Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Smáfuglarnir hafa undanfarið fylgst með fréttahauknum Jóhanni Haukssyni, blaðamanni á DV, skrifa hverja fréttina á fætur annarri um þá sem greitt hafa arð út úr félögum sem síðar hafa lent í hremmingum í rekstri. Á því hefur blaðamaðurinn heiðarlegi sérstaka óbeit. Skemmst er að minnast umfjöllunar Jóhanns um Ásbjörn Óttarsson, alþingismann, sem greiddi arð út úr einkahlutafélagi sínu eins og frægt er orðið en eigið fé félagsins var neikvætt en Ásbjörn endurgreiddi arðinn.
Eitt mál virðist þó hafa farið fram hjá Jóhanni Haukssyni. Það er félagið Orðmynd ehf. sem greiddi árið 2007 í arð til hluthafa sinna alls 2,5 milljónir. Árið 2009 var svo gert árangurslaust fjárnám af Tollstjóra hjá félaginu. Blaðamaðurinn ætti að vera snöggur að vinna rannsóknarvinnu málsins því hann er sjálfur eigandi að félaginu og sá sem tók ákvörðun um arðgreiðsluna.
Smáfuglarnir bíða spenntir eftir aðgangshörðu viðtali Jóhanns Haukssonar blaðamanns við sjálfan sig um málið. Þá bíða þeir enn spenntari eftir viðtali við skattgreiðendur sem áttu kröfuna á félag Jóhanns sem Tollstjóri reyndi að innheimta en Tollstjóri sér m.a. um innheimtu skatta og opinberra gjalda.
Ekki er vitað til þess að Jóhann Hauksson hafi endurgreitt arðinn aftur inn í félagið til að standa skil á skuldum sínum við hið opinbera en sé raunin sú hlýtur verðlaunablaðamaðurinn að segja frá því.
Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Landssambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlandsmarkaði.
Kópavogsbúar anda léttar - bæjarstjórn frá í þrjár vikur
Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjarstjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjarstjórnin sé ekki að störfum.
Jón Steinsson, hagfræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávarútvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.
Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?
Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.
Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.
Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana
Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...
Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna
Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.