Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Smáfuglarnir lögðu við hlustir í gærmorgun þegar Stefán Ólafsson, prófessor í félagshyggju við Háskóla Íslands, mætti á Morgunvakt Rásar 2 til að telja landsmönnum trú um að það væri alls ekki svo slæmt að íslandsmetið í brottflutningi frá landinu var slegið á síðastliðnu ári. Aldrei áður hafa fleiri flutt frá landinu umfram aðflutta heldur en á síðasta ári. Stefán lýsti bjartsýnni spá sinni á stöðu efnahagsmála á næstu árum, hagvöxtur væri að fara í gang og þjóðarbúið væri að rétta sig af. Hvað sem þeirri spá líður brá Smáfuglunum við þegar þeir heyrðu Stefán halda því fram að það væri blessun fyrir atvinnulaust fólk að geta flúið til nágrannaríkjanna og það væri ekki svo slæmt fyrir þjóðarbúið.
Margrét Marteinsdóttir: Við erum í óvenjulegri og óvenjudjúpri [fjármálakreppu], hefurðu ekki áhyggjur af þessari þróun?
Stefán Ólafsson: Ja, auðvitað er þetta sko, það er reyndar tvær hliðar á þessum brottflutningi sko, að að fyrir fólk sem að er í atvinnuþrengingum að geta farið og unnið í góðum löndum hér í kring um okkur eins og Noregi og hinum Norðurlöndunum , þá er þetta auðvitað, getur þetta auðvitað orðið blessun og fyrir þjóðarbúið er ekki endilega slæmt að flytja atvinnuleysið út.
Síðar kom fram að Stefán teldi að á heildina litið gætu 3% landsmanna flúið land og hafði þau orð um spádóm sinn að hann eigi „ekki von á að það verði nein sálarkvöl í þjóðarlíkamanum“. Þá þótti honum mikilvægt að fólksflóttinn væri ekki ýktur úr hófi og landið væri ekki talað niður, enda stæði það þokkalega vel miðað við Evrópu.
Freyr Eyjólfsson: [U]ngt kraftmikið vel menntað fólk er að fara héðan, fólk sem kannski myndi byggja upp ný störf, ný fyrirtæki - það nennir ekki að starfa hér og fer annað - svokallaður spekileki, brain drain, þegar við erum að missa úr landi ungt, menntað, kraftmikið fólk. Er það ekki áhyggjuefni?
Stefán Ólafsson: Jújú, auðvitað getur það verið áhyggjuefni, en en ég held að það megi líka gera of mikið úr því sko. Hva, hva ef við erum með vel menntað fólk hérna sem fer til nágrannalandanna í leit að betri kjörum, það fer í samskonar störf og það væri í hér sem væri svona hærra launuð störf. Það fólk greiðir allt hærri skatta í flestum löndunum í kring um okkur heldur en það gerir á Íslandi þrátt fyrir þá skattahækkun sem að var innleidd hér í á þessu ári og í fyrra þannig að, að við eigum ekki að missa sjónar á því að Ísland er þrátt fyrir allt samkeppnishæft við flest lönd fyrir utan Noreg, það er engin þjóð sem að keppir við Noreg í lífskjörum um þessar mundir það er bara þannig þeim vegnar vel út af olíunni og háu gengi og öðru.
Þá vita smáfuglarnir það. Þeir eiga ekki að hafa áhyggjur af fólksflóttanum, því að skattarnir eru svo lágir á hálaunafólk á Íslandi miðað við önnur ríki! Þar að auki sé landið samkeppnishæft, nema við Noreg sem sé olíuríki með hátt gengi. Smáfuglarnir vita að Ísland er ekki olíuríki, og verður það ekki því að þau fyrirtæki sem hugðust leita að olíu á Drekasvæðinu hafa nú flúið land vegna háskattastefnu ríkisstjórnarinnar.
Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Landssambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlandsmarkaði.
Kópavogsbúar anda léttar - bæjarstjórn frá í þrjár vikur
Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjarstjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjarstjórnin sé ekki að störfum.
Jón Steinsson, hagfræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávarútvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.
Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?
Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.
Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.
Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana
Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...
Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna
Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.