amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Þriðjudagurinn 7. febrúar 2012 - 09:18
 
 
Fuglahvísl birtist 8. febrúar 2010 klukkan 18:08

Furðuleg samsærissmíði Jóhanns Haukssonar

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Jóhann Hauksson, fréttaskýrandi DV, er að mati smáfuglanna einn helsti samsærasmiður í þágu gamla Baugsveldisins. Hann hefur lagt sig mjög fram um að verja Icesave-afarkostina. Gömlu Baugspennarnir styðja þá allir, eins og sést hefur í leiðurum Fréttablaðsins. Afstaðan er mótuð til að lengja viðskiptalíf Bónusfeðga og fylgifiska þeirra. Árangur hennar birtist í „sátt“ Arion-banka við Jóhannes í Bónus – sátt, sem svipar í raun Icesave-samninganna og nýtur jafnmikillar virðingar og þeir hjá Samfylkingu og vinstri-grænum en óvildar alls þorra fólks, sem er nóg boðið.

Nýjasta dæmið um samsærasmíði Jóhanns Haukssonar er sú fullyrðing, að Gunnlaugur Erlendsson, lögfræðingur, sem starfar í Bretlandi sé „góðvinur“ Sigurðar Kára Kristjánssonar, aðstoðarmanns Bjarna Benediktssonar. Sigurður Kári kannast ekki við þetta og segir á vefsíðu sinni 8. febrúar:

„Á mínum langa ferli innan raða ungliðahreyfingar Sjálfstæðisflokksins hef ég ekki orðið var við að Gunnlaugur Erlendsson hafi verið þar virkur þátttakandi, þó Jóhann [Hauksson] haldi öðru fram. Raunar minnist ég þess ekki að hafa séð honum svo mikið sem bregða fyrir í störfum hreyfingarinnar.

Það er sjálfsagt að menn fjalli um og hafi skoðanir á reikningum sem breskar lögmannsstofur senda þeim aðilum sem þær vinna fyrir, en þeir hinir sömu ættu að temja sér að gera það með heiðarlegum hætti.

Þó Jóhann Hauksson og DV telji að tilgangurinn helgi meðalið þá verð ég að frábiðja mér að hann og DV bendli mig við reikningsgerð með þeim hætti sem gert er í blaði dagsins.

Sem aðstoðarmaður formanns stjórnarandstöðuflokks hef ég nákvæmlega ekkert með samningsgerð fyrir hönd Alþingis eða fjárlaganefndar að gera.“

Smáfuglarnir minna á, að Alþingi undir pólitískri forystu Guðbjarts Hannessonar, formanns fjárlaganefndar, stóð að samningum við bresku lögmannsstofuna Mishcon de Reya, sem hefur sent Alþingi og fjárlaganefnd þess 25 milljóna króna reikning fyrir ráðgjöf og önnur störf vegna Icesave-málsins.

 
Meira fuglahvísl

Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?

Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.

Leikhús eða sjúkrahús

Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.

Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana

Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...

Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna

Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.

ESB fáni á landsliðsbúninga

Í janúar 2009 birtu smáfuglarnir myndband sem sett hafði verið á YouTube þar sem sá veruleiki hafði verið búinn til að Ísland inni til sigurs á handboltamóti en í erlendum fréttum kæmi ESB til með að eigna sér sigurinn og segja hann „sigur ESB á mótinu“. Smáfuglunum bárust nokkur bréf þar sem myn...

Ögmundur slær út bankamennina

Smáfuglarnir rákust á ummæli Ögmundar Jónassonar, sem stýrði Lífeyris­sjóði starfsmanna ríkisinsn (LSR) fram af bjargbrúninni í góðærinu.

Bók stjúpu Egils slátrað

Smáfuglunum þótti ámátlegt að hlusta á Egil Helgason í bókmenntaþætti sínum Kiljunni grátbiðja álitsgjafa sína, Pál Baldvin Baldvinsson og Kolbrúnu Bergþórsdóttur, að gefa bók stjúpmóður sinnar, Sigrúnar Davíðsdóttur, jákvæða umsögn. En þau Páll Baldvin og Kolbrún hökkuðu í sig bók Sigrúnar, sem þykir afspyrnu vond skáldsaga.

Enn eitt dæmið um hlutdrægni RÚV

Skafti Harðarson rakti nýlega í fróðlegum pistli hvernig pistlahöfundar RÚV nota tækifærið þegar þeir segja frá atburðum erlendis að koma að áróðri um innanlandsmál.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX