Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Smáfuglarnir fylgjast vel með á netinu og tóku eftir því í morgun að nú gengur á milli manna mynd þar sem hluti hvers íslendings í meintri Icesave „skuld“ er settur upp á greiðsluseðil. Er þetta þörf áminning um hversu ógnarhá upphæð er í húfi eða um 2,2 milljónir á hvern mann.
Greiðsluseðillinn er stílaður á Ólaf Örn Nílsen sem er formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna sem hefur verið einn þeirra fjölmörgu ungu manna sem mótmælt hafa óþörfum skuldaklafa sem vinstristjórnin vill binda um háls Íslendinga. Steingrímur og Jóhanna virðast hafa ákveðið að senda Ólafi fyrsta greiðsluseðilinn sem er við hæfi þar sem „skuldin“ lendir að mestu á ungu fólki sem er að hefja starfsævina. Steingrímur og Jóhanna, sem eru við ellimörk, koma ekki til með að borga krónu.
Smáfuglarnir vita ekki betur en að rétt um 160.000 íslendingar séu á vinnumarkaði og greiði þar skatta svo að „skuldin“ lendir að mestu á þeim. Það merkir að greiðsluseðillinn á hvern vinnandi mann er hæglega tvöfalt hærri eða 4,4 milljónir.
Allaballar rísa upp frá dauðum
Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður og landsfundarfemínisti, bendir á það á vefsíðu sinni að 9 af 10 ráðherrum í nýrri ríkisstjórn séu gamlir liðsmenn Alþýðubandalagsins. Fyrir öllum þeim sem muna eftir þeim flokki eru tíðindin hin verstu og með ólíkindum að það gerist árið 2010 að gamlir kommúnistar komist til valda á Íslandi.
2/3 landsmanna vilja ekki Þorgerði Katrínu
Smáfuglarnir lesa í Viðskiptablaðinu að stór hluti landsmanna vilji ekki að Þorgerður Katrín snúi aftur á Alþingi. Samkvæmt könnun sem blaðið lét gera eru tæp 67% andvíg því að Þorgerður taki sæti á Alþingi. Í frétt VB segir: Í skýrslunni [rannsóknarnefndar Alþingis var fjallað um stórar lántökur eiginmanns hennar sem starfaði sem framkvæmdastjóri hjá Kaupþing.
Finnur Árnason áfram fulltrúi Baugsfeðga í Högum
Smáfuglarnir sjá að nú beinist athyglin að Finni Árnasyni, forstjóra Haga, sem enn heldur stöðu sinni þrátt fyrir að loks hafi verið skorið á formleg yfirráð Baugsfeðga á Högum sem héldu völdum yfir fyrirtækinu þrátt fyrir að hafa keyrt móðurfélag þess, 1998 ehf, í ævintýralegt þrot með bruðli og óhófi. Gjaldþrot 1998 var um 50 milljarðar króna.
Fbl: 75% telja rétt að reka Jóhannes
Smáfuglarnir ráku augun í könnun í Fréttablaðinu í gær sem gerð var á Vísi.is daginn áður. Vísir er í eigu Baugsfeðga í gegnum eiginkonu Jóns Ásgeirs, Ingibjörgu Pálmadóttur. Spurt var hvort rétt hafi verið af Arion banka að reka Jóhannes Jónsson frá Högum. 75,4% svarenda svöruðu játandi en 24,6% sv...
Brún slóð ójafnréttis Samfylkingarinnar
Smáfuglarnir eru harðir andstæðingar þess að girt sé niður um fólk til að kanna hvað þar kunni að leynast í stað þess að lesa ferilskrá þess og meta það út frá eigin verðleikum. Engu að síður hefur kynfæranálgunin verið eitt helsta baráttumál öfgafemínista síðustu ár og virðist ætla að rata inn í löggjöf um stjórnir fyrirtækja áður en langt um líður hérlendis.
Nú berast nýjar fréttir af furðulegum vinnubrögðum og blekkingum klíkunnar í kringum Jón Ásgeir Jóhannesson sem af einhverjum óskiljanlegum ástæðum fær enn að reka fjölmiðla í skjóli íslenskra banka. Nú koma þeir Hannes Smárason og Pálmi í Fons við sögu, en þeir gegna aðalhlutverki ásamt Jóni Ásgeiri í ákæru Glitnis banka á hendur Jóni Ásgeiri og klíku hans fyrir dómstóli í New York.
„Staðföst skoðun stjórnenda og starfsfólks að framangreindum markmiðum verði ekki náð án Jóhannesar“
Smáfuglarnir muna eftir því þegar Finnur Árnason, forstjóri Haga, sagði þann 13. nóvember 2009 að engin leið væri fyrir Haga að ná markmiðum sínum án Jóhannesar Jónssonar sem eitt sinn var kenndur við Bónus. Orðrétt sagði Finnur: Með því [endurskipulagningu 1998 ehf. verður tryggt að Bónus ver...
Ögmundur lofar ekki góðu sem dómsmálaráðherra
Ögmundur Jónasson, nýr dómsmálaráðherra og samgönguráðherra, sagði í Kastljósi 2. september, að hann hefði farið í kynnisferð til útlanda til að átta sig á forvirkum rannsóknarheimildum lögreglu. Hann vildi fara mjög varlega í málinu. Í sömu andrá sagðist hann vilja stemma stigu við skipulegri glæpa...