyginni einni saman svo halda megi sjálfstæðis­mönnum frá ríkis­stjórn.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX