Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.
Aldrei brugðist vondum málstað
Þórólfur Matthíasson prófessor kvartar undan því að vera sagður ganga erinda erlendra þjóða. Þarna er prófessorinn að vísa til þess að Eva Joly ráðgjafi sérstaks saksóknara í bankahruninu skrifaði harðorða grein í Morgunblaðið og Aftenposten í Noregi til þess að svara dæmalaust vitlausri grein eftir prófessorinn í síðarnefnda blaðinu.
Jónína Bjartmarz, fyrrverandi umhverfisráðherra og þingmaður Framsóknarflokksins, er meðal 10 umsækjenda um embætti forstjóra Útlendingastofnunar.
Kosningabarátta Kastljóss sjónvarpsins árið 2007 snerist að verulegu leyti um, hvort Jónína Bjartmarz, umhverfisráðherra, hefði beitt óeðlilegum áhrifum til að knýja fram samþykki Alþingis við ríkisborgararétti tengdadóttur sinnar.
Hvað ætli Helgi Seljan í Kastljósi geri nú, þegar Jónína sækir um að verða forstjóri Útlendingastofnunar? Jónína hefur meðal annars dvalist í Kína, síðan hún datt úr pólitíkinni. Helgi gæti spurt hana, hvort hún vilji auðvelda Kínverjum að koma til Íslands.
Hótun Jóhannesar í Bónus gegn Lilju marklaus
Smáfuglarnir lesa á Pressunni 12. mars: „Lilja Mósesdóttir, formaður viðskiptanefndar, hefur svarað bréfi Jóhannesar í Bónus til þingmanna og segist ekki skilja að hann upplifi sig fórnarlamb “pólitískra ofsókna“ nema því aðeins að hann hafi stöðu grunaðs manns. Og grunaðir menn eigi ekki að e...
Steingrímur J. þreyttur á eigin kjaftæði?
Smáfuglarnir taka eftir því, að Steingrímur J. er sífellt að barma sér. Hann spurði erlenda blaðamenn, hvort þeir vissu um einhvern, sem vildi taka við starfinu af sér. Þetta sagði hann til að benda þeim á, hve ofurmannleg raun væri að gegna fjármálaráðherraembættinu. Þeir, sem vilja tala sig í mjúk...
Étt-ann-sjálfur Steingrímur J. stillir mönnum upp við vegg
Smáfuglarnir lesa á mbl.is 12. mars: „„Ég er orðinn þreyttur á þessu kjaftæði að ríkisstjórnin sé ekkert að gera,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, á fundi Samtaka atvinnulífsins um atvinnumál og vísaði þar m.a. til þeirrar gagnrýni sem forsvarsmenn í atvinnulífinu hefðu sett ...
Bildt ruglar um Icesave og Norðurlönd - Össur þegir
Smáfuglarnir lesa á ruv.is um blaðamannafund að loknum utanríkisráðherrafundi Norðurlanda í Kaupmannahöfn 11. mars: „Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, hafnaði því að Norðurlöndin hefðu látið Breta og Hollendinga ráða för til þess að þvinga Íslendinga til vafasams samkomulags um Icesave....
Ólafur Steph. á mannaveiðum í Hádegismóum
Smáfuglarnir lesa á Eyjunni 11. mars: „Væntanlegt brotthvarf skopteiknarans Halldórs Baldurssonar frá Morgunblaðinu og yfir á Fréttablaðið þykir mikil blóðtaka fyrir blaðið. Það var upphaflega Ólafur Þ. Stephensen sem réð hann í vistina í Hádegismóum. Nú þegar hann hefur tekið við í Skaftahlíð...
Össur hvass í SvD en lítið mark á honum tekið
Svenska Dagbladet (SvD) segir frá því 11. mars, að Össur Skarphéðinsson sé reiður Anders Borg, fjármálaráðherra Svía, fyrir að segja Íslendinga ekki geta losað sig undan alþjóðaskuldbindingum með þjóðaratkvæðagreiðslu og láta eins og sænska ríkisstjórnin hafi gert það, sem hún gæti, til að aðstoða Í...
Magnús Orri Schram setur ríkisstjórninni 5 skilyrði
Smáfuglunum brá nokkuð, þegar rætt var við Magnús Orra Schram þingmann Samfylkingar, í hádegisfréttatíma RÚV 11. mars, um skilyrði þess, að hann styddi ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Nefndi hann 5 skilyrði og sagði, að tafarlaust yrði að leysa Icesave-deiluna, það væri númer eitt. Hin skilyrði...