Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Smáfuglarnir hafa lengi velt því fyrir sér hvers vegna DV hefur látið af umfjöllun sinni um Jónínu Benediktsdóttur. Lengi vel var Jónína fastur liður á síðum blaðsins og á vefsíðu þess. Blaðið gekk erinda húsbónda síns og „pönkaðist“ á Jónínu til að draga úr trúverðugleika hennar þegar Baugsmálið stóð sem hæst. Ekkert hefur þó lengi sést af Jónínu í DV og kom skýringin óvænt fram þegar nokkrir smáfuglar flögruðu umhverfis Jónínu á dögunum.

Smáfuglarnir heyrðu að lausn Jónínu á óþægilegum skrifum DV hefði verið að kaupa af þeim auglýsingar. Um leið og auglýsingakaup hófust hætti blaðið snögglega að fjalla um Jónínu og hennar mál. Jónína gefur nú öðrum sem kvarta undan ósanngjarnri umfjöllun á síðum blaðsins það ráð að feta spor sín og kaupa bara auglýsingar - það dugi til að þagga niður í DV.
Smáfuglarnir undrast ekki þessi meðmæli Jónínu enda þess vel minnugir að ritstjóri blaðsins, Reynir Traustason, sagði við ungan blaðamann að ekki væri hægt að fjalla um ákveðna menn því að það kæmi illa niður á blaðinu fjárhagslega. Upptaka af því samtali var spiluð í Kastljósi.
Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?
Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.
Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.
Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana
Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...
Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna
Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.
Í janúar 2009 birtu smáfuglarnir myndband sem sett hafði verið á YouTube þar sem sá veruleiki hafði verið búinn til að Ísland inni til sigurs á handboltamóti en í erlendum fréttum kæmi ESB til með að eigna sér sigurinn og segja hann „sigur ESB á mótinu“. Smáfuglunum bárust nokkur bréf þar sem myn...
Smáfuglunum þótti ámátlegt að hlusta á Egil Helgason í bókmenntaþætti sínum Kiljunni grátbiðja álitsgjafa sína, Pál Baldvin Baldvinsson og Kolbrúnu Bergþórsdóttur, að gefa bók stjúpmóður sinnar, Sigrúnar Davíðsdóttur, jákvæða umsögn. En þau Páll Baldvin og Kolbrún hökkuðu í sig bók Sigrúnar, sem þykir afspyrnu vond skáldsaga.
Enn eitt dæmið um hlutdrægni RÚV
Skafti Harðarson rakti nýlega í fróðlegum pistli hvernig pistlahöfundar RÚV nota tækifærið þegar þeir segja frá atburðum erlendis að koma að áróðri um innanlandsmál.