Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Átta af hverjum tíu Íslendingum eru andvígir því að Jóhannes í Bónus fái að kaupa allt að 10% hlut í Högum af Arion banka. Þetta er niðurstaða skoðanakönnunar MMR dagana 12.-17. febrúar. Heildarfjöldi svarenda var 902 einstaklingar.
14. febrúar 2010, sömu helgi og MMR var að kanna afstöðu almennings til Jóhannesar birtist viðtal við Finn Sveinbjörnsson, bankastjóra Arion banka, í Sunnudagsmogganum. Þar spyr Agnes Bragadóttir, hvers vegna í ósköpunum bankinn eyrnamerki Jóhannesi 10% hlut í Högum, þegar ákveðið er að fara með fyrirtækið í opið útboð á markaði.
Finnur svarar:
„Rekstur Haga gengur mjög vel. Félagið hefur á að skipa hæfu starfsfólki sem treystir Jóhannesi Jónssyni og stjórnendateymið hefur sýnt það á liðnum árum að það kann vel til verka. Honum er gefinn kostur á að kaupa 10% hlut í félaginu á sama verði og aðrir kaupendur.“

Smáfuglarnir spyrja: Hvers vegna er ekki efnt til könnunar meðal starfsfólks Haga til að sannreyna orð Finns, bankastjóra?
Af hálfu bankans hefur ekki aðeins verið fullyrt að Jóhannes í Bónus njóti trausts samstarfsfólks síns heldur einnig viðskiptavina Haga. Þar hefur sjálfsgrobbið verið étið upp eftir Jóhannesi. Nú liggur fyrir áreiðanleikakönnun meðal almennings. Jóhannes fellur á því prófi.
Hið skrýtna er, að hann skuli standast próf bankans og bankastjórans, þótt bankinn hafi tapað stórfjárhæðum á viðskiptum við hann.
Smáfuglarnir skora á MMR að efna til könnunar á trausti almennings til Finns bankastjóra og og Arion banka. Víst er, að banki án trausts er einskis virði. Traust á banka ræðst af því, hverja hann velur sem vini sína. Að hafa skipað Jóhannes í Bónus í vinahópinn er dýrkeypt.
Jóhann Hauksson á launum hjá Baugi Group
Jóhann Hauksson hefur í gegnum árin verið harðasti stuðningsmaður Baugsklíkunnar og gengið lengra en flestir í að verja þá í daglegri umræðu fjölmiðla. Jóhann var með útvarpsþáttinn Morgunhaninn á Útvarpi Sögu þar sem hann hélt uppteknum hætti og varði Baugsmenn. Nú hefur komið í ljós að Baugur Group kostaði þáttinn og greiddi laun til Jóhanns.
Þorvaldur talar við Mel Brooks
Þorvaldur Gylfason upplýsti í dag í hinni vikulegu grein sinni í málgagni Baugsfeðga að hann hefði nýlega hitt Mel Brooks í búð og gefið sig á tal við hann. Smáfuglarnir hleruðu samtalið: Stranger: „Hello, Mr. Books! I am Þorvaldur Gylfason, an Icelandic economist. I saw your play last night and I thought it was very good.“ Mel (grinning): „An Icelandic economist?“
Ætlar ríkisstjórn sem er á móti Magma inn í ESB?
Smáfuglarnir tóku eftir því að í ályktun Heimdallar frá því í dag er bent á að hefði Magma Energy verið fyrirtæki frá ESB ríki og ef Ísland væri í ESB væri ekkert sem ríkið hefði getað gert til að hindra viðskiptin. Innan ESB geta allir fjárfest þvert yfir landamæri.
Smáfuglunum barst ályktun stjórnar Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík. Ályktunin skýtur föstum skotum að vinstristjórninni sem Heimdallur segir óstarfhæfa. Smáfuglarnir telja rétt að birta ályktunina í heild sinni. Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, gagnrýnir harðlega fórnarkostnaðinn við að halda óstarfhæfri ríkisstjórn gangandi.
Tími Runólfs kom með Jóhönnu, jafnréttisráðherra
Smáfuglarnir biðja lesendur sína að velta fyrir sér, hvernig Jóhanna Sigurðardóttir hefði látið í stjórnarandstöðu, ef yfirlýstur, stórskuldugur, karlkyns sjálfstæðismaður hefði verið ráðinn umboðsmaður skuldara og gengið hefði verið fram hjá konu, sem veitt hefði skuldurum ráðgjöf á farsælan hátt, árum saman.
Egill gagnrýnir Sigurjón Þ. Árnason fyrir holdafar
Smáfuglarnir sjá að Egill Helgason telur að Björgólfur Thor noti Sigurjón Þ. Árnason sem blóraböggul en Björgólfur sagði margt Sigurjóni að kenna í viðtali við Viðskiptablaðið. Það sem vakti athygli smáfuglanna var áhugaverð greining Egils á Sigurjóni. Egill segir á vefsíðu sinni: Sigurjón Þ....
Sendiherra ESB leiðréttir Eirík Bergmann - EES ekki í hættu
Smáfuglarnir sögðu frá því fyrir stuttu að Eiríkur Bergmann, sérfræðingur í ESB aðild, hefði sagt EES samstarfið í uppnámi ef ESB umsókn yrði dregin til baka. Eins og með annað sem ekki er rétt var þessi skoðun Eiríks leiðrétt.
Tengsl Elíasar Jóns og Þórðar Snæs
Margir hafa velt fyrir sér hvernig tengslum spunameistara vinstristjórnarinnar sé háttað.