amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Laugardagurinn 13. mars 2010 - 18:19
 
 
Fuglahvísl birtist 9. febrúar 2010 klukkan 08:00

Kommúnismi í stjórnar­ráðinu

 
 
 
Um fuglahvísl

Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

 
Eftir Einar Kristinn Guðfinnsson Pistill

Aldrei brugðist vondum málstað

Þórólfur Matthíasson prófessor kvartar undan því að vera sagður ganga erinda erlendra þjóða. Þarna er prófessorinn að vísa til þess að Eva Joly ráðgjafi sérstaks saksóknara í bankahruninu skrifaði harðorða grein í Morgunblaðið og Aftenposten í Noregi til þess að svara dæmalaust vitlausri grein eftir prófessorinn í síðar­nefnda blaðinu.

 
Mest lesið
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Smáfuglarnir hafa undanfarið oft reitt fjaðrir sínar vegna hins nýja veruleika hér á landi sem einkennist af höftum, ríkisrekstri og ófrelsi. Vinstristjórnin hefur aðallega tekið sér tvö mál fyrir hendur í innanríkismálum. Hið fyrra er að hækka skatta og gera þá stighækkandi. Hið seinna er að taka upp auðlinda og umhverfisskatta.

Hannes Hólmsteinn Gissurarsson finnur í pistli samhljóm sem margir kannast við:

Þessi stefnumál eru bæði ættuð úr Kommúnistaávarpinu eftir þá Karl Marx og Friðrik Engels frá 1848 [...] Eftir að þeir Marx og Engels höfðu í ávarpinu farið hraðferð um söguna og afgreitt andstæðinga sína í röðum sósíalista með mælskubrögðum, töldu þeir upp þær ráðstafanir, sem kommúnistar þyrftu fyrst að gera eftir valdatöku sína.

Fyrsta ráðstöfunin var: „Eignarnám á lóðum og lendum, en jarðrentan falli til þarfa ríkisins.“ Hér þarf aðeins að breyta smáræði: „Eignarnám á kvótum, en sjávarrentan falli til þarfa ríkisins.“

Önnur ráðstöfunin var: „Háir og stighækkandi skattar.“

Smáfuglarnir sjá að engin þörf var á málefnasamningi á milli ríkisstjórnarflokkanna. Sá samningur kom út árið 1848 og fæst í næstu bókabúð.

 
Meira fuglahvísl

Thatcher kennir sósíalistum

Einhver merkasti stjórnmálamaður síðustu aldar var Margaret Thatcher, fyrrverandi forsætis­ráðherra Bretlands. Smáfuglarnir hafa æ oftar hugsað til hennar í þeim erfiðleikum sem við Íslendingar glímum við. Sterkur leiðtogi með skýra framtíðarsýn er okkur nauðsynleg.

Hótun Jóhannesar í Bónus gegn Lilju marklaus

Smáfuglarnir lesa á Pressunni 12. mars: „Lilja Móses­dóttir, formaður viðskipta­nefndar, hefur svarað bréfi Jóhannesar í Bónus til þingmanna og segist ekki skilja að hann upplifi sig fórnarlamb “pólitískra ofsókna“ nema því aðeins að hann hafi stöðu grunaðs manns. Og grunaðir menn eigi ekki að e...

Steingrímur J. þreyttur á eigin kjaftæði?

Smáfuglarnir taka eftir því, að Steingrímur J. er sífellt að barma sér. Hann spurði erlenda blaðamenn, hvort þeir vissu um einhvern, sem vildi taka við starfinu af sér. Þetta sagði hann til að benda þeim á, hve ofurmannleg raun væri að gegna fjármála­ráðherraembættinu. Þeir, sem vilja tala sig í mjúk...

Étt-ann-sjálfur Steingrímur J. stillir mönnum upp við vegg

Smáfuglarnir lesa á mbl.is 12. mars: „„Ég er orðinn þreyttur á þessu kjaftæði að ríkis­stjórnin sé ekkert að gera,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármála­ráðherra, á fundi Samtaka atvinnulífsins um atvinnumál og vísaði þar m.a. til þeirrar gagnrýni sem forsvarsmenn í atvinnulífinu hefðu sett ...

Bildt ruglar um Icesave og Norðurlönd - Össur þegir

Smáfuglarnir lesa á ruv.is um blaðamannafund að loknum utanríkis­ráðherrafundi Norðurlanda í Kaupmannahöfn 11. mars: „Carl Bildt, utanríkis­ráðherra Svíþjóðar, hafnaði því að Norðurlöndin hefðu látið Breta og Hollendinga ráða för til þess að þvinga Íslendinga til vafasams samkomulags um Icesave....

Ólafur Steph. á mannaveiðum í Hádegismóum

Smáfuglarnir lesa á Eyjunni 11. mars: „Væntanlegt brotthvarf skopteiknarans Halldórs Baldurssonar frá Morgunblaðinu og yfir á Fréttablaðið þykir mikil blóðtaka fyrir blaðið. Það var upphaflega Ólafur Þ. Stephensen sem réð hann í vistina í Hádegismóum. Nú þegar hann hefur tekið við í Skaftahlíð...

Össur hvass í SvD en lítið mark á honum tekið

Svenska Dagbladet (SvD) segir frá því 11. mars, að Össur Skarphéðinsson sé reiður Anders Borg, fjármála­ráðherra Svía, fyrir að segja Íslendinga ekki geta losað sig undan alþjóða­skuldbindingum með þjóðar­atkvæða­greiðslu og láta eins og sænska ríkis­stjórnin hafi gert það, sem hún gæti, til að aðstoða Í...

Magnús Orri Schram setur ríkis­stjórninni 5 skilyrði

Smáfuglunum brá nokkuð, þegar rætt var við Magnús Orra Schram þingmann Samfylkingar, í hádegisfréttatíma RÚV 11. mars, um skilyrði þess, að hann styddi ríkis­stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Nefndi hann 5 skilyrði og sagði, að tafarlaust yrði að leysa Icesave-deiluna, það væri númer eitt. Hin skilyrði...

 
 
©2010 Straumröst ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX