amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Laugardagurinn 18. maí 2013 - 08:39
 
 
Fuglahvísl birtist 1. mars 2010 klukkan 16:55

Smugan ræðst á Björgvin G. - hvenær kemur að Steingrími J.?

 
 
 
Um fuglahvísl

Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.



Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Bjorgvin.is
Björgvin G. Sigurðsson.

Smugan, netmálgagn vinstri-grænna, birtist að nýju 1. mars í nýjum búningi undir ritstjórn Þóru Kristínar Ásgeirsdóttur, formanns Blaðamannafélags Íslands úr feministaarmi vinstri-grænna.

Fyrsta mál á dagskrá var að ráðast á Björgvin G. Sigurðsson, þingflokksformann Samfylkingarinnar, samstarfsflokks vinstri-grænna í ríkisstjórn. Í ritstjóradálki Smugunnar sagði:

„Stjórnmálamaðurinn Björgvin G. Sigurðsson hefur nú fórnað tvífara sínum Björgvin Guðna frá Skarði á altari vinsælda í Suðurkjördæmi. Steinsmugan fylgdist full aðdáunar með Björgvin Guðni berjast gegn frekari virkjunaráformum í Þjórsá en Landsvirkjun sem seint verður brigslað um að draga taum náttúruverndar, á hinsvegar í vök að verjast gegn Björgvin G, sem krefst þess nú að fyrirtækið dragi til baka gamla stjórnarsamþykkt um að orkan úr neðri - Þjórsá verði ekki notuð til nýrrar stóriðju.

Björgvin G. virðist hafa reiknað út að það sé líklegra til vinsælda á Suðurnesjum að sækja fram með stóriðjusinnum heldur en að halda í nokkur græn atkvæði heima í héraði.“

Smáfuglarnir velta fyrir sér, hvenær að því kemur, að Þóra Kristín skrifi um skoðanir Steingríms J. Sigfússonar annars vegar og Steingríms Jóhanns Sigfússonar hins vegar. Verðugt er að gera lesendum Smugunnar grein fyrir öllum skoðunum þess stjórnmálamanns.

 
Meira fuglahvísl

Verndar lög­regla ekki eignar­rétt Jóns Geralds?

Smáfuglarnir eru gáttaðir á atburðum dagsins í versluninni Kosti í Kópavogi þar sem Jón Gerald kaupmaður selur matvöru.

Eini friðarspillirinn á Þingvöllum er Álfheiður Inga­dóttir

Smáfuglarnir fylgjast vel með málefnum Þingvalla enda daglegir gestir í þjóðgarðinum. Þar hafa í gegnum árin mönnum og dýrum komið vel saman og friður verið einkennandi fyrir svæðið. Það breyttist þó nýverið þegar Álfheiður Inga­dóttir tók við formennsku í Þingvalla­nefnd.

Hrægammapeningar Framsóknar koma beint úr ríkis­sjóði

Framsóknar­flokkurinn ætlar í nafni ríkis­sjóðs að krefja erlenda kröfuhafa um hlut af eignum þeirra með góðu og illu og hafa nefnt 400 milljarða. Takist það, umræðunnar vega, fara peningarnir í ríkis­sjóð. Eftir það ætlar Framsóknar­flokkurinn að færa þessa 400 milljarða til hóps útvalinna sem skulda vegna íbúðar­kaupa. Ríkis­sjóður er nær gjaldþrota vegna skulda.

Allar árstekjur annars foreldris fara í skatta og opinber gjöld - hitt framfleytir fjölskyldunni

Smáfuglarnir detta við og við út tré sínu þegar þeir sjá tölur um sóun almannafjár og/eða nýja skatta sem vinstri­stjórn leggur á menn. Í morgun skrikaði þeim hins vegar fótur þegar við blasti skipting á útgjöldum heimilanna. 52% af útgjöldum meðal heimilis fara í skatta og opinber gjöld þegar allt er talið saman.

Ætla hægrimenn að kjósa guðfaðir vinstri­stjórnar­innar?

Smáfuglarnir eru hissa á mörgu. Til dæmis því að stór hluti kjósenda Sjálfstæðis­flokksins ætli sér að kjósa Framsókn og falla þar fyrir innantómum loforðum um að stela peningum af útlendingum til að leysa skuldavanda heimilanna. Hafa þeir sjálfstæðis­menn gleymt því að Framsóknar­flokkurinn er guðfaðir verstu ríkis­stjórnar á Íslandi fyrr og síðar. Hafa þeir gleymt þessum orðum Sigmundar Davíðs?

Sigmundur lofaði eitt sinn 2.000 milljörðum

Smáfuglarnir hafa grúskað í gömlum fréttum og sjá þar að meira er um loforð Sigmundar Davíðs en efndir eða árangur.

Ásakar formann Framsóknar­flokksins um ósannindi

Sigríður Dögg Auðuns­dóttir ásakar Sigmund Davíð um að birta ósannindi á vefsíðu sinni. Forsaga málsins er sú að Sigríður Dögg blaðamaður á Fréttatímanum tók viðtal við Sigmund Davíð þar sem hún ásamt ljósmyndara fóru saman í ísbíltúr á Þingvelli. Þegar viðtalið kom út, brást Sigmundur illa við og sagði blaðamenn hafa rangt eftir sér og taka hluti úr samhengi.

Framsóknar­maður á bar

Smáfuglunum barst eftirfarandi: Framsóknar­maður og skattgreiðandi sátu á bar. Skattgreiðandinn þurfti á klósettið og bað framsóknar­manninn að passa veskið sitt á meðan. Þegar hann kom til baka voru allir á barnum komnir með þrjá drykki hver og hrópuðu þrefalt húrra fyrir framsóknar­manninum sem útdeildi drykkjum í miðri þvögunni.

 
 
©2013 - - RSS - Um AMX